Frjáls verslun - 01.04.2010, Page 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0
Sú staðreynd að kanadíska orkufyrirtækið Magma Energy á nú 98,53% hlut í HS Orku hefur valdið verulegum pólitískum titringi og skerpt enn frekar þau átök sem eru um eignarhald og nýtingu orkuauðlinda landsins. Við fyrstu sýn gæti virst sem Íslendingar ættu ekki margra kosta völ þegar orkumál eru annars vegar. Flest stærstu orku fyrirtæki landsins eru gríðarlega skuldsett, lánstraust þeirra lítið og því eru þau tæpast fær
um að ráðast í þær framkvæmdir sem verkefnalausan verktakaiðnað
landsins svo sárlega vantar. Við slíkar aðstæður gæti virst áhugavert
að hleypa erlendu áhættufjármagni inn í landið, en um leið er brýnt
að sátt sé um slíkt.
Ef eitthvað er unnt að lesa úr nýafstöðnum sveitarstjórnar kosn
ingum þá virðast Reyknesingar hafa kosið að senda skýr skilaboð um
að þeir vilji halda áfram þeim tilraunum til atvinnuuppbyggingar
sem Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ, með bæjarstjórann Árna
Sigfússon í broddi fylkingar, hefur staðið fyrir. Um leið er hins vegar
forræði yfir HS Orku horfið úr hendi þeirra sveitarstjórnarmanna
og það áður en bæjarstjórinn hafði náð að efna loforð um orku sölu
samning til Norðuráls vegna Helguvíkurverkefnisins.
Ekki er víst að þeir Norðurálsmenn kunni Árna neinar sérstakar
þakkir fyrir að vera nú í þeirri stöðu að vera að semja við Ross J.
Beaty um orkuverð eftir að hafa keppt við hann um yfirráð yfir HS
Orku. Það að vera búnir að setja 15 milljarða í Helguvíkurálverið
nú þegar gæti veikt samningsstöðu Norðurálsmanna gagnvart Beaty,
sem hefur sagt umbúðalaust að orkuverð til stóriðju verði að hækka.
Skiptu um stefnu
En Beaty á einnig við margvísleg vandamál að glíma. Fyrst blasir við
að hann þarf að útskýra af hverju félagið hverfur frá þeim yfirlýsingum
sem gefnar voru fyrir ári um að vera ekki meiri hlutaeigandi að íslensku
orkufyrirtæki. Í samtali við Ásgeir Margeirsson, sem hefur verið ráðinn
forstjóri Magma hér á Íslandi, kom fram að með þessu væri verið að
bregðast við nýjum aðstæðum.
Þegar yfirlýsing var gefin um aðkomu Magma hefðu allar horfur
verið á að Geysir Green Energy (GGE) yrði meðeigandi Magma
í HS Orku og það væri ástand sem þeir hefðu vel getað sætt sig
við. Þetta var sagt á þeim tíma í því samhengi að traustur íslenskur
meirihlutaeigandi væri í HS Orku, aðili sem hefði getu og vilja til
að styðja HS Orku áfram í þeirri uppbyggingu sem fyrirhuguð væri.
Við þær aðstæður var Magma til í að vera í minnihluta sagði Ásgeir.
Fjárhagsstaða Geysis Green var hins vegar með þeim hætti að
félagið varð að selja eignir enda ljóst að Íslandsbanki getur ekki stutt
við bakið á félaginu, en hann er með GGE í fanginu sem stærsti
kröfuhafinn. Það er ekki víst að það þurfi að rifja það upp að Ásgeir
var áður forstjóri GGE en var látinn fara þaðan. Í eldri hluthafahópi
GGE má greina gagnrýni á Ásgeir og framgöngu hans með félagið
enda hafi hann borið ábyrgð á því að GGE þandist gríðarlega mikið
út og reyndist, þegar upp var staðið, allt of djarft í fjárfestingum.
Þótt flestum liggi gott orð til Ásgeirs leynir sér ekki heldur að
menn telja að hann beri verulega ábyrgð á því hvernig fór með
GGE og menn óttast að sú verði einnig raunin með Magma.
Þannig finnst mörgum erfitt að skilja af hverju verið er að sækja um
rannsóknarleyfi á afréttum Hrunamanna, allt upp undir Kerlingar
fjöll, þegar augljóst sé að andrúmsloftið er pólitískt mjög viðkvæmt.
Framganga Ásgeirs í fjölmiðlum í því máli hefur vakið athygli
en óhætt er að segja að hann hafi ekki hlíft sér í orðaskaki við um
hverfisráðherra sem sjálf hefur ekki sparað yfirlýsingarnar. Því er
reyndar haldið fram meðal þeirra sem rýna í pólitíkina í þessu máli
að VG sé tilbúið að leggja allt undir.
Þannig vakti athygli Reyknesinga að ráðherrar flokksins voru
farnir að mæta á vinnustaðafundi fyrir sveitarstjórnarkosningar til að
reyna að höggva í raðir virkjanasinna. Um svipað leyti greindi Við
skiptablaðið frá því að ýmsir ráðherrar úr röðum VG hefðu viljað
setja bráðabirgðalög á kaup Magma á þriðjungshlut í HS Orku í
ágúst á síðasta ári og freista þess þannig að stöðva málið. Þótt ekki
væri sagt í fréttinni hvaða ráðherrar voru þar á ferðinni þá er hún
einnig vísbending um að menn hika ekki við að beita fjölmiðlum
fyrir sig til að ná sínu fram.
Á sama hátt verður að skoða frétt í Ríkisútvarpinu rétt fyrir kosn
ingar um að Magma hafi haft aðgang að upplýsingum umfram aðra
bjóðendur og er þá sjálfsagt verið að vísa til tengsla Ásgeirs við GGE
en núverandi forstjóri þar, Alexander K. Guðmundsson, var áður
Samingurinn kynntur til sögunnar.
BILL GATES MEÐAL HLUTHAFA
Það er að mörgu leyti fróðlegt að skoða hluthafalista Magma
Energy. Þar er auðvitað Ross J. Beaty stærstur í gegnum
félag sitt Sitka Foundation sem á 46,4%. Félagið Springleaf
Enterprises á 7% en það heldur utan hagsmuni sádi-arabískra
fjárfesta, Alta Gas Income Fund á um 5% og Cascade
Investment á 2,5% en þar er enginn annar en sjálfur Bill Gates á
ferðinni. Aðrir stofn ana fjárfestar eru með um 34,5%. Einstaklingar
og aðrir fjárfestar eru með um 4,6%. Ekki er vitað til þess að
íslenskir fjárfestar eigi hlut í félaginu. Magma safnaði um 100
milljónum Kanadadala í hlutafjárútboði í júlí á síðasta ári.
Útgefin hlutabréf í Magma eru 248.578.000 og markaðsvirði
þess um síðustu mánaðamót var um 340 milljónir Kanadadala
eða 41 milljarður króna. Bréf félagsins hafa lækkað verulega það
sem af er þessu ári.
Forræði yfir HS Orku er horfið úr hendi
þeirra sveitarstjórnarmanna og það áður
en Árni Sigfússon hafði náð að efna loforð
um orkusölusamning til Norðuráls vegna
Helguvíkurverkefnisins.