Frjáls verslun - 01.11.2007, Page 64
64 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
4. janúar
Lögreglustjóri
markaðssinnaður
Nýr lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu,
Stefán Eiríksson, fór leið
markaðsmanna þegar hann
tók við embætti og náði svo
sannarlega athygli fjölmiðla.
Herferð hans gengur út á að
gera lögregluna sýnilegri.
Með það markmið í huga tók
hann við merktum lögreglubíl
til afnota en áður hafa
lögreglustjórar ekið um á
ómerktum bílum.
Þá fór Stefán í fræga
gönguferð um Laugaveginn og
tók menn tali og loks hefur
lögregluembættið auglýst
vefsíðu sína til að vera í nánari
tengslum við borgarana.
Eftir þetta finnst flestum
sem embættið sé nú líkara
fyrirtæki í aðgerðum sínum en
hefðbundinni stofnun – og að
Stefán sé eins konar forstjóri
lögreglunnar.
Stefán Eiríksson.
Markaðssinnaður lögreglustjóri.
D A G B Ó K I N
TExTi: Jón G. Hauksson • MyNdir: Geir ólafsson o.fl.
18. janúar
Úrvalsvísitalan
í um 8 þúsund
stigum í árslok?
Í sérriti Kaupþings um
innlendan hlutabréfamarkað,
sem kynnt var þennan dag, var
sagt frá því að Greiningardeild
Kaupþings spáði því að
úrvalsvísitalan myndi enda árið
í um 8 þúsund stigum.
Þá kom fram að Greiningar-
deild Kaupþings eigi von
á töluverðum sveiflum á
markaðnum á árinu – en að
árið muni engu að síður enda
í um 8 þúsund stigum. Stóra
spurningin er hvort gengi
krónunnar eigi eftir að breytast
og hvort þær breytingar smitist
út á hlutabréfamarkaðinn.
Big Mac-vísitalan mælir verð á
Big Mac víða um heim.
3. febrúar
Big Mac-vísitalan
Íslenska krónan er ofmetnasta
myntin í heimi samkvæmt Big
Mac-vísitölunni sem tímaritið
Economist tekur saman.
Vísitalan mælir verð á Big
Mac-hamborgum víða um heim
og samkvæmt henni er gengi
íslensku krónunnar 131%
hærra en það ætti að vera.
Economist segir að miðað
30. janúar
Hagnaðurinn 206 MiLLjarðar
Ævintýrin gerast enn. Hagnaður
bankanna fjögurra var 209
milljarðar króna á síðasta ári – eftir
skatta. Samanlagður hagnaður
viðskiptabankanna þriggja,
Kaupþings, Landsbankans og
Glitnis nam 164 milljörðum króna.
Hagnaður Straums-Burðaráss var
42 milljarðar eftir skatta. Það þarf
ekki mörg orð um þessa afkomu.
Hún er met og af þeim toga að fyrir
fáum árum hefði engan órað fyrir
svona tölu.
Hagnaður viðskiptabankanna
þriggja jókst um 70,5 milljarða
króna á milli ára en árið 2005
nam samanlagður hagnaður
bankanna 93,2 milljörðum króna
og þótti sumum sem það met
yrði seint slegið. Heildareignir
viðskiptabankanna þriggja eru
8.474 milljarðar króna.
Hagnaður Kaupþings nam
um 86 milljörðum kr. 2006
samanborið við 49 milljarða árið
2005. Hagnaður Glitnis nam
um 38 milljörðum kr. árið 2006
samanborið við um 19 milljarða
árið 2005 og Landsbankinn
skilaði 40 milljörðum kr. í hagnað
samanborið við 25 milljarða
árið 2005. Hagnaður Straums-
Burðaráss nam um 42 milljörðum
kr. á síðasta ári.
G L u G G a ð Í d a G B Æ K u r á r S i N S 2 0 0 7
Hreiðar Már Sigurðsson.
Hagnaður Kaupþings:
86 milljarðar kr.
Friðrik Jóhannsson.
Hagnaður Straums-
Burðaráss: 42 milljarðar kr.
Bjarni Ármannsson.
Hagnaður Glitnis:
38 milljarðar kr.
Halldór Kristjánsson.
Hagnaður Landsbankans:
40 milljarðar kr.