Frjáls verslun - 01.03.2010, Síða 49
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0 49
H E R F E R Ð I N
H
erferðin gekk vonum framar og er næst áhrifa rík asta
herferð sem keyrð hefur verið hér á landi frá því að
mælingar hófust. Her ferðin er sú þriðja í röðinni hér
á landi til að vekja athygli á krabba meini í körlum.
Karlar tóku við sér gagnvart málefninu og söfn uðu yfir varar
skeggi og leituðu eftir áheitum á Netinu, með nælusölu og í
sjón varpsþætti helguðum herferðinni.
Krabbameinsfélag Ísland stóð að söfnuninni þar sem 70
milljónir króna söfnuðust – auk þess sem athygli var vakin
á krabbameini hjá körlum. Yfirleitt hefur verið einblínt á
krabbamein hjá konum.
„Til þessa hafa karlar verið langt á eftir konum hvað varðar
um fjöllun, þekkingu og vitund um hættuna sem stafar af
krabba meini. Herferðin átti að vekja athygli karlmanna á mikil
vægi þess að þekkja einkenni krabba meina og að um ræðan
sé ekki feimnismál. Við karlmenn er um óttalegar teprur
stundum,“ segir Gústaf Gúst afs son, markaðs og fjár öflunar
stjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Þau stóðu að átakinu: Bjarki Þór Eliason frá TM Software, Frosti Jónsson frá Birtingahúsinu, Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri
Krabbameinsfélags Íslands, Árni Þórður Jónsson ráðgjafi hjá Athygli, Ingvi Jökull Logason, framkvæmdastjóri H:N Markaðssamskipta og Bryndís
Nielsen ráðgjafi hjá Athygli. Á myndina vantar Brynjar Kristjánsson frá TM Software.
AUGLÝSINGAHERFERÐIN MOTTU MARS:
Herferðin er talin næstáhrifaríkasta herferð
sem keyrð hefur verið hér á landi frá því
að mælingar hófust.