Frjáls verslun - 01.07.2008, Blaðsíða 89
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 8 89
haustið er tíminn
Háskólinn á Bifröst hentar öllum þeim sem vilja ná sam-
keppnisforskoti á markaðnum. Umgjörð staðarins, gott
félagslíf og aðstaða til líkamsræktar hentar öllum háskóla-
nemum vel.
Markviss undirbúningur fyrir atvinnulífið
Að sögn Reynis Kristinssonar, deildarforseta viðskiptadeildar,
leggur Háskólinn á Bifröst áherslu á sveigjanleika, alþjóðleg
tengsl og gæði menntunar.
,,Háskólinn á Bifröst á að baki 90 ára sögu í að mennta for-
ystufólk sem hefur verið leiðandi í íslensku atvinnulífi, þ.á m.
ráðherrar, forstjórar og almennir stjórnendur.
Skólinn hefur að markmiði að undirbúa nemendur sína undir
ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf í innlendu og alþjóðlegu
samkeppnisumhverfi með alhliða háskólastarfsemi á sviði félags-
vísinda. Skólinn býður ungu fólki upp á grunnnám á sviði við-
skiptafræði, lögfræði og heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði
sem lýkur með BS- eða BA-prófi. Einnig er boðið upp á meistara-
nám í lögfræði og menningarstjórnun og í viðskiptadeild meist-
aranám í alþjóðlegum viðskiptum, fjármálum og bankastarfsemi
og stjórnun heilbrigðisþjónustu.“
Nú ert þú deildarforseti viðskiptadeildar – hver er
sérstaða hennar?
,,Sérstaðan er sveigjanleiki í hagnýtu og spennandi námi sem
gerir miklar kröfur og skilar af sér frábærum einstaklingum
til atvinnulífsins.
Viðskiptadeildin sækir grunn sinn til upphafs skólans og hefur
þar þróast sú kennslufræðilega sérstaða sem felst í virku hópastarfi
þar sem nemendur eru agaðir í samskiptum jafnframt því sem
frumkvæði nemandans sem einstaklings er virkjað og ýtt er undir
skapandi og gagnrýna hugsun.“ Nemendur vinna að raunhæfum
verkefnum hjá fyrirtækjum og stofnunum, jafnframt því sem
farið er í heimsóknir til fyrirtækja og fulltrúar fyrirtækja halda
fyrirlestra á málstofum og í námskeiðum.
Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi með kennslu í viðskipta-
fræði á ensku. Við hvetjum alla þá sem eru á vinnumarkaðinum
og hafa ekki lokið háskólanámi að kynna sér þetta einstaka
tækifæri.“
„Nemendur vinna að raunhæfum
verkefnum hjá fyrirtækjum og stofnunum,
jafnframt því sem farið er í heimsóknir
til fyrirtækja og fulltrúar fyrirtækja halda
fyrirlestra á málstofum og í námskeiðum.
Tengingin við atvinnulífið er mjög mikil.“
Háskólinn á Bifröst
Menntun forystufólks fyrir
atvinnulíf og samfélag í 90 ár
Reynir Kristinsson, deildarforseti viðskiptadeildar.