Frjáls verslun - 01.05.2011, Blaðsíða 99
FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011 99
staðið skal að vali á stjórnar
mönnum, ábyrgð þeirra og
verksvið. Ég held að mögu lega
sé meiri hefð fyrir því víða
erlendis að fylgja þessum leið
beiningum þar sem eru virkir
hlutabréfamarkaðir en hér á
landi eru fá fyrirtæki skráð í
Kauphöllinni, og því hefur ekki
myndast sama hefðin fyrir því
að fylgja þessum leiðbeiningum
en það er að breytast. Í dag er
kallað eftir auknu gagnsæi og
„allt upp á borðið“ en ein leið
viðskiptalífsins til að verða við
því er að fyrirtæki fylgi þess um
leiðbeiningum og auki þann ig
traust samfélagsins á við skipta
lífinu,“ segir Liv.
Situr í stjórn norsks
fjarskiptafélags
Fyrir ári var Liv kjörin stjórnar
maður í norska fjarskipta fél ag
i nu Telio eftir að hluthafar þess,
íslenska félagið Boreas Capital,
auglýstu í Morgunblaðinu eftir
konu í stjórn.
„Morgunblaðið birti frétt í
kjölfar auglýsingarinnar þar
sem athygli vakti að sérstaklega
var auglýst eftir konu í stjórn
en í fréttinni sagði að það væru
lög í Noregi sem þvinguðu
fyrir tæki þar í landi til að ráða
konur í stjórn. Það er vissulega
hægt að líta á þetta sem þving
un en það er líka hægt að sjá
í þessu tækifæri og leið til að
hugsa hlutina upp á nýtt.
Svokölluð tilnefningarnefnd
sá um valið í Teliostjórnina en
það fyrirkomulag er einmitt
útlistað í leiðbeiningum um
stjórnarhætti fyrirtækja. Nefnd
in tilnefnir stjórnarmenn fyrir
aðalfund félagsins. Hlut verk
nefndarinnar er að tryggja
„rétta“ samsetningu stjórn
arinnar og fara yfir árlegt
árangursmat hennar. Vinnu ferl
ið við val á stjórnarmönnum er
ekki ósvipað því þegar ráðið er
í önnur störf, fyrst er auglýst
eftir fólki og síðan er það tekið í
viðtal en þetta er fyrirkomulag
sem hentar að mínu mati mjög
vel í fámenninu hér á landi.
Með því er hægt að velja úr
fjöl breyttari hópi fólks í starfið
og rökstyðja ráðninguna betur.
Fjöl breytileiki í stjórnum er
nauðsynlegur ásamt samsetn
ingu og reynslu í stjórnar hópn
um. Eftir hrunið skilur fólk
betur hversu mikilvæg mislit
reynsla hópsins er,“ útskýrir Liv.
Snýst um öflugustu
liðsheildina
Í fyrirlestri sínum endaði Liv
á að horfa til baka og minnast
þess þegar Vigdís Finn boga
dóttir fór í forseta fram boð árið
1980 með því að sýna brot úr
myndinni Fífl djarfa framboðið
eftir Guðfinn Sigur vinsson og
Ragnar Santos.
„Myndin sýnir okkur hvað
margt hefur breyst á stuttum
tíma, þegar maður horfir á
myndina vekur hún mann svo
vel til umhugsunar; vorum
við virkilega svona fyrir ekki
lengri tíma! Vigdís er spurð
hvort það eigi að kjósa hana af
því að hún sé kona. Hún segir:
„Nei, það á að kjósa mig af því
að ég er maður.“ Það er einmitt
málið, það á ekki að kjósa konu
í stjórn af því að hún er kona,
ekki frekar en af því að hún er
í bogmannsmerkinu,“ segir Liv
og bætir við: „Ef það er faglega
staðið að ráðningum verður 40
prósenta kvótinn aukaatriði.
Þú ræður fólk í stjórn út af
þekkingu og reynslu. Þetta
snýst jú um fagleg vinnubrögð,
hæfni um sækjenda og sam
setningu stjórnar. Sem stjórn
andi fyrir tækis ertu alltaf að
reyna að setja saman öflugustu
liðs heild ina og ég hef trú á að
lagasetn ingin verði aukaatriði
þegar fram í sækir.“
LöG uM KyNJAKVóTA
Lög um kynjakvóta eru í raun breytingar á lögum um hlutafélög og
lögum um einkahlutafélög sem samþykkt voru hinn 4. mars árið 2010
á Alþingi en taka gildi árið 2013.
Lögin tryggja að hlutfall hvors kyns í stjórnum hluta og einkahluta
fél aga sé ekki lægra en 40%.
Skylt verður að sundurliða upplýsingar um hlutföll kynja í stjórnum í
tilkynningum til hlutafélagaskrár.
Í hlutafélögum, þar sem starfa fleiri en 25 að jafnaði, verður skylt
að sundurliða upplýsingar um hlutföll kynja meðal starfsmanna og
stjórnenda félagsins.
Skylt verður að gæta að kynjahlutföllum við ráðningu framkvæmda
stjóra.
Fyrirtækjum er gert skylt að gefa hlutafélagaskrá upplýsingar í
tilkynn ingum til skrárinnar um hlutföll kynja meðal framkvæmdastjóra.
Frumvarpið var samþykkt með atkvæðum 32 þingmanna úr öllum
flokkum nema Sjálfstæðisflokknum. Ellefu þingmenn greiddu ekki
atkvæði.
Það á að kjósa
mig af því að ég
er manneskja.
Það á ekki að
kjósa konu í
stjórn af því að
hún er kona.“