Frjáls verslun - 01.01.2005, Blaðsíða 97
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5 97
Að fara út úr bænum virðist beinlínis auka fólki víðsýni. Stundum er sem gáttir opnist og hugurinn verður frjórri en
ella þegar komið er í nýtt umhverfi. Mín reynsla er sú að í stefnu-
mótunarvinnu eða við önnur slík tækifæri - þegar virkilega þarf
nýtt sjónarhorn á hlutina - sé ágætt að brjóta dagskrána upp, fara
út fyrir bæinn og halda vinnufund þar,“ segir Jón Snorri Snorrason,
framkvæmdastjóri Öryggismiðstöðvar Íslands. „Gott er að funda
á hóteli þar sem öll aðstaða er fyrir hendi, segir hann.“ En mikil-
vægast sé að fundirnir séu vel skipulagðir og fólk komi undirbúið
til leiks. Það sé segin saga að sé fundur haldinn utan bæjarmarka
hafi þeir sem hann sitja undirbúið sig betur en ella – líkt og þeir séu
að fara í ferðalag – fremur en enn einn fundinn í bænum.
Fámennt er markvisst Fámennt en góðmennt er gjarnan sagt
- og það segir Jón Snorri eiga við um stefnumótunarfundi eigi
árangur að nást. Sex til átta manna fundur verði markvissari en
fjölmennari fundir. „Fólk leggur ef til vill upp með að ræða nokkur
afmörkuð atriði og þá er mikilvægt að gefa hverju og einu þeirra
fyrirfram ákveðinn tíma, í stað þess að staðnæmast skipulagslítið
við eitt ákveðið mál. Þá er dagskráin fljót að riðlast.“
Jón Snorri hefur stýrt þremur stórum fyrirtækjum. Hjá þeim
öllum kveðst hann hafa hagað stefnumótunarfundum með þessum
hætti og sé þá sjálfgefið að kalla helstu millistjórnendur til leiks.
„Einnig gefst vel að fá nokkrar óbreytta starfsmenn til leiks, annað-
hvort reynslubolta eða fólk sem er nýlega byrjað og virkilega
áhugasamt um starfið og framgang fyrirtæksins. Það hefur oft
öðruvísi sýn en við hin á reksturinn. Að heyra álit þessa fólks er
þýðingarmikið.“
Í klukkustundarfjarlægð Ágætt er að fara ekki lengra en í klukku-
stundarfjarlægð úr bænum þegar halda skal fund, segir Jón Snorri.
„Fólk mætir til vinnu og sinnir helstu verkum sem liggja fyrir, en
síðan er haldið úr bænum um klukkan ellefu. Eftir hádegismat
byrjar fundur sem stendur alveg fram undir kvöld en þá er líka
gott að slaka á. Þegar menn fara í heita pottinn og hafa lyft glasi
skapast þær umræður sem eru gagnlegastar. Næsta morgun er
ágætt að nota til að draga helstu niðurstöður saman og hafa lokið
fundi um hádegi. Í eftirmiðdaginn er fólk svo aftur komið til starfa.
Í ferðum út fyrir bæinn er líka tilvalið að heimsækja samstarfs-
fyrirtæki eða stóra viðskiptavini og þannig öðlast ferðin margþætt
gildi.“
Víðsýni í sveitasælu
„Hugurinn verður frjórri en ella í nýju umhverfi,“ segir Jón Snorri
Snorrason.
Stefnumótunarfundir
haldnir utanbæjar
Mjög fáir hafa komið hingað áður. Landið þykir forvitnilegt, einkum meðal menntamanna,“ segir
Guðmundur Björnsson læknir, stofnandi heilsulindar-
innar Saga Heilsa og Spa. Hann hefur sem læknir og
einnig sem formaður Læknafélags Íslands bæði sótt
og staðið fyrir fjölda ráðstefna lækna – en slíkar eru
haldnar mjög reglulega og eru raunar nokkuð áber-
andi í flórunni.
„Innan samstarfs Norðurlanda og jafnvel Evrópu,
þykir sjálfsagt að halda ráðstefnur í aðildarríkjum
þeirra samtaka, þeirra landa sem eru í samstarfi.
Þetta á einnig við um fagfélög til dæmis Félag
norrænna hjartalækna eða félag evrópskra norrænu-
fræðinga. Fjölbreytnin í þessari flóru er mikil og ráð-
stefnumarkaðurinn er alltaf að stækka.“
Ísland þykir spennandi ráðstefnuland fyrir þá sem
aldrei hafa hingað komið og er ógleymanleg upplifun
fyrir þá sem koma.
Möguleikar Íslands eru því miklir hvað þetta
varðar, það sem helst gæti komið í veg fyrir frekari
vöxt er takmarkað gistirými og stærð á ráðstefnu-
sölum.
Vinsælt meðal menntamanna
Guðmundur Björnsson,
læknir.