Frjáls verslun - 01.07.2008, Blaðsíða 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8
Sparisjóður Mýrasýslu.
6. ágúst
Árvakur og 365 skoða samstarf
Ari Edwald,
forstjóri 365.
Það eru ekki gull og grænir skógar
í rekstri stærstu fjölmiðla lands-
ins um þessar mundir. Þeir búa
þó að því að vera í eigu stærstu
viðskiptavelda landsins – auk þess
sem rÚV er í eigu ríkisins.
engu að síður vakti hún athygli
fréttin sem Fréttablaðið birti
þennan dag og var höfð eftir ara
edwald, forstjóra 365 sem gefur út
blaðið, að viðræður væru í gangi á
milli 365 og Árvakurs um samstarf.
„Það eru erfiðar aðstæður á
prentmarkaðnum að ef samstarf
ætti einhvern tíma að ganga, þá
væri það núna,“ sagði ari og sagði
að verið væri að skoða samstarf
varðandi framleiðslu og dreifingu
á dagblöðum. Pappír hefði stór-
hækkað í verði, sem og dreifingin.
D A G B Ó K I N
texti: jón g. Hauksson • myndir: geir ólaFsson o.fl.
7. ágúst
sparisjóðirnir;
mál málanna
Staða sparisjóðanna hefur
verið mál málanna í íslensku
viðskiptalífi seinni part sum-
ars – og er fjallað um það
annars staðar hér í blaðinu.
Helstu breytingarnar eru þær að
Kaupþing hefur runnið saman
við Spron og þá hefur Kaupþing
eignast ráðandi hlut í Sparisjóði
mýrasýslu eftir að sá sparisjóður
lenti í miklum hremmingum,
m.a. vegna hlutfallslega stórrar
stöðutöku í exista, sem og lána
til helstu stjórnenda icebank.
Þá er VBS fjárfestingarbanki og
Saga Capital í formlegum við-
ræðum um sameiningu í einn
stóran banka.
7. ágúst
krosseignatengsl
sjást á nýjan leik
Krosseignatengsl eru sýnileg á
nýjan leik eftir að Kaupþing rann
saman við Spron og eignaðist
sömuleiðis 70% í Sparisjóði
mýrasýslu. morgunblaðið fjallaði
um málið þennan dag.
Krosseignatengslin stafa af
því að Kaupþing er í gegnum
sparisjóðina orðinn meirihluta-
eigandi í félaginu Kistu sem
aftur er næststærsti hluthafi
exista. Kista á 7,17% hlut í
exista. að auki er 2,4% hlutafjár
í exista skráð á Spron. Fyrir átti
Kaupþing 2,4% í exista.
Samkvæmt þessu ræður
Kaupþing yfir 12% hlut í exista.
en í þessari upptalningu er ekki
meðtalin eign hlutabréfasjóða
Kaupþings og Frjálsa lífeyris-
sjóðsins í exista. Og þá koma
krosseignatengslin; exista er
stærsti hluthafi Kaupþings með
24,7% hlut.
Íslensk eymd mælist 16,7%,
sagði í Morgunblaðinu.
9. ágúst
Íslensk eymd
mælist 16,7%
Það var laugardagsmorgunn og
auðvitað varð manni brugðið við
þessa frétt í morgunblaðinu sem
bar fyrirsögnina: Íslensk eymd
mælist 16,7%. Ég segi ekki að
helgin hafi verið ónýt en allt er
nú farið að mæla.
Og þessi nýja vísitala heitir
hinu athyglisverða nafni:
Íslenska eymdarvísitalan. Hún
mældist þennan dag 16,7%.
mælikvarðinn á eymdina er fund-
inn út með því að leggja saman
verðbólgustigið upp á 13,6% og
atvinnuleysi upp á 3,1%.
Síðan hefur verðbólgan mælst
yfir 14% þannig að eymdarvísi-
talan hefur lyft sér vel yfir 17%.
Fram kom í fréttinni að af
þeim fimmtíu löndum sem mæld
eru telst eymdin minnst hjá
frændþjóð vorri norðmönnum,
eða 5,2%. Þar er verðbólgan
3,4% og atvinnuleysi 1,8%.
mesta eymdin mælist hins
vegar í Venesúela, 41,3%. Þar
er 33,7% verðbólga og 7,6%
atvinnuleysi. afríka mun ekki
vera tekin með í þessum mæl-
ingum.
13. ágúst
sólgleraugun
tekin niður
Íslendingar hafa lagt frá sér sól-
gleraugun. Fram kom í fréttum
þennan dag að landinn hefur
aldrei verið eins svartsýnn frá
því að mælingar á væntingavísi-
tölu Gallups hófust árið 2001.
Væntingavísitalan hefur
lækkað frá áramótum og farið
úr 116 stigum í 61 stig á
þeim tíma. Þegar vísitalan er
undir 100 eru fleiri neytendur
svartsýnir en bjartsýnir í garð
efnahags- og atvinnuástands.
Bent er á að heimilin hafi
brugðist við breytingum á
efnahagsumhverfinu með því að
draga úr neyslu sinni.