Frjáls verslun - 01.01.2005, Síða 109
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5 109
Ráðstefnuhópar eru oft svolítið öðruvísi saman settir en aðrir dæmigerðir ferðamannahópar sem maður leiðsegir um
landið. Gjarnan þekkist fólk eitthvað innbyrðis áður og því verður
stundum glatt á hjalla í rútunni. Stemmningin verður allt öðruvísi
en þegar fólk kemur hvert úr sinni áttinni og á ekki svo ýkja margt
sameiginlegt,“ segir Halldór Björnsson, leiðsögumaður hjá Kynnis-
ferðum. Sama er hvort erlendir hópar koma til Íslands í þeim
tilgangi helstum að skoða landið og ferðast um fjöll og firnindi
eða sækja hér ráðstefnur; sömu ákvörðunarstaðirnir njóta alltaf
vin sælda.
„Gullhringurinn svonefndi, þar sem við förum á Þingvelli, Geysi
og austur að Gullfossi, stendur alltaf fyrir sínu. Einnig Bláa lónið,“
segir Halldór. Ferðalög sem tengjast ráðstefnuhaldi segir hann
gjarnan svonefndar makaferðir og hvað sem líði jafnrétti kynjanna
og frómri viðleitni í að jafna hlutföllin þar – þá séu konurnar yfir-
leitt í meirihluta í þessum ferðum.
Dægradvöl og afþreying er mikilvæg í sambandi við ráðstefnu- og fundahöld og þar hefur Reykjanes upp á margt áhugavert að
bjóða, að sögn Helgu Ingimundardóttur, framkvæmdastjóra Moby
Dick hvalaskoðunar ehf. í Keflavík. Suður með sjó eru til dæmis
fjögur áhugaverð söfn; Fræðasetrið í Sandgerði, Bátasafn Gríms
Karlssonar í Listasafni Reykjanesbæjar, Saltfisksetrið í Grindavík
og síðast en ekki síst jarðfræðisafn í Gjánni - kjallara Eldborgar við
Bláa lónið. Söfn þessi eru mikið sótt af fólki sem situr ráðstefnur,
svo sem þær sem haldnar eru á Reykjanesi: þ.e. við Bláa lónið eða á
hótelunum í Keflavík.
„Hér er hægt að fara í hvalaskoðun eða sjóstangaveiði og væri þá
hægt að grilla til dæmis aflann um borð. Hægt væri að fara í kvöld-
siglingu í hvalaskoðun ef það er á réttum ljósatíma,“ segir Helga
Ingi mundardóttir. „Hægt er að bjóða upp á nýbakað rúgbrauð úti í
hrauni, skoða hella og fleira. Reykjanesið er all sérstætt, sérstaklega
á vorin þegar sjófuglar eru að hreiðra um sig. Þar eru hverasvæðið
og Reykjanesviti á Valahnjúk. Þá er ekki langt að sprungunni þar
sem Reykjaneshryggurinn kemur á land, en yfir hana hefur verið
byggð „Brúin milli heimsálfa“ sem mörgum þykir beinlínis spenn-
andi að ganga yfir,“ segir Helga Ingimundardóttir.
Heillandi Reykjanes
Halldór Björnsson leiðsögumaður gerir ferðamönnum grein fyrir staðháttum á Þingvöllum.
Gullhringurinn
er góður
Vinsælir áfangastaðir
erlendra gesta:
„Reykjanesið
er allsérstætt,“
segir Helga
Ingimundardóttir.