Franskir dagar - 01.07.2004, Blaðsíða 11
Gönguleiðir á
Suðurfjörðum
m
Horft upp með Skjólgilsá frá göngubrú
skammt innan viö bilaverkstœði Bjarna á
Ljósalandi. Gönguleiðin, sem merkt hefur
verið, liggur upp utan við gilið (hœgra
megin á myndinni). Albert Eiriksson tók
myndirnar.
Fyrir nokkrum árum tók til starfa á
Suðurfjöröum hópur áhugafólks
um gönguleiðir og útivist. Gaf hann
út á árinu 2001 kort yfir helstu
gönguleiðir á svæðinu frá Fá-
skrúðsfirði til Berufjarðar. Kortið á
aö vera aðgengilegt ferðamönnum
og er víða til sölu og að sjálfsögðu
er hægt að kaupa það á Frönskum
dögum á Fáskrúðsfirði. Hægt er að
skoöa kortiö á heimasiðu Austur-
byggðar. Einnig merkti hópurinn
nokkrar leiðir sem áður fyrr voru
farnar milli byggða. Hófst sú vinna
árið 1999. Þessar leiðir eru:
1. Stuðlaheiði, frá Dölum í Fáskrúðsfirði að Stuðlum í Reyðarfiröi.
2. Reindalsheiði, frá Tungu í Fáskrúðsfirði að Gilsá í Breiðdal.
3. Víkurheiði, frá Vikurgerði í Fáskrúðsfirði til Stöðvarfjarðar.
4. Berufjarðarskarð, frá bænum Berufirði aö Flögu í Breiðdal.
5. Tvær stuttar gönguleiðir voru merktar í vor. Önnur þeirra liggur af
Ölfusmel, upp fyrir Svartagil, fallegt og stórbrotiö gil sunnan
Fáskrúðsfjarðar, gegnt þorpinu.
6. Hin leiðin liggurfrá Ljósalandi, upp með Skjólgilsá. Þarfellur
straumhörð áin í mörgum, snotrum fossum niður bratta hlíðina.
Lýsingu á tveimur síðustu leiðunum er hægt að lesa á vefnum
www ganga.is.
Myndin er tekin inni í Svartagili í skínandi, björtu veðri 7.júlí 2004. Króklœkur rennur um
gilið og fellur til sjávarskammt utan viö eyðibýlið Sœvarenda. Auövelt er að ganga inn í
gilið að neöanveröu en þverhniptir hamrar umlykja það að ööru leyti. Gangi menn eftir
hinni merktu leið er farið upp utan við gilið og komið niöur innan við það.
í maí síðastliðnum var svo stofnaö félag áhugafólks úr Fáskrúðsfirði,
Stöðvarfirði og Breiðdal, Göngufélag Suðurfjarða. Formaður þess er
Svandís Ingólfsdóttir á Breiðdalsvík. Félagið hyggst halda við stikum á
þessum merktu leiðum og merkja nýjar auk þess sem þaö mun skipu-
leggja gönguferðir fyrir félagsmenn og aðra sem vilja slást í hópinn.
Minningarhlaup um
Berg Hallgrímsson
Stofnað var til minningarhlaupsins um Berg Hallgrímsson á Frönskum
dögum sumarið 2000 með því að hjónin Guðmundur, bróðir Bergs, og
Dóra Gunnarsdóttir gáfu bikar sem keppt skyldi um árlega. Fyrstu tvö
árin kepptu allir í einum flokki en árið 2002 gaf fjölskylda Bergs ann-
an bikar til keppninnar. Hefur verið keppt um hann í kvennaflokki síð-
ustu tvö ár en um eldri bikarinn í karlaflokki. Er hér um farandbikara
að ræða. Þrírfyrstu keppendurfá verðlaunapeninga. Engin aldurstak-
mörk eru í hlaupinu. Þarna geta því ungir og gamlir hlaupið hlið við
hlið og hafa reyndar gert það, bæði sjálfum sér og áhorfendum til á-
nægju. Ungmennafélagið Leiknir hefur séð um framkvæmd hlaupsins
öll árin.
Minningarhlaupið er haldið á laugardag og hefst kl. 11:00. Skráning
keppenda byrjar 15 minútum fyrr, við Reykholt - Skólaveg 77. Þar eru
hlauparar ræstir.
Konur hlaupa 1,7 km vegalengd, inn allan Skólaveg, síöan út þjóð-
veginn og Búðaveg, allt að minnisvarðanum um Berg Hallgrímsson við
Garðsá, fyrrum heimili hans. Þar lýkur hlaupinu. Karlar hlaupa 2,8 km
vegalengd, sömu leið og konurnar aö því viðbættu að þeir hlaupa hring
umhverfis lónið innan við þorpið (Ósinn).
Aö loknu Minningarhlaupi um Berg Hallgrímsson sumariö 2003. Sigurvegari i karlaflokki,
Bergur Hallgrímsson yngri, er lengst til vinstri og heldur á bikarnum. Meö honum á
myndinni eru systkin og frændsystkin hans. Myndin er tekin viö minnisvaröann utan viö
Garösá sem getið er um í pistlinum. Mynd:Bjarni Bergsson.
Þessir hlauparar hafa sigrað i hlaupinu til þessa:
Ar Karlaflokkur Kvennaflokkur
2000 Pétur HaukurJóhannesson
2001 Bergur Hallgrímsson
2002 Unnar Daði Helgason Jóhanna Hallgrímsdóttir
2003 Bergur Hallgrímsson. Gréta Björg Ólafsdóttir.
Minningarhlaup um Berg Hallgrimsson er ekki haldið til að hampa sig-
urvegurum þótt verðlaun séu í boði. Það er háð til að heiðra minningu
mikils hlaupara, hans sem var sannur íþróttamaður.
11