Frjáls verslun - 01.04.2007, Síða 116
SUMARIÐ ER TÍMINN
Gott er að láta gufuna glæða líkama og sál nýju lífi.
116 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
Hita og rakastigið í hinu klassíska sauna ræðst af hve heitir steinarnir eru og hversu miklu vatni er hellt á þá. Hitastigið getur því verið of heitt eða of þurrt og allt þar á milli. Þá
kemur SANARIUM með hina ákjósanlegu lausn. Við 60°C hitastig
og rakastig ekki meira en 55% myndast mjög ljúft og temprað
andrúmsloft til slökunar og vellíðunar.
Slökun í sanaríum er fullkomin leið til að endurhlaða lífsandann.
Einstök blanda af indælu hitaflæði eftir örvandi heita sturtu styrkir
varnarkerfi líkamans, eflir blóðflæði og kemur efnahvörfum líkamans
á annað stig. Sanaríum-bað hreinsar húðina, hleypir út svita og styrkir
hana og hleypir nýju lífi í líkama og sál.
Vífilberg í Kópavogi er umboðsaðili Klafs sem er þýskur framleið-
andi saunaklefa í mörgum útfærslum: Sanaríum Infra-rauða klefa fyrir
heimili, sumarbústaði, íþróttahús og heilsu- og líkamsræktarstöðvar.
Saunaklefarnir fást í ýmsum stærðum, allt frá 140 x 200 sm klefa og
í óreglulaga vannýtt rými.
Sanaríum er sérstök útfærsla á sauna með samfelldu gufuflæði inn
í klefann. Rafmagnskyntum gufukatli er komið fyrir utan saunaklef-
ans. Ketillinn getur tekið inn á sig heitt eða kalt vatn, t.d. affall úr
húsi eða sumarbústað sem skerpa má á þegar fólk vill fara í gufubaðið.
Gufan úr katlinum streymir undir steinana í saunaofninn og hitar
þá eins og um venjulegt sauna sé að ræða. Munurinn er að sanaríum
er með fullkomnu stjórnborði sem stjórnar bæði loftskiptum hita
og rakastigi í klefanum sem einnig er hægt að forstilla og fá klefann
tilbúinn með ákveðnu raka- og hitastigi á ákveðnum tíma; eins góðan
og hann getur orðið. Alltaf jafnan og stöðugan. Að auki má setja ilm-
efni inn á kerfið með mismunandi náttúruilmi. Annan aukabúnað
K
YN
N
IN
G
má fá, svo sem fuglasöng og vatnsnið. Litbrigði ljósa, stjörnulýsingu í
lofti, allt sem minnir á náttúrulegt umhverfi.
Vilji menn fara í venjulegt saunabað er slökkt á gufukatlinum og
saunaofninn kyntur í staðinn.
Mikil reynsla - umfangsmikill útflutningur Klafs hefur framleitt
saunaklefa í 80 ár í Schwäbish Hall í Suður-Þýskalandi. Þar starfa
nú um 600 manns við framleiðsluna og um 50% hennar eru
seld út um allan heim. Ólafur Jóhannsson hjá Vífilbergi útskýrði
klefana vel og sagði klefana smíðaða úr mörgum viðartegundum.
Hemlock-viðurinn sé einstaklega góður. Hann sé mjúkur viðkomu,
flísalaus og dökkni seint og því mjög hentugur í saunakefa. Hægt
er að velja ytra byrði eftir því sem hver vill og í samræmi við inn-
réttingarnar.
Klafs vinnur með arkitektum að hönnun baðrýma. Sauna, san-
aríum, vatns- og gufubaða, nudd- og hvíldaraðstöðu. Í Schwäbish
Hall er boðið upp á fullkomið sýningarrými með baðaðstöðu sem
gestir geta notað og fengið ráðgjöf arkitekta við innréttinguna. Héðan
hefur farið hópur fólks til að skoða hvað Klafs býður upp á. Helstu
verkefni þeirra hér eru Laugar í Laugardal í Reykjavík og Lindarskóli
í Mosfellsbæ. Fleiri verkefni eru í vinnslu. www.klafs.de
Heitir pottar Frá kanadíska framleiðandanum: Dimension spas:
www.d1.com Framleiðir mikið úrval af heitum pottum sem eru
öðruvísi, m.a. stóra tvískipta potta, eins konar mínísundlaugar þar
sem hægt er að stunda líkamsþjálfun, almenna potta með árum til
þjálfunar og fallegum upplýstum vatnsskúlptúr.
Sauna og sanaríum
í sumarbústaðinn og heimilið
Vatn og vellíðan.