Frjáls verslun - 01.03.2010, Page 55
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0 55
M E L A B Ú Ð I N
unnubúðin er lítil og notaleg
verslun við Mávahlíð. Eysteinn
Sigurðsson kaupmaður tók við
rekstri verslunarinnar í febrúar
í fyrra, en hann rak áður Krambúðina við
Skólavörðustíg í mörg ár.
„Eftir að ég seldi Krambúðina tók ég mér
langt frí en var svo verslunarstjóri hjá
Europris um tíma. Ég komst þó fljótlega að
því að ég þrífst ekki vel í stórum verslunum
og ákvað því að kaupa Sunnubúðina og taka
slaginn aftur.
Þegar ég tók við rekstrinum var útlitið
mjög svart, öll verð að hækka og erfitt að fá
vörur enda margir hræddir vegna hrunsins.
Ástandið hefur þó skánað og í dag gengur
betur að fá vörur þrátt fyrir að stóru versl
anirnar eigi það til að kaupa upp allan lager
heildsalanna og því ekkert til skiptanna fyrir
minni búðirnar. Stundum er því haldið
fram að álagningin í smærri verslununum
sé mikil en það er alls ekki rétt. Ég er viss
um að við höfum úr mun minna að spila en
stórmarkaðirnir þar sem þeir fá mun meiri
afslátt af innkaupum en við hjá birgjum.
Við þessir minni gætum lækkað vöruverð
verulega ef við sætum við saman borð og
þessir stóru og siðferðið í viðskiptunum væri
eðlilegt,“ segir Eysteinn.
„Reksturinn gengur vegna þess að við
lifum spart og rekum verslanirnar með
litlum tilkostnaði og ekki með stjóra ofan
á stjóra. Við stöndum mikið í búðinni
sjálfir og sjáum sjálfir að miklu leyti um
daglegan rekstur. Viðskiptavinir mínir eru
blanda af föstum kúnnum og fólki sem
gerir stór innkaup í lágvöruverslunum og
kemur svo til mín ef það vantar eitthvað.
Mér sýnist þó karfan alltaf vera að stækka
hjá fólki og aukast það magn sem hver og
einn kaupir í einu. Styrkur okkar liggur í
því að við veitum persónulegi þjónustu en
stórmarkaðirnir og viðskiptavinirnir kunna
að meta slíkt. Við sendum vörur einnig heim
til fólks í hverfinu og eldra fólkið kann vel
að meta það.
Því miður er búið að eyðileggja grund
völlinn fyrir rekstri smærri verslana mjög
víða í borginni og það verður erfitt að
endurreisa þær þar. Húsnæðið er horfið
undir annað og við skipulagningu nýrra
hverfa er ekki gert ráð fyrir svona rekstri. Ég
tel að þær verslanir sem eru starfandi í dag
eigi framtíð fyrir sér en ég sé ekki fram á að
fleiri bætist við.“
Eysteinn segist afskaplega þakklátur
fyrir það að enn sé til fólk sem vill versla
við smærri verslanir. „Sumir gera það af
hugsjónarástæðum, öðrum finnst það
þægilegt og aðrir gera stórinnkaup í lág
vöruverslunum og versla það sem upp
á vantar hjá okkur og það eru allir jafn
velkomnir.“
S U N N U B Ú Ð I N
S M Á S A L A
Eysteinn Sigurðsson, kaupmaður í Sunnubúðinni.