Frjáls verslun - 01.07.2008, Blaðsíða 47
DAGBÓK I N
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8 47
15. ágúst
Warren Buffett
fjárfestir í orku
og samgöngum
Warren Buffet,
einn þekkt-
asti fjárfestir
heims, er vin-
sælt fréttaefni.
morgunblaðið
sagði frá því
þennan dag að
hann hefði til-
kynnt opinberlega umfangsmikil
kaup í orku- og samgöngufyrir-
tækjum í Bandaríkjunum.
eignarhaldsfélag Warren
Buffets, Berkeley Hathaway, átti í
lok júní 3,2 milljónir hluta í orku-
heildsalanum nrG energy. Þetta
er nýtt félag í eignasafni hans.
Buffet hefur einnig tvöfaldað
hlut sinn í járnbrautarisanum
union Pacific Group.
Þá kom fram í frétt morgun-
blaðsins að Berkeley Hathaway
hefði fengið leyfi til að halda
leyndri á þessum ársfjórðungi
stærð hlutar síns í olíuhreins-
unarfyrirtækinu ConocoPhilips.
19. ágúst
sérkennileg umræða
um fjárfestingu
Björgólfs
Kvikmyndir heilla. Það sýndi
sú ótrúlega umræða sem varð
um það hvort Björgólfur thor
Björgólfsson ætti eftir að tapa
á 500 milljóna króna fjárfest-
ingu í bandarísku kvikmyndinni
the Perfect Holiday. umfang
fjárfestingarinnar var a.m.k. ekki
af þeirri stærð að hún gæfi til-
efni til svo mikilla vangavelta.
Hvað þá þegar fréttin gekk út á
Jón Ólafsson, einn kunn-
asti athafnamaður lands-
ins, var í viðtali við
Kolbrúnu Bergþórsdóttur í
morgunblaðinu þennan dag –
en í viðtalinu ræðir Jón mjög
opinskátt um trúmál og trú
sína á Guð.
Jón hefur verið í eldlínunni
vegna sölu á vatni og hefur
hann reist fullkomna vatns-
verksmiðju í ölfusinu. en fyrir
fjórum árum hóf Jón rekstur
vatnsverksmiðju í Þorlákshöfn.
Vatnið, sem selt er undir
vörumerkinu icelandic Glacial,
hefur fengið fjölda alþjóðlegra
viðurkenninga sem hágæðavara
og það er nú þegar á markaði
í Kanada, mexíkó, Hollandi,
Þýskalandi, Frakklandi,
Grikklandi og englandi. Jón
segir í viðtalinu að vatn sé fljót-
andi gull.
Kolbrún spurði Jón að því
hvers vegna hann hefði selt
fjölmiðlaveldi sitt á Íslandi – en
það var orðið mjög skuldsett.
„Ég var búinn að fá nóg,“
svarar Jón. „Ég fann enga lífs-
fyllingu. Þetta var eilíf barátta,
stöðug átök og það var alltaf
verið að leggja stein í götu fyr-
irtækisins. Ég uppgötvaði ekki
fyrr en hálfu ári síðar hvað ég
var orðinn þrekaður. Ég sé ekki
eftir að hafa snúið við blaðinu.
Ég lifi betra lífi en áður, er
ánægðari með sjálfan mig og
allt sem er í kringum mig. Ég er
að leita inn á við. Ég hef tekið
mikinn þátt í veraldlegu amstri
og nú vil ég eyða meiri tíma en
fyrr í það andlega.“
Kolbrún: Ertu trúaður?
„Ég bý að því að vera alinn upp
í trú á Guð. Ég ólst upp hjá
ömmu minni sem var dásamleg
kona. Hún var mjög trúuð og ég
segi stundum að hún hafi haft
beint samband við almættið.
Hún gat sagt fyrir hverjir væru
að koma í heimsókn og rak
mig oft til dyra til að opna fyrir
þeim, en svo komu gestirnir
ekki fyrr en nokkrum mínútum
seinna. Hún gat farið úr lík-
amanum og í skoðunarferðir
í aðra heima. Í æsku fór ég
í sunnudagaskóla til séra
Björns Jónssonar. Hann hafði
frábæran talanda og sögurnar
sem hann fór með úr Biblíunni
urðu ljóslifandi fyrir mér. Ég,
með mitt auðuga ímyndunarafl,
var staddur mitt í atburðarás-
inni. Þetta var eins og að fara
í bíó.
Ég hef séð og reynt að and-
legur máttur er til og það er
fallegt og gott að vita af því. Við
erum öll hluti af almættinu. Ég
er maður sem fer alltaf með
bænirnar sínar. Lífið er dapurt
án Guðs.“
Kolbrún: Margir sjá þig örugg-
lega ekki sem trúaðan mann.
„menn sjá það sem þeir vilja
sjá. Þeir sem hafa sterkustu
skoðanirnar á mér eru gjarnan
þeir sem þekkja mig minnst.“
Kolbrún: Ekki segja mér að
peningar og auður skipti þig
ekki máli.
„Ég hef mikinn metnað til þess
að ná árangri í viðfangsefnum
mínum og viðskiptum. Peningar
eru drifkraftur í þeim efnum
og skipta þar af leiðandi miklu
máli. en það skiptir líka máli að
láta gott af sér leiða og skila
verðmætum til samfélagsins og
samferðamanna eftir því sem
unnt er. Vatnsævintýri okkar
feðganna er að mínu viti líklegt
til að geta í senn skilað okkur
viðunandi hagnaði og skapað
um leið ýmis tækifæri til að
gera gagn bæði hérlendis og
erlendis,“ segir Jón Ólafsson
m.a. í þessu yfirgripsmikla við-
tali morgunblaðsins við hann.
9. ágúst
„LÍfið er
dapurt
Án guðs“ Jón Ólafsson.
Warren Buffet. lj
ó
s
m
. m
B
l.