Frjáls verslun - 01.01.2005, Page 13
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5 13
FRÉTTIR
K
atrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, hlaut
nýlega FKA-viðurkenningu Félags
kvenna í atvinnurekstri. Katrín er
aðaleigandi og forstjóri Lýsis og keypti
fyrirtækið árið 1999. „Katrín hefur tekist á
við krefjandi rekstrarumhverfi, sem kallar
á hugvitssemi, framkvæmdaelju og hæfi-
leika til þess að sjá möguleika þar sem áður
virtist aðeins uppgjöf blasa við. Þess vegna
lítum við í Félagi kvenna í atvinnurekstri
á hana sem verðuga fyrirmynd og árangur
hennar sem hvatningu öðrum konum,“
segir í rökstuðningi FKA.
Félagið veitti jafnframt
tvær aðrar viðurkenningar.
Hvatningarverðlaunin fékk
Edda Jónsdóttir í i8 gallerí
fyrir að fara nýjar leiðir
og skapa galleríi sínu nafn
á alþjóðlegum vettvangi.
Þakkarviðurkenninguna
fékk Guðrún Steingríms-
dóttir, eigandi Lífstykkja-
búðarinnar, sem stundað
hefur kaupmennsku í
næstum þrjátíu ár.
FKA-hátíðin
Katrín S. Óladóttir, formaður FKA, Vigdís Finnbogadóttir, Edda Jónsdóttir í i8 galleríi, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, sem hlaut FKA-viðurkenninguna,
Guðrún Steingrímsdóttir, eigandi Lífstykkjabúðarinnar, Einar Sveinsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Guðrún Steingrímsdóttir, eigandi
Lífstykkjabúðarinnar við Laugaveg,
tekur hér við þakkarviðurkenningu
FKA úr hendi Vigdísar Finnbogadóttur.
Guðrún hefur stundað kaupmennsku í
næstum þrjátíu ár.
Einar Sveinsson, stjórnarformaður
Íslandsbanka, afhendir hér Eddu
Jónsdóttur í i8 gallerí hvatningarverð-
laun FKA.
Fjölmenni var í Súlnasal Hótels Sögu þar sem Félag kvenna í atvinnurekstri hélt veislu sína.