Frjáls verslun - 01.02.2011, Blaðsíða 70
70 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011
orka og iðnaður
Michel Gardel er aðstoðarforstjóri Toyota
í Evrópu og líklega einn þeirra sem þekkja
hvað best stefnu félagsins í umhverfismál
um, enda yfirmaður þeirra mála hjá Toyota
í Evrópu. Hann hefur með höndum stefnu
mót un á því sviði.
Gardel hefur starfað hjá Toyota síðan
2002 en áður hafði hann starfað hjá ýmsum
bíla fram leiðendum. Hann segir að það
séu a.m.k. tíu ár í að rafmagnsbílar verði
almenn ings eign.
Toyota hefur verið stærsti framleiðandi
bíla í heiminum undanfarin ár (reyndar er
munurinn ekki mikill og VW tekur titilinn
af og til) og framleiðir um tíu milljónir bíla á
heimsvísu á ári. Fyrirtækið er eitt það stærsta
í heimi og afkoma þess verið frábær lengst af.
Tvinnbíll er bíll sem hefur tvískipta vél,
gengur annars vegar fyrir bensíni eða dísil,
en hjálparvélin er rafknúin. Sumir tvinn bíl
ar eru sagðir menga allt að helmingi minna
en aðrir bílar.
Með framleiðslu sinni á tvinnbílum (hy
brid) hefur Toyota verið í fararbroddi eld s
neytis skiptaþróunarinnar og Toyota Prius
hefur orðið táknmynd umhverfis vænleika
hvort sem það er að þakka frá bærri mark
aðssetningu eða tæknilegu for skoti bílsins.
Líklega er það sitt lítið af hvoru og svo auð
vitað sú stefna fyrirtækisins að skila bíl um
sem virka. Hvað um það, 2,1 milljón Prius
bíla seld og enginn segir að hann sé fallegur!
ákall uM breytta orkugjaFa
Þegar við íslenskir bílablaðamenn setj umst
niður með Gardel í upphafi bílasýningarinn
ar í Genf dylst engum að allt er á hverf
anda hveli í bílaheiminum vegna ákalls
um breytta orkugjafa. Ekki er nóg með
að eldsneytisverð hafi hækkað gríðarlega
undanfarið heldur hefur bílgreinin verið
að búa sig undir nýja orkugjafa um margra
ára skeið.
Vandinn er að öll þessi umskipti eru
tafsöm og ljóst að framleiðsla bíla verður
enn flóknari í framtíðinni. Gardel játar
þessu og segir að framundan séu miklar
áskoranir fyrir bílaframleiðendur þar
sem þeir verði að aðlaga sig miklu fleiri
orkugjöfum og staðbundnum lausnum.
Gardel segir að það séu tíu ár í að raf
magns bílar verði almenningseign og muni
þar mest um erfiðleika við að þróa raf hlöð
ur – auk þess sem markaðssetningin og
umskiptin verði flókin.
„Svo er það vandinn við að sjá hver muni
borga brúsann við að skipta yfir í nýja orku
gjafa. Stjórnvöld munu hafa mikil áhrif á
þróunina en hvað vilja þau leggja til? Það
er mín spá að innleiðing rafmagnsbíla verði
hægari en menn vænta,“ segir Gardel.
2020-áætlunin
Gardel bendir á að Toyota hefur sett upp
2020áætlun sem gengur út á að allir bílar
félagsins verði þá boðnir með tvinnvél.
Hann segir aðspurður að vel geti farið svo
að þeirri áætlun verði flýtt en í dag eru 9%
seldra Toyota bíla með tvinnvélar. Árið
2013 er gert ráð fyrir að þetta hlutfall verði
komið upp í 20%.
Handan við hornið er síðan innstungu
áætlun (plugin hybrid) Toyota sem gengur
út á að hægt verði að hlaða rafgeymana
utan að, en um sinn byggist rafhleðslan í
tvinnbílunum á að nýta þá núningsorku
sem verður til við akstur bílsins. Það þarf
ekki að taka fram hve mikil bylting verður
fólgin í því ef hægt er að setja bílana í sam
band við heimilisrafmagn með innstungu
tækninni en rekstur slíkra bíla yrði nánast
ókeypis hér á landi. Á sama tíma myndu
t.d. Brasilíumenn helst horfa til bíla sem
gætu nýtt sér lífefnaeldsneyti. Augljóst
er að margs er að gæta og Gardel játar að
félagið hafi mörg járn í eldinum, vonandi
þó ekki of mörg, segir hann og brosir. Má
þar nefna að félagið er í samstarfi við Pana
sonic um þróun á rafhlöðum og sömuleiðis
hefur Toyota keypt lítinn hlut í Tesla og er í
samstarfi við þá um þróun á nýjum Rav4 EV.
Prófanir á iQrafmagnsbílnum fara fram
á næsta ári. Honum er ætlað að komast 105
kílómetra á hleðslu, ná 125 km hraða og
vera 14 sekúndur í hundraðið. Það tekur
fjórar klukkustundir að fullhlaða rafhlöður
með heimilisrafmagni. Allt gengur þetta út
á að færa neytandanum búnað sem hann er
sáttur við og virkar fullkomlega þrátt fyrir
nýjungar.
En hvert land þarf sína lausn og Gardel
segir að það bíði bílaframleiðenda nú að
samhæfa skynsamlega áætlun sem gangi
upp í tíma og gagnvart tækni.
tíu ár í rafmagnsbíla
Michel Gardel, aðstoðarforstjóri Toyota í Evrópu, ræðir við Sigurð Má
Jónsson um hvaða lausnir bíða bifreiðaeigenda í framtíðinni.
Umhverfismál í
bílageiranum: TexTi oG Myndir: siGurður Már Jónsson
Michel Gardel er aðstoðarforstjóri Toyota í Evrópu.
Svo er það vandinn við að sjá hver muni borga brúsann við að
skipta yfir í nýja orkugjafa. Það er mín spá að innleiðing rafmagns-
bíla verði hægari en menn vænta, segir Gardel.
Getur þú hugsað þér
daglegt líf án rafmagns?
Dreifikerfi RARIK er hið umfangsmesta hérlendis, alls 8.000 kílómetra línukerfi, eða sem
svarar vegalengdinni frá Reykjavík til Los Angeles! Nú hafa 3.250 km af loftlínum vikið fyrir
jarðstrengjum eða 40%. Geri aðrir betur.
www.rarik.is
Ljó
sm
: A
nd
ers
Pe
ter
(w
ww
.an
de
rsp
ete
r.c
om
)