Frjáls verslun - 01.03.2010, Síða 69
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0 69
segir skóhönnuðurinn sem fylgist almennt með straumum og
stefnum í tískuheiminum. „Skór eru eins og skart.“
En hvað einkennir almennt góða skó? „Það sem skiptir miklu
máli er að nota gott leður í skóna og einnig að nota leður inn
í skóna; það er orðið mikið um gerviefni sem fara mjög illa
með fætur en það er ekkert verra en að vera í skóm sem eru
úr gerviefnum. Þeir eru bæði harðir og svo svitnar fólk meira
í þeim þar sem efnið andar ekki. Umfram allt vil ég sjá fólk
í fallegum, nýpússuðum skóm; það segir allt sem segja þarf.“
Marta hannar líka herraskó. „Ég get nánast hannað herraskó
með lokuð augu,“ segir hún en um 20% af framleiðslu hennar
eru einmitt herraskór. „Þeir eru klassískari en dömuskór en
maður breytir um leður og liti miðað við hvað er í tísku hverju
sinni.“ Rauðir herraskór eru á meðal þess sem er nýtt í dag og
Marta segist selja mikið af þeim. „Þeir eru flottir. Eldrauðir.“
Svartir og brúnir skór eru þó alltaf vinsælir. Talandi um klassíska
skó: „Ég sé fyrir mér breska hefðarmenn í Mayfair. Flott
klæddir; í jakkafötum og með klút. Mér finnst Tom Ford vera
æðislega flottur. Hann er samkynhneigður en karlmannlegasti
maður sem ég hef séð. Ég myndi vilja að allir væru klæddir eins
og hann.“
Hvað leðrið varðar – sem kemur meðal annars frá Indlandi,
Ítalíu og Spáni – segir Marta að misjafnt sé hve mikið það sé
unnið. Það getur verið burstað og litað í alls kyns litum. Þá
er hægt að prenta á það hin ýmsu mynstur. Náttúrulegir litir
verða að hennar sögn vinsælir í sumar, litir sem minna á sand
og sveppi. Ljósbrúnn. Hvítur.
Hvaðan fær hún hugmyndir? „Út um allt. Frá fötum, bílum,
hurðarhúnum og hverju sem er. Draumum. Fallegum blómum.“
Marta Rúnarsdóttir vann í skóversluninni Stínu fínu við Lauga
veg fyrir um 20 árum. Í fyrra og nú fyrir stuttu afgreiddi hún í
nokkra daga í einni af verslununum sem hún rekur. „Mér fannst
æðislegt að afgreiða. Vera á gólfinu. Kúnninn, sem gengur í skón
um, er aðalmálið og það er frábært að afgreiða hann. Mað ur fær
ákveðið innsæi. Kúnnarnir senda skilaboð og ég hlusta á þá. Það
hefur hjálpað mér að skilja þá.“
Ég var ellefu ára þegar ég fékk áhuga á skóm. Ég sat inni í skápum hjá mömmu og ömmu og skoðaði flotta skótauið þeirra.“ Mörgum árum síðar hélt María Kristín Magnúsdóttir til London þar sem hún stund aði nám í
skóhönnunarskólanum Cordwainers College. „Þar var lögð
áhersla á hönnun og að læra allt í kringum hönn unarferlið en
ég lærði líka að sauma, sníða og smíða skó.“
Um skó segir hún: „Þetta er hlutur sem ég tek fyrst eftir hjá
fólki; skór eru áhugamál hjá mér og ástríða. Mér finnst gam
an að pæla í formum, alls konar leðri og síðast en ekki síst
finnst mér skór geta gert kraftaverk í að gera konur svo flottar.
Góðir skór þurfa að vera rétt settir saman og þar af leiðandi
þægilegir.“
María Kristín hefur hannað skó fyrir ýmsa aðila síðan 1999;
strigaskó, götuskó, gönguskó, barnaskó og dömuskó. Hún byrj
aði að hanna undir eigin nafni árið 2004. Það sem ein kennir
hönnun hennar hvað varðar MKM: Hún er sígild og leggur
hún áherslu á roð og skraut. „Ég hanna skó fyrir konur sem
eru þægilegir, glæsilegir og úr íslensku roði og leðri.“ Roð:
Hlýri, lax og karfi. Leður: Lamb og geitaskinn. Þá eru skórnir
fóðraðir með leðri.
María Kristín fylgist náttúrlega með straumum og stefnum í
tískunni þegar kemur að hugmyndum. „Ég vil að skórnir séu
sem einfaldastir en einfaldir hlutir eru yfirleitt flóknastir.“
HÆTTI VEGNA ÁSTANDSINS
María Kristín segir að til að fyrirtækjarekstur gangi vel þurfi að
vera með góða yfirsýn. Hvað framleiðsluna snertir segir hún
lykilatriði að vera með aðila – umboðsmann – sem fer í verk
smiðjurnar daglega til að fylgjast með, sérstaklega með gæðum.
María Kristín hefur látið hanna skóna í Kína, Portúgal og á
Spáni en hún rak í nokkur ár fyrirtækið MKM sem kom að
framleiðslunni. Þá rak hún ásamt fleiri hönnuðum verslunina
Verksmiðjuna. Þótt hún sé hætt að láta framleiða eigin
hönnun eru skórnir seldir á Íslandi, í Færeyjum og Þýskalandi.
„Ég ákvað að hætta að framleiða í bili vegna ástandsins. Báðum
verksmiðjunum, sem ég var búin að þróa heila línu með, var
lokað vegna heimsástandsins og þar af leiðandi sá ég fram á að
vera ekki með nóga vöru í versluninni. Ég tek því rólega og læt
ástandið aðeins líða hjá.“ Í dag rekur María Kristín eingöngu
heildsölu. Þegar hún er spurð hvort tækifæri felist í kreppu
segir hún: „Já, alveg hiklaust. Það gefur manni tækifæri til að
endurskoða alla hluti.“
Draumurinn: „Að hafa meiri tíma til að vera í hönnunarferlinu,
vera nær handverkinu þar sem þróunarvinnan fer fram og að
framleiða skóna í góðum verksmiðjum í Evrópu.“
María Kristín Magnúsdóttir. „Báðum verksmiðjunum,
sem ég var búin að þróa heila línu með, var lokað vegna
heimsástandsins og þar af leiðandi sá ég fram á að vera
ekki með nóga vöru í versluninni. Ég tek því rólega og læt
ástandið aðeins líða hjá.“
H Ö N N U N
MARÍA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR