Frjáls verslun - 01.05.2011, Blaðsíða 114
114 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
jafnréttisstEfna fyrirtækja
Vistor sér um markaðssetningu á lyfjum, heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum og er í fararbroddi á því sviði á Íslandi. Móðurfélag Vistor er
Veritas Capital en hjá samstæðunni starfa
nú tæplega 170 manns. Starfsmannastjóri
Veritas Capital er Vilborg Gunnarsdóttir
og lék okkur forvitni á að vita hvort hún
upplifði kvennamenningu hjá Vistor en
aðeins 14% starfsmanna eru karlar. „Ég
hef í raun aldrei velt þessu alvarlega fyrir
mér en vissulega hallar á karlana hjá okkur
hvað þetta varðar. Að hluta til er skýringin
sú að við störfum á heilbrigðismarkaði og
starfsmenn okkar eru flestir sérfræðingar á
sínu sviði. Öll vitum við að heilbrigðisstétt
ir á Íslandi eru kvennastéttir svo eitt leiðir
af öðru.“
Vilborg nefnir að gildi fyrirtækisins séu
áreiðanleiki, hreinskiptni og framsækni og
er þeim gert hátt undir höfði. „Hreinskiptn i
gildið er afar ögrandi og kallar m.a. á mikla
upplýsingagjöf. Við erum með starfsmanna
fundi á hverjum föstudegi þar sem veittar
eru meiri upplýsingar til starfs manna
en ég held að gangi og gerist almennt í
fyrirtækjum. Starfsmenn hafa tjáð sig um
að það efli samkennd og samábyrgð að vera
treyst fyrir upplýsingum sem þessum en á
sama tíma eykst krafa þeirra um upplýsing ar.
Kannski birtist kvennamenningin þar! Við
konur erum opnari en karlar og tölum meira
saman, a.m.k. að þeirra mati. Konur gera
því kannski ríkari kröfur um upplýsingar
og að því leyti má kannski segja að eitt
einkenni kvennavinnustaðarins birtist. Þá
kemur fram í vinnustaðagreiningum okkar
að starfsmenn bera mikið traust til stjórn
enda en traust byggist á að stjórnendurnir
komi fram af hreinskiptni, hvort sem um er
að ræða jákvæðar eða neikvæðar breyting
ar. Starfsmenn verða líka að geta tjáð sig
og borið sig eftir upplýsingum svo þeir viti
hver staða þeirra er innan fyrirtækisins.“
Stjórnendur verða að vera
fyrirmynd
Aðspurð segist Vilborg telja að vinna þurfi
í því að skapa andrúmsloft hreinskiptni í
fyrirtækjum. „Það gerist ekki af sjálfu sér.
Stjórnendurnir verða að stíga fram og skapa
slíkt andrúmsloft. Það gera þeir með því að
vera sjálfir fyrirmynd og deila upplýsingum,
kalla eftir andmælum, viðurkenna mistök og
koma fram við aðra eins og þeir vilja að aðrir
komi fram við þá. Þá þurfa þeir að segja satt.
Margir stjórnend ur hafa tilhneigingu til að
segja fólki bara það sem það vill heyra og
sumir segja öllum það sama. En ef stjórn
endur eru hrein skiptnir við starfsfólkið sitt
verður það hrein skiptið við þá.“
Hjá samstæðunni allri; fyrirtækjunum
Vistor, Veritas, Distica, Artasan og Medor,
er hlutfall kynjanna þannig að þrír af
hverjum fjórum starfsmönnum eru konur.
Þrátt fyrir þetta segir Vilborg karlana í
fyrirtækinu ekki líða fyrir að vera í minni
hluta og þeim líði ágætlega í kvenna
hópn um.
Hreinskiptni í samskiptum mikilvæg
„Við konur erum opnari en karlar og tölum meira saman, a.m.k. að þeirra
mati. Konur gera því kannski ríkari kröfur um upplýsingar og að því leyti má
kannski segja að eitt einkenni kvennavinnustaðarins birtist.“
Vistor
Vilborg Gunnarsdóttir, starfsmannastjóri Vistor.