Frjáls verslun - 01.03.2010, Page 67
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0 67
Sigrún Lilja segir að í dag þurfi að hafa meira fyrir því en áður
að fá fjármagn og sanna sig betur; forgangsröðun hvað varðar
fjármagn skipti miklu máli og ekki sé hægt að taka eins mikla
áhættu. „Kaupendur fara varlega og því taka hlutirnir lengri tíma.
Ég reyni þó að horfa á þessa tíma með jákvæðum augum. Ég
ætla að nota tímann sem mest í mark aðssetningu og upp bygg
ingu á merkinu og svo þegar réttist úr kútnum stefni ég á að
merkið eigi greiða leið inn á markaðina.“
ANITA BRIEM, KYLIE MINOGUE OG PARIS HILTON
Hvað varðar áherslur í hönnuninni segir Sigrún Lilja: „Skemmti
legir og áberandi litir, kristallar, steinar og framandi hráefni með
elegant yfirbragði og vönduðum frágangi. Allar vörur frá Gyðju
eru handunnar og úr bestu fáanlegu hráefnum. Ég var að bæta
við í nýjustu línuna íslensku roði sem stendur svo sannarlega
fyrir sínu. Það vakti til að mynda mikla athygli á sýningu í Las
Vegas fyrir stuttu. Ég nota mikið af framandi efnum svo sem
snákaskinn og ýmis leður.“
Að sögu Sigrúnar Lilju er Gyðja Collection fáguð lúxuslína
með skemmtilegu glamúr yfirbragði.
Þær eru nokkrar stjörnunar sem hafa gengið í skóm frá Gyðja
Collection eða verið með veski og aðra aukahluti. „Aníta Briem
var fyrsta stjarnan til að ganga í skóm frá Gyðju á rauða dregl
inum og hefur hún verið mikill stuðningur við merkið. Eftir
að markaðssetning hófst erlendis fóru fleiri stjörnur að sýna
merkinu áhuga og má þar nefna Kylie Minogue og Paris Hilton.
Þetta er ákveðin viðurkenning fyrir Gyðju og getur haft mikið
að segja fyrir markaðssetninguna. Fleiri stjörnur hafa sýnt áhuga
og pantað vörur úr línunni.“
Hvað skyldi einkenna góða skó? „Gott snið, réttur halli, góður
stuðn ingur undir ilina, sterkur sóli og gott hráefni.“
Hvað ætli skór séu í huga skóhönnuðarins? „Skór fyrir mér
er fylgi hlutur sem aldrei er hægt að eiga nóg af og maður getur
safnað skóm og meira að segja sett upp á hillu til sýnis. Það er
hægt að klæðast elegant, svörtum kjól og leika sér svo að því vera
í mis munandi skóm sem búa til heildarútlitið. Það er hægt að
gera ýmsar tísku yfir lýs ingar með skóm.“
Hugrún Árnadóttir nam fatahönnun í Studio Bercot í París og útskrifaðist árið 2000; þess má geta að í náminu var lögð áhersla á heildina – fatnað og skó. Þegar heim kom opnaði hún skóverslunina Kron við Laugaveg
og fjórum árum síðar opnaði hún fataverslunina Kronkron.
Það var síðan í október árið 2008 sem hennar eigin skólína,
Kron by Kronkron, fór á markað; þess má geta að hún hannar
skóna með manninum sínum, Magna Þorsteinssyni. Skórnir
eru seldir í verslununum tveimur og auk þess á Spáni, í
Danmörku, Noregi, Hollandi, Frakklandi, Bandaríkjunum,
Kína, Taiwan, Hong Kong, Kóreu, og Japan.
Það hefur gengið vel að koma skónum á framfæri. „Það hafa
verið mjög spennandi tímar hjá okkur síðan línan kom á markað.
Auðvitað er samkeppni alltaf til staðar en í okkar tilfelli er það þá
ekki beinlínis við önnur skómerki þar sem hönnunin gerir vöruna
sér á báti. Þetta verður frekar spurning um val hvers og eins.“
Skórnir eru handgerðir á gamla mátann á Spáni og koma 40
manns að hverju skópari. Fyrir utan hönnunina þarf Hugrún
jú að fylgja framleiðslunni eftir. „Að mörgu þarf að huga ef
vel skal takast. Að sjálfsögðu þarf hönnunin að eiga sér pláss á
markaðnum, verksmiðjan þarf að vera pottþétt í sínu sambandi
við gæði framleiðslunnar og áreiðanleg þegar kemur að tíma
setningu. Svo er það sjálft söluferlið og kynn ingarstarfsemin sem
gengur allt árið en með áherslu á tveimur tímabilum sem skiptir
miklu máli og þar þarf að passa upp á að hlutirnir séu gerðir rétt.“
Hugrún sækir tískuvikur helstu stór borganna. Tískuvikan í París
er sú mikilvægasta og segist Hugrún vera ánægð með árang urinn
sem hlotist hefur af kynn ingunni þar.
SKIPULAG OG MEIRA SKIPULAG
Hvernig ætli sé fyrir hönnuð að samtvinna hönnunina og svo
rekstur fyrirtækis? „Það getur verið ansi snúið. Þegar mikið er
að gera á öllum vígstöðvum og allt þarf að gerast undireins,
þá getur stundum verið flókið að kúpla sig út og taka upp
teiknipennann. En þetta nær samt að ganga upp. Skipulag og
meira skipulag er það sem þá gildir.“
Hvert skyldi vera viðskiptalega leyndarmálið til að allt gangi
upp? „Dugnaður, einbeitni og þrautseigja er það sem þarf. Ætli
það sé ekki eins að byggja upp fyrirtæki eins og að byggja hús;
grunnurinn þarf að vera sterkur, veggirnir vel byggðir og lagnirnar
á réttum stöðum.“ Tólf manns eru í vinnu hjá Hugrúnu. „Fyrir
tækið, Kron ehf, er tíu ára og hefur tekið sín skref með hæfi
legu millibili og ég er ánægð með þróunina. Í dag er Kron með
tvær verslanir í Reykjavík, tvær netverslanir og árlega koma tvær
Kron by Kronkron skólínur. Langtímamarkmiðið er að heildar
Hugrún Árnadóttir. „Það hafa verið mjög spennandi tímar
hjá okkur síðan línan kom á markað. Auðvitað er samkeppni
alltaf til staðar en í okkar tilfelli er það þá ekki beinlínis við
önnur skómerki þar sem hönnunin gerir vöruna sér á báti.“
H Ö N N U N
HUGRÚN ÁRNADÓTTIR