Frjáls verslun - 01.11.2011, Blaðsíða 30
30 FRJÁLS VERSLUN 11. TBL. 2011
Fréttaannáll Í stuttu máli
Við segjum á landi, lofti og legi. Þegar við
báðum Pál Stef ánsson um góða lands -
lagsmynd frá árinu vísaði hann í Þor vald
Halldórsson söngvara og sagði „á sjó“.
Þar er auðvitað bæði landslag og sjólag.
Saga Páls með myndinni er þessi: „Þetta
átti að vera stutt ferð, enda voru feikimiklar
torfur af loðnu rétt fyrir norðan Garðskaga-
vita, svo nálægt að hægt var að lesa nú-
mera plöturnar á þeim bifreiðum sem fylgd -
ust með veiðunum. Síðan kastaði Börkur
frá Neskaupstað; frábært kast, 560 tonn.
Það var tíu mínútna sigling til löndun ar í
Helguvík í Reykja nesbæ þar sem ég hafði
nokkru áður stigið um borð. Þegar loðnan
var skoðuð var hún svo feit og fín, að út-
gerðin gaf nú út ný fyrirmæli: Komið heim
með aflann, heim til Norðfjarðar. Allt í einu
átti ég eins og hálfs sólarhrings stím eftir í
höfn, í stað nokkurra mínútna.
Myndin er tekin í dagrenn ingu und ir
Ingólfs höfða um febrúar morg un. Þarna
finnst mér ég hafa náð að fanga veðrið,
skipið, stímið og stemninguna á einni
mynd. Mynda vélin var Hasselblad SWC905,
Velvia 100-filma.“
Þarna finnst mér ég hafa náð að fanga veðrið, skipið, stímið og stemn ing
una á einni mynd. Myndavélin var Hasselblad SWC905, Velvia 100filma.
BEstu
kaupin
á sJó
Kaup ársins voru „kaup“ stjórnenda Haga á
bréfum í félaginu. Þeir fengu bréfin gefins. Um er
að ræða 1,4% hlut í Högum sem metinn er á 170
til 190 milljónir króna. Þess utan trygg ir Arion
banki þeim skattfrelsi vegna þessara viðskipta og
er talið að stjórnendurnir fimm fái í raun jafnvirði
300 til 340 milljóna frá bankanum gefins vegna
þessara viðskipta.