Frjáls verslun - 01.03.2010, Page 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0
Gyðja Collection. Kron by Kronkron. Logo 69. MKM.
Fjórar ungar, íslenskar konur hafa skapað sér nafn; þær hanna skó og selja.
Í sumum tilfellum minna skórnir á listaverk. Enginn er striginn; það er gengið á þessum listaverkum.
Þær selja hönnun sína á alþjóðavísu.
Ævintýri gerast stundum í ferðalögum til fjarlægra landa. Það upplifði Sigrún Lilja Guðjónsdóttir fyrir fjórum árum þegar hún var í Egypta landi. Hún var stödd í verslun, dáðist að leður vör unum þar og í ljós
kom að starfsmennirnir framleiddu vör urnar sjálfir. Hún ákvað
að prófa sjálf og nokkrum dögum síðar var búið að framleiða
stígvél og tösku sem hún hafði hannað.
Þegar heim frá Egyptalandi kom skráði Sigrún Lilja sig á
námskeið hjá Brautargengi en hún segist hafa reynt að nýta sér
öll þau góðu námskeið sem í boði eru hér á landi í kringum
við skipti og útflutning fyrir frumkvöðla. Þar var hún látin gera við
skiptaáætlun og í kjölfarið kom í ljós hvort hugmynd hennar um
framleiðslu á leðurvörum var raunhæf eða ekki. Hugmyndin
var komin – Gyðja Collection; skór, töskur og aðrir fylgihlutir.
„Ég fór strax að huga að útflutningi og fór í verkefni hjá
Út flutningsráði sem heitir Útflutningsaukning og hagvöxtur.
Valin eru 8–10 fyrirtæki til að taka þátt í níu mánaða verkefni
og er farið vel í þá þætti sem snúa að sölu og markaðssetningu
er lendis. Hvert fyrirtæki fær til liðs við sig ráðgjafa sem er
með góða reynslu úr viðskiptalífinu og auk þess greina nem
endur í meistaranámi í alþjóða markaðsfræðum við Háskóla
Íslands mark aðinn og skoða hvar ákjósanlegast sé að hefjast
handa. Þetta er frábært verkefni sem hefur hjálpað mér mikið í
því sem ég er að gera. Núna er ég í framhaldsverkefni á vegum
Út flutningsráðs sem heitir Útstím en þá fær maður ráðgjafa á
mark aðssvæðinu sem fyrirtækið hugar að því að fara inn á. Ég er
líka í Viðskiptasmiðjunni hjá Klaki í Háskólanum í Reykjavík.
Það er frumkvöðlanám og þar fær maður góða kennslu í frum
kvöðlafræði. Þar starfa ég með ráðgjafa úr við skiptalífinu sem
aðstoðar mig til að skoða dæmið ýtarlega á alla kanta.“
BJARTSÝN OG JÁKVÆÐ
Sigrún Lilja stofnaði hönnunarlínuna Gyðja Collection. Skór,
töskur og aðrir fylgi hlutir í merkinu fást á heimasíðunni gydja.is
auk þess sem hönnun Sigrúnar Lilju er seld hér á landi í Steinari
Waage og í Bandaríkjunum. Þess má geta að hún á í viðræðum
við forsvarsmenn verslana í fleiri löndum og er með fólk til
að vinna fyrir sig verkefni í Los Angeles, New York og París.
„Dags daglega er ég með um 5–8 starfsmenn sem vinna fyrir
Gyðju Collection á einn eða annan hátt.“ Nýir markaðir og ný
tækifæri bíða. Sigrún Lilja var fyrr á þessu ári í viðskiptaferð um
ýmis lönd til að kynna sér nýjustu strauma og stefnur í hönn
unargeiranum og vinna í markaðssetningu. Í ferð inni fór hún á
tískuvikur í nokkrum borgum í Bandaríkjunum og sótti ýmsa
tísku viðburði. Þá voru vörur frá Gyðja Collection sýndar á
vörusýningu í Las Vegas.
„Það sem hefur skipt hvað mestu máli hjá mér er að vera
bjartsýn og jákvæð; sjá frekar verkefni en hindranir og vera
þolin móð og gefast ekki upp þó að á móti blási. Mikilvægt
er að gera sér grein fyrir að maður er að fjárfesta í fyrirtækinu
með botn lausri vinnu. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa mikla
ástríðu fyrir því sem maður gerir og einlæga trú á fyrirtækinu.“
Þegar Sigrún Lilja er spurð hvað þurfi að hafa í huga til að
fyrirtæki beri sig í dag segir hún: „Það þarf að fara mjög varlega
og hvert skref þarf að vera vel ígrundað. Ég hef farið þá leið
að hafa viðskiptamódelið létt og yfirbygginguna eins litla og
mögulegt er. Ég hef reynt að halda föstum kostnaði í lágmarki.
En auðvitað er það ekki hægt í öllum tilfellum. Ég tel þó lykil
atriði að huga vel að öllum föstum kostnaði sem lagt er í auk
þess sem markaðssetning skiptir lykilmáli.“
„Ég reyni þó að horfa á þessa tíma með jákvæðum augum. Ég ætla að nota
tímann sem mest í markaðssetningu og uppbyggingu á merkinu og svo þegar
réttist úr kútnum stefni ég á að merkið eigi greiða leið inn á markaðina.“
H Ö N N U N
SKÆÐIN SEM ÞEIRRA STRIGI
SIGRÚN LILJA GUÐJÓNSDÓTTIR
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR MYNDIR: ÝMSIR.