Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 143

Frjáls verslun - 01.09.2009, Blaðsíða 143
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 143 Alvarlegur maður Bræðurnir Ethan og Joel Coen sitja ekki auðum höndum og eru mættir með enn eina myndina, A Serious Man. Miðað við síðustu afrek þeirra, óskarsverðlauna- myndina No Country For Old Men og Burn After Reading, þá hefðu þeir sjálfsagt ekki verið í vandræðum með að fá þekkta og vinsæla leikara í helstu hlutverkin, en þeir bræður fara aðra leið og eru öll hlutverkin í myndinni skipuð nánast óþekktum leik- urum. A Serious Man er eins og flestar myndir Coen-bræðra svört kómedía. Fjallar hún um miðaldra kennara sem horfir upp á hjónaband sitt leysast upp vegna þess að klaufskur og óhæfur bróðir hans vill ekki flytja af heimili hans. Í aðal- hlutverkinu er Michael Stuhlbarg, en hann hefur getið sér gott orð á Broadway og leikið gestahlutverk í nokkrum sjónvarps- seríum. A Serious Man verður frumsýnd hér á landi í nóvember. Michael Stuhlbarg í hlutverki eiginmanns sem þarf að taka erfiðar ákvarðanir til að hjónabandið haldist. Einkalíf pippu Lee Eins og fram kemur í greininni um Nine þá leikur Daniel Day-Lewis aðalhlut- verkið og bíða margir spenntir eftir að sjá frammistöðu hans. Eiginkona hans, Rebecca Miller, er einnig með nýja kvik- mynd í næsta mánuði, The Private Lives of Pippa Lee. Í myndinni leikur Robin Wright Penn mun yngri eiginkonu manns sem kominn er á eftirlaun. Hún kann illa við hlutskipti sitt þegar þau flytja í hverfi fyrir eldri borgara. Alan Arkin leikur eiginmann hennar. Nokkrir þekktir leik- arar koma fram í minni hlutverkum, m.a. Winona Ryder, Julianne Moore, Keanu Reeves, Monica Bellucci og Maria Bello. Rebecca Miller, sem er dóttir leikskálds- ins Arthurs Miller, skrifar handritið eftir eigin skáldsögu og leikstýrir myndinni. Hún hefur áður leikstýrt tveimur kvik- myndum, Personal Velocity: Three Portraits og The Ballad of Jack and Rose og lék Daniel Day-Lewis annað aðalhlutverkið í þeirri síðarnefndu. Robin Wright Penn og Keanu Reeves. Í loftinu Jason Reitman, sem gerði hina eftirminni- legu kvikmynd Juno, frumsýnir nýja mynd í byrjun desember, nefnist hún Up In the Air. Í henni leikur George Clooney mann sem er sérfræðingur í að lækka kostnað hjá fyrirtækjum. Hann er því mikið á ferð- inni og helsta tilhlökkunarefni hans er að ná þeim áfanga að hafa ferðast í flugvél 10 milljón mílur. Nokkuð dregur úr til- hlökkun hans þegar hann kynnist konu sem er álíka mikið á ferðinni og hann. Á móti kemur að nú telur hann sig hafa fundið réttu konuna fyrir sig. Mótleikarar Clooneys eru Vera Farmiga, Jason Bateman og Anna Kendricks. Up in the Air var forsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto og hlaut góða dóma og er búist við að hún nái miklum vinsældum. George Clooney í hlutverki ferðalangsins í Up in the Air. way og þar á hann að baki margra sigra. Þegar Marshall hafði lokið BA-gráðu í leikhúsfræðum við háskóla í heimborg sinni, Pittsburgh, flutti hann til New York þar sem hann lét fljótt til sín taka á söngleikjasviðinu. Leikstjóraferill hans byrjaði 1998 þegar hann ásamt Sam Mendes setti upp Cabaret á Broadway. Sýning þeirra félaga fékk nánast öll verðlaun sem hægt var að fá og varð óhemju vinsæl. Rob Marshall kom ekki alveg óundirbúinn í kvikmyndirnar því áður en hann gerði Chicago hafði hann leikstýrt sjónvarpskvikmynd eftir söngleiknum Annie (1999) og var hún valin sjónvarpsmynd ársins. Þegar kom að Chicago var einnig í myndinni hjá Rob Marshall að leikstýra Rent, en hann valdi Chicago frekar. Rob Marshall er samkynhneigður og er sam- býlismaður hans til margra ára danshöfundurinn John DeLuca sem er ekki síður virtur á Broad- way en Marshall. Næsta kvikmynd Marshalls er að öllum líkindum fjórða myndin í seríunni um sjóræningjana á Karabíska hafinu, Pirates of the Caribbean: On Strangers Tide. Ekki er komið grænt ljós á myndina, en fyrst Johnny Depp hefur áhuga á að leika Jack Sparrow í fjórða sinn ætti fyrirstaðan ekki að vera mikil. Ef einhverjir hafa velt því fyrir sér af hverju söngleikurinn var látinn heita Nine þá er ástæðan sú að þegar Federico Fellini var spurður af hverju mynd hans héti 8½ þá svaraði hann því til að hann væri búinn að leikstýra sex kvikmyndum, tveimur stuttmyndum og hefði verið meðleik- stjóri að einni kvikmynd. Maury Yeston og Arthur Copit fannst því tilvalið að bæta hálfum við sem væri tilvísun í tónlistina. KVIKMYNDAFRÉTTIR Guido Contini (Daniel Day- Lewis) og konurnar í lífi hans sem leiknar eru af Judi Dench, Penelope Cruz, Marion Cotillard, Sophia Loren, Fergie, Nicole Kidman og Kate Hudson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.