Frjáls verslun - 01.08.2005, Blaðsíða 169
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5 169
KVIKMYNDIR
LEITIN AÐ SANNLEIKANUM
Omen endurgerð
Liev Schreiber og Julia Stiles munu
feta í fótspor Gregory Peck og Lee
Remick þegar endurgerð verður
hin klassíska hryllingsmynd The
Omen. Mun endurgerðin heita The
Omen 666 og er leikstjóri John
Moore (Behind Enemy Lines).
Leikstjóri upprunalegu myndar-
innar var Richard Donner, sem lét
hafa eftir sér að hversu áhrifamikil
myndin var hafi ekki síst verið að
þakka tónlist Jerry Goldsmiths,
en hann fékk Óskarsverðlaun
fyrir tónlistina. The Omen fjallaði
um sendiherra Bandaríkjanna í
Englandi, sem telur son sinn vera
haldinn djöflinum. Þrjár framhalds-
myndir voru gerðar. Tökur á The
Omen 666 eru að hefjast í Prag og
er áætlað að frumsýna myndina í
júní 2006. Þess má geta að Julia
Stiles leikur eitt aðalhlutverkið í
kvikmynd Baltasars Kormáks, A
Little Trip To Heaven.
DiCaprio leikur
Roosevelt
Samstarf Martin Scorsese og
Leonardo DiCaprio heldur áfram.
Fjórða kvikmyndin er í undir-
búningi, en áður hefur samstarf
þeirra skilað Gangs of New York,
The Aviator og The Departure,
sem verður ekki frumsýnd fyrr
en á næsta ári. Myndin sem um
ræðir heitir The Rise of Theodore
Roosevelt og er eftir samnefndri
ævisögu eftir Edmund Morris,
sem fékk Pulitzer verðlaunin fyrir
hana. Hefst sagan á því tímabili
þegar Roosevelt var sjálfboðaliði í
hersveit sem nefndist The Rough
Riders og endar þegar hann verður
forseti Bandaríkjanna. Nicholas
Meyer, sem skrifar handritið, segir
ævi Roosevelts hafa verið mikið
ævintýri og ekki sé erfitt að finna
flöt á því sem nota megi í spenn-
andi kvikmynd.
Nýi heimurinn
Það er ávallt stór viðburður þegar
fréttist að Terence Malick sé
að leikstýra kvikmynd. Þessi
mikilsmetni leikstjóri hefur aðeins
leikstýrt fjórum kvikmyndum á
rúmlega þrjátíu árum, Badlands
(1973), Days of Heaven (1978),
The Thin Red Line (1998) og The
New World, sem verður frum-
sýnd í Bandaríkjunum síðar á
árinu. The New World er epísk
stórmynd um goðsögnina John
Smith, sem fjallað var um í
Disneyteiknimyndinni Pocahontas.
Það er Colin Farrell sem leikur
Smith. Fjöldi þekktra leikara eru
í öðrum hlutverkum, má nefna
Christian Bale, Christopher
Plummer, Ben Chaplin, Roger
Rees og Noah Taylor. Að sjálf-
sögðu kemur Pocahontas við
sögu, en Malick, sem einnig
skrifar handritið, valdi óþekkta
15 ára gamla stúlku, Q’Orianka
Kilcher, til að leika hana.
Trúverðugleiki og spenna Það er strax farið að tala um
að Ralph Fiennes verði tilnefndur til óskarsverðlaunanna
og er þá miðað við leik hans í The English Patient og
Schindler’s List, sem flestum er ógleymanlegur. Rachel
Weisz hefur einnig fengið glimrandi dóma fyrir leik sinn.
Það eru þó flestir á því að gæði myndarinnar sé fyrst og
fremst leikstjóranum, Fernando Meirelles, að þakka. Meir-
elles sem leikstýrði hinni margverðlaunuðu City of God,
þykir gefa sögunni þann trúverðugleika sem til þarf án
þess að spennan í myndinni líði fyrir það. Sjálfsagt spilar
þar inn í ríkur skilningur hans á ástandinu í fátækustu
löndum heims.
Sjónvarpið sýndi nýlega City of God, sem fjallar á áhrifa-
mikinn hátt um átök tveggja glæpaklíkna í fátækrahverfi
Rio de Janeiro, sem skipuð eru unglingum og hvernig
einum þeirra tekst að brjótast út úr dauðadæmdri tilveru.
Meirelles er ekkert unglamb þó aðeins séu þrjú ár frá
því nafn hans varð þekkt í alþjóðlegri kvikmyndagerð.
Hann verður fimmtugur í nóvember. Fæðingarborg hans
er Sao Paulo, þar sem hann stundaði nám í arkitektúr,
samhliða kvikmyndagerð. Ásamt vinum sínum hóf hann
framleiðslu á tilraunakenndum myndbandsmyndum sem
voru verðlaunaðar í Brasilíu. Það leiddi til þess að honum
var boðin vinna við brasilíska sjónvarpið þar sem hann
starfaði í tíu ár eða þar til hann stofnaði eigið kvikmynda-
fyrirtæki. Áður en hann gerði City of God, hafði hann
leikstýrt fjórum kvikmyndum, sem fóru ekki mikið út fyrir
heimamarkaðinn.
BÍÓMOLAR
Justin Quayale (Ralph Fiennes), hljóðlátur breskur ríkis-
starfsmaður, sem hefur meiri áhuga á að sinna garðinum
sínum en að fara erinda breska heimsveldisins.
Liev Schreiber leikur aðalhlut-
verkið í The Omen 666.