Frjáls verslun - 01.04.2007, Page 126
FÓLK
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Grand Hótel
hefur verið að reisa glæsilega fjórtán
hæða viðbótarbyggingu við hót-
elið í Sigtúni. Um þessar mundir
er verið að taka nýbygginguna í
notkun. Heiðveig Jóhannsdóttir
er sölustjóri hjá Grand Hóteli og
er hennar svið að sjá um hvata-
ferðir og ráðstefnusalina: „Með
stækkuninni verður mikil breyt-
ing á rekstri hótelsins og starfi
mínu í leiðinni. Við erum að taka
í notkun 209 herbergi í viðbót við
þau 105 sem fyrir eru og þá fjölgar
einnig fundarsölum. Starfsemin í
heild eykst mikið og strax í júní er
hótelið orðið fullbókað.“
Heiðveig byrjaði fyrir nokkrum
árum hjá Reykjavik Hotels, sem
rekur Grand Hótel, Hótel Reykja-
vík og Hótel Centrum og áður en
hún flutti sig um set í Grand
Hótel var hún móttökustjóri
á Hótel Centrum í Aðalstræti.
„Fyrir um það bil einu ári síðan
bauðst mér starf sem sölustjóri á
Grand Hóteli og hef verið í því
starfi síðan. Síðustu mánuðina
hefur vinnan hjá mér að mestu
gengið út á að kynna hvað koma
skal varðandi hótelið og það getur
stundum verið erfitt að koma því
á framfæri sem ekki er ennþá til,
en það gekk allt framar vonum.“
Auk þess að hafa verið á kafi í
markaðssetningu á hótelinu hefur
mikið verið að gerast í einkalífinu
hjá Heiðveigu. Hún gifti sig 5.
maí Guðmundi Helga Finnbjarn-
arsyni, sölumanni hjá Toyota,
og eru þau nýkomin úr brúð-
kaupsferð. „Við skelltum okkur
til Spánar í tvær vikur, höfðum
fundið stað á Costa Del Sol þar
sem við gátum verið í ró og næði
og slakað á og hlaðið batteríin
fyrir komandi törn í vinnunni.
Það verður því ekki mikið um frí
í sumar hjá okkur, ætlum okkur
þó að dvelja í sumarbústað í viku
og fara af og til langar helgar í
ferðalög innlands, en við höfum
bæði gaman af að ferðast og þá
helst á eigin vegum, svo erum við
á hjóli og línuskautum. Ég bý á
Nesveginum og er stutt að fara á
göngustíginn við Ægissíðu.“
Heiðveig fór fljótt út á vinnu-
markaðinn. „Segja má að ég hafi
að mestu farið sjálfsmenntunar-
leiðina í það starf sem ég er í
nú. Þegar ég hafði lokið grunn-
skólanámi fór ég til systur minnar
í Noregi og dvaldi þar í hálft ár.
Þegar ég kom heim skráði ég mig
í ferðamálaskóla sem að ég best
veit er löngu hættur, og þaðan lá
leið mín til Bandaríkjanna í eitt
ár þar sem ég var au pair. Seinna
fór ég aftur til Bandaríkjanna
með þáverandi sambýlismanni
mínum, sem var í námi, og var
þar í fjögur ár. Þar stofnuðum
við meðal annars ferðaskrifstofu.
Í millitíðinni hafði ég farið í Við-
skiptaskóla Nýherja sem þá hét og
tók bókhaldsnám ásamt því að ég
vann í prentsmiðju. Þegar ég kom
ein heim frá Bandaríkjunum fór
ég að vinna hjá Reykjavik Hot-
els, byrjaði á Grand Hóteli og er
komin þangað aftur í spennandi
og skemmtilegt starf.“
sölustjóri, Grand Hóteli
HEIÐVEIG JÓHANNSDÓTTIR
Heiðveig
Jóhannsdóttir. „Við
skelltum okkur í
brúðkaupsferð til
Spánar í tvær vikur,
höfðum fundið stað
á Costa Del Sol þar
sem við gátum verið í
ró og næði.“
TEXTI:
HILMAR
KARLSSON
MYNDIR:
GEIR ÓLAFSSON
126 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
Nafn: Heiðveig Jóhannsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
27. október, 1969.
Foreldrar: Jóhann Sófusson
og Valgerður Jakobsdóttir.
Maki: Guðmundur Helgi
Finnbjörnsson.
Börn: Engin.