Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 51

Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 51
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 51 m a n n a r á ð n i n g a r Það er ljóst að fyrirtæki vilja einstaklinga sem geta gert það sem er krafist af þeim, sýni þá hegðun sem skilar árangri (hæfni) og lifa eftir gildum sem samræmast menningu fyrirtækisins. Ef það tekst að finna þessa einstaklinga þá er hagurinn ekki eingöngu atvinnuveitandans heldur mun fólkinu líða vel í starfi. Öll fyrirtæki vilja starfsfólk sem sýnir frumkvæði, er gott í mann- legum samskiptum og hefur þjónustulund. Spurningin er hvernig eigi að skilgreina hvað er átt við með þessu, hvernig á að meta þessa þætti og hvernig á að þróa þá. Fyrsta skrefið er að átta sig á því að það er hægt að meta þessa þætti og nú er möguleiki til þess þar sem mikið af frábæru fólki sækist eftir hverri auglýstri stöðu. rannsóknir hafa sýnt að þeir starfsmenn sem eru í lægstu 15% séu virði launanna sinna, hæstu 15% séu virði 2,5x launanna sinna og þau 70% sem eru í miðjunni séu virði um það bil 2x launanna sinna. Eitt besta ráðið í stjórnun er að vanda val á starfsmönnum. Það sparar mikinn tíma síðar meir og kemur í veg fyrir árekstra. Vandið valið og vitið hvers konar starfsmann þið sækist eftir. Greinarhöfundur, Hinrik Sigurður Jóhannesson, ráðgjafi hjá Capacent. 1 Burke, Eugene, The return on investment from personality testing, Business Issues, númer 7 Atvinnuveitendur eru nú komnir í þá stöðu að geta valið úr stórum hópi fólks sem hefur til að bera getuna og hæfnina til að skila af sér mjög vel unnu verki. Það er þó líklegt að það muni taka stjórnendur tíma að átta sig á þessari breytingu og byrja að nýta sér þá möguleika sem nú opnast. Til að byrja þetta ferli er mikilvægt að forráðamenn fyrirtækja spyrji ákveðinna lykilspurn- inga áður en lagt er af stað í nýráðningar, uppsagnir eða end- urskipulagningu. Hef ég skýra sýn á hvert starf?• Hlutverk þess?• Afurðir (KPI´s)?• Ábyrgð?• Þekki ég þær hæfnikröfur sem starfið gerir til þeirra ein-• staklinga sem sinna störfunum? Hef ég safnað að mér fólki sem fellur að gildum þeirrar • menningar sem ég vil byggja upp? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðsheildarinnar, starfs-• mannahópsins? Gerir liðið sér grein fyrir þessu?• Get ég valið inn einstaklinga sem bæta hina upp?• Hef ég réttan einstakling á réttum stað eða myndu • ákveðnar hrókeringar á hlutverkum og ábyrgð skila bættum árangri? Með öðrum orðum; Hef ég hinn eina sanna í hverju starfi?• nokkrar lykilspurningar

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.