Frjáls verslun - 01.05.2010, Page 38
38 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0
Guðný Rósa Þorvarðardóttir,
framkvæmdastjóri Parlogis
– Hvaða árangur ertu ánægðust með
innan þíns fyrirtækis?
Ég er almennt mjög ánægð með hvernig
fyrirtækið hefur þróast og náð betri
árangri á öllum sviðum undanfarin ár.
Afkoma er yfir væntingum og má nefna
að við komumst nú í fyrsta skipti í sögu
fyrirtækisins á lista yfir fyrir myndar
vinnustaði í hópi stærri fyrirtækja hjá VR.
– Finnur þú fyrir nýjum tímum og nýrri
hugsun í þjóðfélaginu eða finnst þér allt
vera að fara í sama farveg aftur?
Hugsunarhátturinn er allt annar í þjóðfél
aginu en hann var fyrir hrun, meiri var
kárni og fólk er almennt uppteknara af
öðrum hlutum en fyrir 2008. Ég held ekki
að það breytist í bráð.
– Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag;
hvert yrði þitt fyrsta verk?
Ég held reyndar að ég þyrfti lengri tíma
en einn dag til að hafa veruleg áhrif en
ef ég hefði einn dag væri sennilega skyn
samlegast að nýta hann til að hafa áhrif á
hverjir yrðu áfram við völd.
– Fjárhagsleg endurskipulagning
fyrirtækja er mál málanna. Hvernig geta
bankarnir hraðað þessu ferli?
Ég tel að bankarnir séu að vinna ágætlega
með þeim fyrirtækjum sem þurfa á endur
skipulagningu að halda. Að mínu mati
væri hins vegar eðlilegt að ríkisvaldið
kæmi betur að því að samræma leikreglur
og þá ekki síst hvað varðar skuldir
einstaklinga.
– Sérð þú einhver teikn á lofti um að það
versta sé að baki í atvinnulífinu?
Ég trúi því að við munum sigla út úr
storm inum á næstu tveimur árum.
– Er það ekki gömul klisja að það
sé munur á konum og körlum sem
stjórnendum?
Nei, það er ekki gömul klisja, það er
klárlega munur á konum og körlum. Stjórn
unarstíllinn er hins vegar fyrst og fremst
einstaklingsbundinn og ræðst m.a. af
persónuleika, reynslu og menntun óháð kyni.
– Hvaða heilræði í stjórnun heldur þú
mest upp á?
Það er einfalt heilræði sem nær til lífsins
almennt: Komdu fram við aðra eins og þú
vilt að komið sé fram við þig.
– Viðskiptalífið yrði betra ef …
… við næðum að byggja á reynslu undan
farinna ára við að koma á og viðhalda
heiðarlegri viðskiptaháttum með hæfi
legum aga og aðhaldi.
Guðný Rósa situr í stjórn GS1 á Íslandi.
„Stjórnunarstíllinn er
hins vegar fyrst og fremst
einstaklingsbundinn og
ræðst m.a. af persónuleika,
reynslu og menntun
óháð kyni.“
AFKOMAN ER YFIR VÆNTINGUM
Ágústa Johnsson,
forstjóri Hreyfingar.
Guðbjörg Alfreðsdóttir,
frkvstj. Vistor.
Hildur Hermóðsdóttir,
eigandi bókaútgáfunnar Sölku.