Frjáls verslun - 01.11.2011, Blaðsíða 109
FRJÁLS VERSLUN 11. TBL. 2011 109
Blue lagoon orðið eitt
þekktasta vörumerki landsins
psoriasisrannsókn í samstarfi
við Háskóla Íslands og land
spítala og er hún doktorsverk efni
Jennu Huldar eysteinsdótt ur
læknis. Rannsókninni er ætlað
að styrkja samkeppnisstöðu
psor iasismeðferðar í Bláa lóninu
og auka skilning á því hvernig
meðferðin virkar. Reiknað er
með að fyrstu vís indagreinar
muni birtast á fyrsta ársfjórð ungi
2012, en fyrstu niðurstöður eru
mjög áhugaverðar og munu
varpa frekara ljósi á einstakan
lækn ingamátt Bláa lónsins. Við
mun um einnig setja nýjar Blue
Lagoonhúðvörur á markað á
næsta ári.
hvaða nýjungar voru helstar í
fyrirtæki þínu á síðasta ári?
Aukin áhersla á spaupplifun
var einkennandi fyrir starfsemi
okkar á árinu og við settum
nýja spapakka á markað í því
skyni. Veitingasviðið er mjög
vaxandi þáttur í starfseminni
og þar átti sér stað áhugaverð
þróun á árinu.
Við kynntum nýja öfluga
psor iasismeðferð sem felur í
sér mun styttri meðferðartíma
en hin hefðbundna meðferð.
með ferðin hentar erlendum
meðferðargestum vel, en þeir
hafa oft á tíðum ekki tök á
að dvelja hjá okkur í þrjár til
fjórar vikur. nýja meðferðin er
mjög mikilvæg þegar kemur að
markaðssetningu á erl endum
markaði. Tvær nýjar Blue
Lagoonhúð vörur, Silica Mud
exfoliator og Silica Foot and
leg lotion, litu dagsins ljós sl.
sumar. Vörurnar eru byggðar á
kíslinum sem er mest einkenn
andi efni Bláalónsjarðsjávarins
og eru afrakstur þróunarstarfs
undanfarinna ára þar sem
áhersla er lögð á nýjar hag
nýtingarleiðir kísilsins. Vör un
um var geysilega vel tekið og
það er gaman að segja frá því
að 500 íslenskar konur fögnuðu
nýju vörunum í spapartíi á
baðstað Bláa lónsins sem var
haldið af þessu tilefni sl. sumar.
hvað er þér persónulega eftir
minnilegast frá liðnu ári?
Sonarsonur minn, Grímur Goði
Sæmundsen, varð eins árs í
nóv ember og þá fagnaði mitt
ástkæra félag, Knattspyrnufé
l agið Valur, 100 ára afmæli. Ég
átti þess kost að sitja í afmælis
nefnd félagsins vegna þessa
merka áfanga og hef átt margar
góðar stundir með félögum
mínum í Val á árinu.
stefna bláa lónsins í einni
setningu
Bláa lónið er leiðandi fyrirtæki
í íslenskri heilsuferðaþjónustu
og við munum halda áfram
mark vissri uppbyggingu á
þeim vettvangi.
„Bláa lónið er þekk
ingarfyrir tæki, með
fjölþætta starfsemi
á sviði heilsu og
vellíðunar. Inn an
þess fer fram öflugt
rann sókna og þró
unarstarf sem er
undirstaða frekari
verð mætasköpunar.“ Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins.