Frjáls verslun - 01.01.2005, Qupperneq 40
KYNNING40 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5
Um 95% íslenskra fyrirtækja hafa 50 starfsmenn eða færri. Í fæstum þeirra eru sérstakir starfsmenn sem
sjá um tölvukerfið og þess vegna hafa
þau mörg hver ekki náð að nýta sér
kosti skilvirkrar tölvuvæðingar til fulls
líkt og mörg stærri fyrirtæki. Þessar
staðreyndir eru athyglisverðar, ekki
síst í ljósi þess að kröfur stjórnenda
í litlum fyrirtækjum eru oft á tíðum
ekki minni en í stærri fyrirtækjum, og
í litlum fyrirtækjum er skilvirkni í raun
forsenda þess að fyrirtækið geti vaxið
og dafnað í harðri samkeppni.
Gísli Már Ólafsson og Hallur Þór
Sigurðarson hjá Microsoft segja
Microsoft gera sér ljósa grein fyrir
ofangreindum staðreyndum. Því hafi
fyrirtækið m.a. sett á markað sérstaka
útgáfu af eigin miðlarahugbúnaði sem
kallist „Windows Small Busi ness Ser-
ver“, sem er ætlað að uppfylla þarfir
fyrirtækjanna í þessum efnum. Í
honum hafi verið sameinaðar fjórar
mismunandi vörur Microsoft sem gera litlum fyrirtækjum kleift
að keyra á einum og sama netþjóninum, Windows Server, sem er
sérsniðinn fyrir fyrirtæki með allt að 50 starfsmenn, póstmiðlarann
Microsoft Exchange, gagnagrunnsforritið Microsoft SQL Server
og eldvegginn Microsoft ISA Server. Öll kerfin hafa að sögn þeirra
félaga verið aðlöguð hvert öðru sérstaklega til að þau starfi vel og
hnökralaust saman á einum og sama netþjóninum.
Auðvelt í notkun Grunnpakkanum fylgja notendaleyfi sem auka má
við eftir þörfum, þó að hámarki 75 notendum. Það má því segja að
kerfið geti vaxið jafnt og þétt með fyrirtækinu. Vaxi fyrirtækið enn
frekar eða sameinist það öðru er hægt
að fá sérstaka uppfærslu úr kerfinu yfir
í stærri útgáfur þess, sem eru ætluð
stærri fyrirtækjum.
„Þar sem smærri fyrirtæki hafa
sjaldnast sérstakan starfsmann til að
sjá um tölvumál sín er mikilvægt að
auðvelt sé að setja upp og viðhalda
miðlaranum. Við hönnun og gerð
Windows Small Business Server var
aðaláherslan lögð á að búa til kerfi
sem að mestu leyti sæi um sig sjálft og
þar sem mannshöndin þyrfti að koma
nærri væri sú aðkoma auðveld og fyrir-
hafnarlaus,“ segir Gísli. Hann segir að
öll algeng vinnsla á borð við þá að
stofna nýja notendur og taka afrit sé
þannig gert úr garði að ekki eigi að vera
þörf á mikilli tölvukunnáttu til þess að
vinna með kerfið.
Aukin framleiðni Gísli bendir auk þess
á að mikið hafi verið lagt upp úr því að
smærri fyrirtæki fengju ekki einungis
auðveldara kerfi til að sjá um, heldur
einnig kerfi sem myndi auka framleiðni
starfsmanna. Þess vegna hafi verið ákveðið að láta vinnuumhverfið
SharePoint Services fylgja með Windows Small Business Server, en
það gerir starfsmönnum fyrirtækja kleift að skiptast betur á upplýs-
ingum en áður hefur þekkst. Gísli segir að mjög auðvelt sé að halda
utan um fundi, verkefni og ýmsar aðrar upplýsingar á innraneti sem
SharePoint Services haldi utan um og að auki geti notendur tengst
tölvupósti og vinnutölvum sínum heiman frá sér. Þessi hagræðing er
að sögn þeirra Gísla og Halls til þess fallin að auðvelda starfsmönnum
vinnuna og auka framleiðni þeirra og getur til dæmis komið sér vel
þegar starfsmenn verða af óviðráðanlegum ástæðum að vera heima
hjá börnum sínum, t.d. vegna veikinda eða verkfalla.
LAUSNIR FRÁ MICROSOFT
Í smærri fyrirtækjum er
skilvirkni forsenda árangurs