Frjáls verslun - 01.11.2011, Blaðsíða 10
10 FRJÁLS VERSLUN 11. TBL. 2011
D
enver í Colorado er nýr áfanga
staður Icelandair í Bandaríkjun
um og hefst beint flug 10. maí.
Verður flogið fjórum sinnum í
viku. Denver er níunda borgin
í Norður-Ameríku sem Icelandair flýgur til,
hinar eru New York, Boston, Seattle, Minne-
apolis, Washington og Orlando í Bandaríkj-
unum og Toronto og Halifax í Kanada.
Flugtími milli Íslands og Denver er um sjö
og hálf klukkustund.
Koma Icelandair til Denver hefur vakið at hygli
í borginni og sáu ríkisstjóri Colorado ríkis og
borg arstjóri Denver ástæðu til að mæta á
frétt a mannafund á alþjóðaflugvellin um í
Denver þegar áætlunarflug Iceland air til borg-
arinnar var tilkynnt og sagði borgar stjórinn, Mi
chael Hancock, að koma Iceland air hefði mikil
og jákvæð áhrif á efnahagslífið í Colorado.
Öflug verslunar-, menningar-, íþrótta- og
útivistarborg
Denver, sem er við rætur Klettafjalla, er höf -
uð borg og fjölmennasta borg Coloradoríkis.
Borg in er 1.609 metrum yfir sjávarmáli og
hef ur auknefnið „The Mile High City“. Fjöl-
breyti leiki einkennir borgina og hún er lifandi
og öflug verslunar-, menningar-, íþrótta- og
útivistar borg, heillandi staður þar sem sólin
skín í 300 daga á ári. Stutt er í Klettafjöllin,
sem eru nánast í borgarjaðrinum.
Denver varð til árið 1858 þegar gullgrafarar
fundu fyrstu gullflögurnar við árbakkana. Nú
hefur gengið á gullið en Denver er hins vegar
orðin hreinasta gullnáma fyrir ferðamenn
hvort sem um er að ræða menningarlega sinn-
að fólk eða útivistarfólk og er borgin spenn-
andi nýjung fyrir íslenska ferðamenn sem vilja
komast í fjölbreytta möguleika í afþrey ingu.
Í borginni sjálfri er meðal annars mælt
með gönguferð um miðborgina þar sem má
skoða ágæt listasöfn og líta í verslanir og eru
marg ir verðlaunaðir veitingastaðir í Denver.
Þá má heimsækja dýragarðinn, Denver Zoo,
og grasagarður er í borginni sem borgarbú
ar eru mjög stoltir af. Vert er að nefna hverfi
norðanvert í Denver sem borgarbúar kalla
„LoDo“ (stytt úr „lower downtown“). Þarna
hafa menn endurnýjað gömul hús frá því um
aldamótin 1900 og á svæðinu eru veitinga-
staðir, gallerí og verslanir. Þess má svo geta
að Denver er mikil bjórborg og vel þess virði
að skoða eitthvert brugghúsið.
Heillandi borg þar sem sólin
skín 300 daga á ári
Denver:
TexTi: Hilmar Karlsson
Denver í Colorado er nýr áfanga staður Icelandair