Frjáls verslun - 01.04.2010, Blaðsíða 14
14 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0
ALLTAF OPIÐ ÞEGAR
ÞÚ ERT Á FERÐINNI
Opið allan sólarhringinn, Háholti Mosfellsbæ, Hringbraut,
Ártúnshöfða, Lækjargötu Hafnarfirði, Selfossi og Staðarskála.
Renndu við hvenær sem þér hentar til að fá þér bita, kaffi og
með því eða fylla á tankinn
WWW.N1.IS / Sími 440 1000
N1 verslanir: Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri, Akranesi, Ólafsvík,
Egilsstöðum, Vestmannaeyjum, Keflavík, Selfossi, Reyðarfirði og Höfn.
WWW.N1.IS / Sími 440 1000
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
Fyrst þetta ...
Guðrún Högnadóttir, fram-kvæmda stjóri Opna há -skólans við Há skólann í
Reykjavík, var valin heiðursfélagi
í Stjórnvísi á aðalfundi félagsins
á Grand hóteli nýlega. Guðrún
hefur verið lengi í Stjórnvísi sem
áður hét Gæðastjórnunarfélag
Íslands.
Stjórnvísi er stærsta stjórn-
unarfélag á Íslandi með um
800 virka félaga og mjög öflugt
tengslanet. Kjarnastarfið fer
fram í kraftmiklum faghópum
en jafnframt stendur félagið
fyrir almennum ráðstefnum og
viðburðum um stjórnun.
Á aðalfundinum fluttu
þeir Hjörleifur Pálsson, fram-
kvæmda stjóri fjármálasviðs
Össurar, og Friðrik Pálsson,
eig andi Hótels Rangár, afar
athyglis verð erindi undir yfir-
skriftinni: Hver eru fjöreggin?
Þessum erindum eru gerð skil
annars staðar í blaðinu.
Félagið veitti jafnframt ISO-
hópnum, sem er einn fag hópa
félagsins, sérstaka viður kenningu
fyrir kraftmikið og faglegt starf á
starfsárinu. Við þeirri viður kenn -
ingu tóku Sigurður M. Harðar -
son, ráðgjafi hjá Nor Con, og
Svala Rún Sigurðar dóttir, ráð-
gjafi hjá Focal.
Margrét Reynisdóttir er
formaður Stjórnvísi og Martha
Árnadóttir fram kvæmda stjóri.
Í stjórn Stjórnvísi eru auk
Mar grétar þau Bára Sigurðar-
dóttir, Sigrún Kjartans dóttir,
Guðmundur Pétursson, Gunn-
hildur Arnardóttir, Einar Skúli
Hafberg og Jón G. Hauksson.
Mikil gróska hefur verið í fél-
aginu í vetur og stóð það m.a.
að hvatningarráðstefnu sl.
haust þar sem útgangs punkt-
urinn var stjórnun í kreppu og
hvað hægt væri að gera til að ná
hjólum atvinnulífsins aftur í gang.
Í febrúar sl. veitti félagið í
fyrsta sinn stjórnunarverðlaun
Stjórnvísi en tilgangur þeirra er
að verðlauna millistjórnendur.
Stjórnunarverðlaunin voru
veitt fyrir mannauðsstjórnun,
þjón ustustjórnun og fjármála-
stjórnun.
Félagið tók einnig þátt í
Íslensku ánægjuvoginni eins
og undanfarin ellefu ár. Guðrún
Högnadóttir, sem var útnefnd
heiðursfélagi í Stjórnvísi, hefur
verið virk í félaginu í áraraðir.
Hún hefur komið víða við í
tengslum við rannsóknir og
kennslu. Þá hefur hún unnið
að margvíslegum verkefnum
fyrir fyrirtæki og stofnanir á
sviði skipulags-, mannauðs- og
gæðamála. „Í núverandi starfi
sínu sem framkvæmdastjóri
Opna háskólans við Háskólann
í Reykjavík nýtir Guðrún frum-
kvöðulshæfileika sína til að
byggja upp, breyta og bæta í
þágu betra mannlífs á öllum
sviðum – en markmið Opna
há skólans er að virkja þekkingu
til að auka samkeppnishæfni
og lífsgæði fólks með faglegu
og hagnýtu námsframboði,“
segir í rökstuðningi félagsins
um útnefningu Guðrúnar.
Stjórnvísi er félag um fram-
sækna stjórnun. Markmið þess
er að stuðla að umbótum í
stjórn un íslenskra fyrirtækja með
miðlun þekkingar og reynslu
meðal stjórnenda.
GUÐRÚN
HÖGNADÓTTIR,
HEIÐURSFÉLAGI
Í STJÓRNVÍSI
Aðalfundur Stjórnvísi:
Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans.
Bára Sigurðardóttir, mann auðs
stjóri hjá Termu og vara formaður
Stjórnvísi, var fundar stjóri á
aðalfundinum.
Sigurður M. Harðarson, ráðgjafi hjá Nor Con, og Svala Rún Sigurðar
dóttir, ráðgjafi hjá Focal, taka við viðurkenningum fyrir hönd ISOhóps
Stjórnvísi, úr hendi Mörthu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Stjórnvísi.