Frjáls verslun - 01.11.2011, Blaðsíða 83
FRJÁLS VERSLUN 11. TBL. 2011 83
snjallsímar og spjaldtölvur standa upp úr
á árinu sem er að líða
aug um til næsta árs varðandi
reksturinn og spáir enn frekari
þróun í notkun snjallsíma og
spjaldtölva. Þar eru möguleik
arn ir endalausir og margt
áhuga vert hægt að gera fyrir við
skiptavini sem nota þá tækni.
„Uppbygging Símans og Mílu
á ljósnetinu er umfangsmikil
og því fer stór hluti fjárfest
inga í það. Sjónvarp Símans
mun gefa viðskiptavinum
Sím ans enn frekari möguleika
í tengslum við afþreyingu og
von umst við líka til að ís len sku
sjónvarpsstöðvarnar fari að
senda út á háskerpu en Sím inn
hefur sent út nokkrar erlendar
rásir í háskerpu síðan árið 2007,“
segir Anna Björk og bætir við:
„Afköst 3Gdreifikerfisins
verða aukin á árinu og fjöldi
senda endurnýjaður til að mæta
þörf um viðskiptavina. Nýr
búnaður gerir okkur kleift að
bjóða aukinn gagnahraða, allt að
42mb/s í 3G, sem og að send ar
styðja einnig 4Gtæknina með
enn frekari aukningu gagna
hraða eða allt að 100 mb/s.
Nú þegar styður allt 3Gkerfi
Símans 21mb/s gagnahraða en
slíkur hraði er þegar möguleg
ur á stóru svæði í Reykjavík.
Það kemur sér vel fyrir nútíma
manninn sem er alltaf á hreyf
ing u og vill hraðvirkt net.
enn fremur leggjum við áherslu
á að sinna vel þeim stöðum sem
féllu undir háhraðanetsverkefni
Símans og Fjarskiptasjóðs en
lokið var við það verkefni á
síðasta ári. Þá erum við stöðugt
að vinna að því að þétta enn
frekar GSM og 3Gkerfin okk
ar um allt land og uppfæra
sím stöðvar og ekki má gleyma
að nefna langdræga kerfið
okkar sem þjónar sjómönnum
á miðunum og fólki sem fer út
fyrir alfaraleiðir í frístundum.
Síminn hefur fengið úthlutað
tilraunaleyfi fyrir 4Gfarsíma
net og við munum að öllum
líkindum hefja þær tilraunir á
árinu 2012. munurinn á 4G og
3G er bandvíddin og þar með
hraðinn. Þar sem við erum
kom in með svo öflugt og sterkt
3G, 21 mb/s í 3G og jafnvel
meira, verður aldrei eins mikil
bylting að fá 4G miðað við
þeg ar við bættum 3Gneti við
GSMnetið. Þar var hægt að
tala um tæknibyltingu.
Unga kynslóðin ljósárum á
undan
Snjallsímavæðingin hefur
tröllriðið þessum markaði á
árinu. Maður upplifir gríðar
legar breytingar á því hvernig
fólk notar farsímana og þetta er
svo stór breyting að mér finnst
hægt að tala um raunverulega
byltingu á þessum markaði.
um leið og fólk áttaði sig á
þægindunum við það að geta
verið á netinu hvar og hvenær
sem er þá varð algjör lífsstíls
breyting. Fólk er ekki eins bund
ið við skrifborðið og getur um
frjálsara höfuð strokið. Tekið sér
jafnvel lengri frí með fjölskyld
unni því netið er alls staðar
orðið aðgengilegt,“ útskýrir
Anna Björk og segir jafnframt:
„eðli málsins samkvæmt þá
er fjarskipta og upplýsinga
fyrirtæki eins og Síminn stöð
ugt að þróa nýjungar til þess
að mæta þörfum á markaði en
einnig til þess að bjóða upp á
vörur og þjónustu sem ljóst er
að verður þörf fyrir í náinni
framtíð. Við erum því á kafi í
því að kortleggja hvernig mál
þróast og þá einkum tengt þess
ari miklu byltingu sem fylgir
snjallsímum og spjaldtölvum.
Við sjáum því kostinn við það
að hafa alla tíð lagt áherslu á að
bjóða öflugt net því farsíminn
er jú orðinn gríðarlega mikið
notaður á gagnaflutningskerf
unum. Hvað árið og náin fram
tíð ber í skauti sér í fjarskiptun
um á auðvitað eftir að koma
í ljós en það er alveg ljóst að
unga fólkið í dag er ljósárum
á undan okkur eldri kynslóð
unum varðandi fræðslu, upp
lýsingar og afþreyingu sem þau
sækja sér með hjálp fjarskipt
anna.“
Óvænt móðir í þriðja sinn
Stefna Símans er skýr þar
sem fyrirtækið á allt undir að
tæknin virki sem best allan
sólarhringinn, alla daga ársins.
„Við viljum auðga líf við
skipta vina okkar með því að
gera fjarskipta og upplýsing a
tæknina, sem er sérsvið okkar,
aðgengilega og auðvelda í
notkun. Við leggjum áherslu á
að viðskiptavinir okkar, hvort
sem eru einstaklingar, fyrirtæki
eða stofaninr, geti treyst því
að hlutirnir virki og þeir geti
því áhyggjulausir einbeitt sér
að því sem þeim þykir mikils
virði sem getur verið allt í
senn skemmtun, afþreying,
sam skipti, vinna, menntun,
upp lýsingaöflun og svo mætti
lengi telja,“ segir Anna Björk
og aðspurð hvað henni sé per
sónulega eftirminnilegast frá
árinu sem er að líða verður hún
fljót til svars:
„Þetta var mjög viðburðaríkt
ár í mínu einkalífi. Það sem ber
hæst er að lítil stúlka ákvað allt
í einu að veðja á það að fæðast
inn í þessa gömlu fjölskyldu
með foreldra á fimmtugsaldri og
systkini sem eru tilbúin að fara
að heiman. Það var náttúr lega
í raun kraftaverk og yndislegt
fyrir okkur að fá litla stelpu
að leika okkur við, því á sama
tíma hurfu stóru börnin okkar
á braut til Bandaríkjanna í
nám og til að spila körfubolta.
Síðan var auðvitað spennandi
að mæta í nýtt starf þegar ég
kom til baka úr fæðingar orl ofi
og hlakka ég mikið til að halda
áfram að takast á við það verk
efni á nýju ári.“
Anna Björk Bjarnadóttir er nýráðin framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans en hér er hún með nýjasta fjölskyldumeðlimnum, Bryndísi Tómasdóttur.