Frjáls verslun - 01.01.2005, Blaðsíða 119
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5 119
Kampavín
í fundarlok
Trausti Víglundsson segir algengt að bjóða
upp á glas af freyðivíni í lok ráðstefna og
funda.
Ú tlit er fyrir gott gengi ferðaþjónustunnar í ár í öllu því sem viðkemur ráðstefnuhaldi og enn frekari vöxtur er fyrirsjáanlegur. „Fólk í greininni er bjartsýnt,“ segir Anna R. Valdi-
marsdóttir, verkefnastjóri Ráðstefnuskrifstofu Íslands. „Og kannski er ekki annað hægt
þegar litið er til þess að allur aðbúnaður fyrir ráðstefnur og hvataferðir hefur tekið stakka-
skiptum til hins betra á undanförnum árum. Þá gefur fyrirhuguð bygging ráðstefnu- og
tónlistarhúss greininni byr undir báða vængi því loksins rís hér á landi alvöru ráðstefnuhöll
sem sárlega hefur vantað. Með tilkomu hússins verður hægt að halda hér ráðstefnur af áður
óþekktri stærð.“
Ráðstefnuskrifstofa Íslands er aðildarfélag sem hefur það hlutverk að markaðssetja
Ísland sem ákjósanlegan stað fyrir ráðstefnuhald og hvataferðir á alþjóðamarkaði. Auk þess
er það markmið skrifstofunnar að vekja áhuga Íslendinga, sem eru í alþjóðasamskiptum,
á því að halda ráðstefnur og fundi hér á landi. Að baki skrifstofunni standa Ferðamálaráð
Íslands, Reykjavíkurborg, Icelandair, flest stærstu hótel landsins, sérhæfðir ráðstefnuskipu-
leggjendur, afþreyingarfyrirtæki, veitingahús og fleiri sem koma að
þjónustu á þessu sviði.
Ráðstefnuskrifstofan starfar náið með skrifstofum Ferða-
málaráðs og Icelandair erlendis að ýmiss konar markaðs-
aðgerðum, svo sem skipulagi kynninga, sýninga og annarra
þátta sem geta leitt til nýrra viðskiptatækifæra. „Auk þess
er skrifstofan aðili að erlendum fagfélögum og tekur þátt í
alþjóðlegu samstarfi á þeim vettvangi. Með því gefst tæki-
færi til að fylgjast náið með þróun fundamarkaðarins
hverju sinni sem er afar mikilvægt því við erum að
sjálfsögðu í harðri alþjóðlegri samkeppni.“
Að sögn Önnu liggja ekki enn fyrir nákvæmar
tölur um fjölda ráðstefna fyrir árið 2005 enda eru
fámennari ráðstefnur oft haldnar með skömmum
fyrirvara. „En útlitið er mjög gott og engin ástæða
til að ætla annað en að áframhaldandi vöxtur verði
í þessari grein ferðaþjónustunnar.“
Bjartsýni í greininni
Anna R.
Valdimarsdóttir.
Ráðstefnum og fundum lýkur gjarnan með einhvers konar mót-
töku þeirra sem fyrir fundunum standa.
„Algengt er að bjóða þá upp á glas af
freyðivíni, Kir Royal, sem er freyðivín
með sólberjalíkjör, og að sjálfsögðu
óáfengan drykk, til dæmis Traust-
vekjandi,“ segir Trausti Víglundsson,
veitingamaður á Hótel Loftleiðum.
Hann hefur starfað við framreiðslu- og
hótelstörf frá 1962, eða í alls 43 ár.
„Í ráðstefnumóttökum er einnig á boð-
stólum léttur pinnamatur, með honum
er borið fram hvítvín, rauðvín eða bjór,“
segir Trausti. Hann segir ráðstefnuhald
hafa tekið miklum breytingum nú á
allra síðustu árum. Mikil og örugg fag-
mennska er ráðandi við allt skipulag
og undirbúning sem fylgir ráðstefnum,
einnig má nefna ýmiss konar óvissu-
ferðir út á land sem stóran þátt í heim-
sóknum ráðstefnugesta til Íslands.