Frjáls verslun - 01.02.2011, Blaðsíða 64
64 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011
En þá var líka leikurinn „Tug of Mind“ til
búinn hjá MindGames og hann kom á mark
að skömmu fyrir jól.
aFslöppun
„Tug of Mind“ þýðir eiginlega Hugtog
með sama hætti og „Tug of War“ á ensku
er sami leikur og reiptog á íslensku. Sjálfur
leikurinn er aðeins seldur á netinu og
kost ar 10 Bandaríkjadali eða um 1.200 ískr.
Auk þess þarf sérstakt höfuðtól, sem nemur
hugar orkuna, og það kostar um 12.000 ískr.
Leikurinn Hugtog snýst um að slappa af.
Afslöppun og einbeiting er forsenda þess að
komast áfram. Hugmyndin er að fólk geti í
önnum dagsins tekið sér smáhvíld og leikið
leik þar sem áherslunar eru þveröfug ar við
spennuleiki. Leikurinn var fyrst sýndur
á leikjakaup stefnu í Kaliforníu – Game
Developers Conference – vorið 2010 og vakti
mikla athygli.
Núna stendur MindGames á þeim
tímamót um að varan er tilbúin en það þarf
að fá inn meira fjármagn og fast starfslið til
markaðssetningar og sölu. Enn er Deepa
ein í fullu starfi hjá MindGames en hinir í
félaginu sinna öðrum störfum með hluta
störfum og verktöku fyrir MindGames.
Styrkir hafa komið frá opinberum þróunar
sjóðum og Deepa segir að hugmyndin sé
að finna samstarfsfélag til frekari þróunar,
markmiðið sé að reksturinn standi undir
sér á árinu.
Leikurinn Tug of Mind, Hugtog, er aðeins seldur á netinu og kostar
10 Bandaríkjadali eða um 1.200 kr. Auk þess þarf sérstakt höf uð -
tól, sem nemur hugarorkuna, og það kostar um 12.000 kr.
Olís hefur í fjölda ára stutt við margskonar
verkefni í tengslum við verndun náttúr unn ar.
„Það má segja að við séum í þeim geira sem
mengunarhætta gæti stafað af og þess vegna
hefur það skipt miklu máli að hafa valið
þessa leið,“ segir Jón Ólafur Halldórs son,
fram kvæmdastjóri sölusviðs Olís.
Þegar stjórnendur fyrirtækisins ákváðu
árið 1992 að hefja samstarf við Landgræðsl
una undir kjörorðinu Græðum landið með
Olís höfðu þeir ákveðið að sýna í verki að
þeim væri umhugað um verndun náttúr
unnar.
Á 70 ára afmæli sínu árið 1997 gaf fyrir
tækið út umhverfisstefnu fyrir starfsemina
þar sem segir að það vilji stuðla að því að
hver kynslóð skili landinu og auðlindunum
í betra horfi til þeirrar næstu.
„Meðferð okkar á söluvörum og val á
rekstr arvörum tekur mið af þessu og einn ig
vöruþróun, endurnýting umbúða og förgun.
Til þess að sýna hug okkar til umhverfis
ins höfum við lagt metnað í að ganga
snyrtilega frá öllu okkar umhverfi og gera
stöðvarnar fínar. Til marks um hversu vel
hefur til tekist má nefna að við höfum fengið
um hverfisverðlaun Reykjavíkur.“ Meðal
umhverfisverndarverkefnanna sem Olís
hefur tekið þátt í er samstarf um útgáfu
bæklingsins Gerum bílana græna. „Þetta
var samvinna FÍB, FIA Foundation, Bridge
stone og Olís. Bæklingurinn er hluti af
alþjóðlegu umhverfisátaki FIA sem nefn ist
Make Cars Green eða Gerum bílana græna.
græn bylting á bensínstöðvum
Umhverfisvernd skipar stóran sess í rekstri Olís og hefur samstarf við
Landgræðsluna og skógræktarfélög staðið í áratugi. Nú ætlar fyrirtækið að
bjóða upp á græna orkugjafa á bensínstöðvum.
Jón Ólafur Halldórsson,
framkvæmdastjóri sölusviðs Olís.
TexTi: inGibJörG b. sveinsdóTTir Mynd: Geir ólafsson
Jón Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Olís.
orka og iðnaður
Á næstu árum mun Rio Tinto Alcan fjárfesta fyrir
57 milljarða króna í álverinu í Straumsvík.
Ráðist hefur verið í tvö stór verkefni. Straumhækkun
mun auka afköst kerskálanna og skapa 360 ný
störf þegar framkvæmdir standa sem hæst á þessu
ári. Breytingar á steypuskála auka verðmæti
framleiðslunnar og skapa um 150 ný störf á árinu.
Samanlagt kalla þessi verkefni á 620 ný ársverk á Íslandi.
Rio Tinto Alcan
Straumsvík
Pósthólf 244
222 Hafnarfjörður
Sími 560 7000
www.riotintoalcan.is
620 ný ársverk
í Straumsvík
Bandarísk-indverska taugavísindakonan
Deepa Lyengar.