Frjáls verslun - 01.08.2005, Qupperneq 28
M
ikil gerjun hefur átt sér stað í íslensku atvinnulífi sem
sést m.a. á auknum umsvifum og framkvæmdum. Um
leið hafa verkefnin orðið flóknari og lausnir meira
krefjandi en áður. Línuhönnun hefur tekið virkan
þátt í tækni- og verkþróuninni og leitar stöðugt nýrra leiða. Hefur
starfsemi fyrirtækisins eflst mjög og er orðin afar fjölbreytt. Fram-
kvæmdastjórar eru verkfræðingarnir Guðmundur Þorbjörnsson og
Sigurður Ragnarsson.
Ráðgjöf á traustum grunni Starfsemin hvílir á traustum stoðum úr
26 ára tilveru fyrirtækisins. Kjarnastarfsemin er í ráðgjöf í bygging-
arverkfræði þar sem Línuhönnun er í fararbroddi t.d. við hönnun
raforkumannvirkja, í byggingar- og viðhaldsmálum og í vega- og brú-
argerð. Síðasta áratug hefur Línuhönnun einnig eflt mjög almenna
verkfræðiráðgjöf, þar með talið um heildarhönnun nýbygginga og
eftirlit með mannvirkjagerð, auk þess sem nýir málaflokkar eins og
umhverfismál krefjast æ meiri vinnu.
Línuhönnun hefur tekið þátt í uppbyggingu virkjana og þjónustu
við álver og sér þar áfram áhugaverð verkefni. Þá er vert að geta þess
að Línuhönnun var fyrst fyrirtækja í Félagi ráðgjafarverkfræðinga til
að hljóta gæðavottun skv. ISO 9001:2000, og er gæðakerfi fyrirtækis-
ins orðið ein af meginstoðum starfseminnar.
Aukin fjölbreytni í þjónustu Að mati Guðmundar og Sigurðar
hefur hæfni og þekking verkfræðinga og tæknimanna verið vannýtt
auðlind. Aukin eftirspurn eftir þeim í margvísleg verkefni, sem m.a.
tengjast hraðri framþróun atvinnulífsins, staðfestir þetta: „Viðskipta-
vinir Línuhönnunar leita sífellt meira að yfirsýn og heildarlausnum.
Við höfum brugðist við þessu með því að auka fjölbreytni þjónust-
unnar og efla verkefnastjórnun sem eina af stoðum starfseminnar.
Hjá okkur starfar skapandi teymi öflugra, reyndra tæknimanna og
starfsmanna sem horfa í síauknum mæli til verkefnastjórnunar og
reksturs, samhliða verkfræði og tækni.“
Línuhönnun hefur einnig tekið þátt í þróun á fasteignamarkaði,
m.a. í samstarfi við fasteignafélög, þar sem þekking á tækniþáttum
verkefna og verkefnastýringu hefur reynst vel við lausn flókinna verk-
efna. „Línuhönnun býður stofnunum og fyrirtækjum heildarráðgjöf
við fasteignaumsýslu þeirra: Þarfagreiningu, aðstoð við að finna fram-
tíðaraðstöðu og losa þá eldri, verkefnastjórnun við breytingarnar og
flutning og alla tækniaðstoð, auk rekstrar- og viðhaldsáætlana til
framtíðar. Þekking á skipulagsmálum skiptir í þessu samhengi einnig
stöðugt meira máli.“
Reynsla Línuhönnunar í verkefnastjórnun og gæðakerfum nýt-
ist vel í nýrri ráðgjöf þar sem fyrirtæki eru aðstoðuð við að hrinda
markmiðum í framkvæmd. „Fyrirtækjum tekst yfirleitt vel að
vinna að stefnumótun, skilgreina sitt hlutverk og marka
stefnu, en innleiðing stefnunnar og sókn að markmiðum
er oftar flöskuhálsinn. Hér bjóðum við að vinna með fyr-
irtækjum, stýra verkefnum tímabundið eða aðstoða við
að koma á laggirnar innri verkefnastjórnunaraðferðum
til að hrinda markmiðum í framkvæmd - til mælan-
legs árangurs. Þarna kemur skilningur verk-
fræðinga á skipulagi og ferlum að góðum
nótum, auk þekkingar rekstrarverkfræð-
inga í fyrirtækinu.“
LÍNUHÖNNUN Í SÓKN
Framsækni
á traustum grunni
Sigurður
Ragnarsson, t.v.
og Guðmundur
Þorbjörnsson,
framkvæmda-
stjórar Línu-
hönnunar.
KYNNING