Austurland - 08.01.2015, Síða 2

Austurland - 08.01.2015, Síða 2
8. Janúar 20152 Austfirðingar ársins 2014 Eins og síðustu tvö ár stendur Austurfrétt fyrir vali á Aust-firðingi ársins. Í fyrra voru það feðgarnir Friðþór Harðarson og Sigurður Friðþórsson sem hlutu tit- ilinn og árið 2012 fór hann til Árna Þorsteinssonar í Neskaupstað. Lesendur Austurfréttar hafa undan- farna daga sent inn tilnefningar að nafnbótinni „Austfirðingur ársins 2014.“ Margar góðar ábendingar bár- ust sem þér gefst nú meðal annarra kostur á að kjósa um. Austurfrétt veitir svo þeim sem flest atkvæði fær viður- kenningu. Taktu þátt í að kjósa Aust- firðing ársins 2014 en kosningunni lýkur sunnudaginn 11. janúar næst- komandi. Þeir sem hafa verið tilnefndir eru sem hér segir: Kristín Arna Sigurðardóttir Kristín Arna var verkefnastjóri hönnunarverkefnisins Designs from Nowhere sem hlaut Hönnunarverð- laun Íslands í haust. Hún hefur unnið mikla vinnu þágu lista á Austurlandi og vinnur nú að heimildamynd um Vopnafjörð. María Bergrós Jóhannsdóttir María Bergrós er aðeins tveggja ára gömul. Hún komst í fréttirnar í vor þegar greint var frá því að hún hefði verið með sprunginn botnlanga í á þriðju viku án þess að læknar eystra finndu neitt að. Amma hennar fór með hana á Barnaspítala hringsins þar sem meinið fannst. Steinunn Rós Einarsdóttir og Kristinn Ingólfsson Hjónin, sem eru Norðfirðingar að uppruna, misstu son sinn í bílslysi í janúar. Hann var skráður líffæragjafi og komu þau hjónin saman fram í fjöl- miðlum í umræðu um líffæragjafir í kjölfarið. Svavar Pétur Eysteinsson Svavar Pétur, sem er betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló, fluttist ásamt fjölskyldu sinni í Karls- staði í Berufirði á árinu. Hann sendi frá sér tvær plötur sem voru áberandi á topplistum og stóð fyrir tónlistarhátíð á býlinu um verslunarmannahelgina. Svanhvít Antonsdóttir Austfirðingar kannast kannski betur við Dandý. Hún kláraði Ironman þrautina í sumar nokkrum vikum eftir stóra aðgerð sem hún gekkst undir vegna mikilla veikinda. Tinna Rut Guðmundsdóttir Tinna Rut hefur í rúman áratug barist við átröskun sem gekk nærri bæði henni og fjölskyldu hennar. Tinna sagði sögu sína í Austurglugganum í von um að hjálpa öðrum. Hitaveitu & gasskápar Blikksmiðjan Vík ehf / Skemmuvegur 42, 200 Kópavogi / kt. 4309850279 / Sími: 557-1555 / blikkvik@blikkvik.is fyrir sumarbústaði og heimili Gæði • Þjónusta • Öryggi Hitaveituskápar Við sérsmíðum og eigum líka hitaveitukassa á lager. Einnig smíðum við mikið af kössum á kerrur, bíla ofl. Fáanlegir í mörgum litum. Gasskápar Eigum gasskápa á lager. Læsanlegir og smíðaðir úr áli. Láttu ekki stela af þér kútunum! AUSTURlAnd 1. TBl. 4. ÁRGAnGUR 2015 ÚTGefAndi: Fótspor ehf., Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is, Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is, Ritstjóri: Halldóra Tómasdóttir, sími 471-3119 & 852-1911, netfang: ht@me.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 4.400 eintök, dreifing: Íslandspóstur. - Blaðið er aðgengilegt á Pdf sniði á vefnum www.fotspor.is. FRÍblAðinu eR dReiFT Í 4.400 einTökum Á öll Heimili Á AuSTuRlAndi OG HORnAFiRði Auk dReiFbÝliS. blAðið liGGuR einniG FRAmmi Á HelSTu þéT TbÝliSSTöðum Á AuSTuRlAndi. UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN Ég er viss um að árið sem nú er nýhafið verður gott. Um helgina heyrði ég í konu í útvarpinu sem sagðist alltaf fara af stað inn í hvern dag full bjartsýni og vissu um að dagurinn yrði góður og hef ég ákveðið að fara að hennar dæmi. Vandræðin við mig eru aftur á móti alltaf þau að ég er svo léleg í að setja mér smærri markmið og byrja því á að ákveða að árið verði gott en gleymi því að árið er 365 dagar. Nú er nýliðin uppáhaldshátiðin mín en það eru jólin. Jólin eru tími hefða hjá mér og nú um jólin leit út fyrir að ég myndi upplifa jól bernsku minnar á ný, að vísu þannig að ég yrði í hlutverki foreldra minna. Þannig er mál með vexti að þegar ég var lítil var það regla fremur en undantekning að ráðist var í einhverjar framkvæmdir á heimilinu rétt fyrir jól. Á Þorláksmessu var allt í klessu þegar ég fór að sofa en þegar ég vaknaði á aðfangadags- morgun var allt orðið fínt og hreint og jólalegt. Ég skildi að vísu aldrei af hverju pabbi var alltaf svona þreyttur á aðfangadagskvöld, svo þreyttur að hann sofnaði iðulega þegar við vorum að opna pakkana. Um nýliðin jól var sem sagt allt í klessu á Þorláksmessu hjá mér en á miðnætti varð ég að játa mig sigraða. Gengið var frá parketti, flísum og málningarrúllum og aðgerðum frestað fram yfir hátíðirnar. Ég skil ekki hvernig foreldrar mínir fóru að þessu í gamla daga en nokkuð ljóst að ég er ekki eins sterk og þau. En hvernig sem framkvæmdum leið þá komu jólin því ég komst að því að fyrir mér eru bestu jólin notaleg stund með fjölskyldunni í hlýju og öryggi. Auðvitað getur verið að sumir verði að vinna eða geti ekki verið hjá fjölskyldu sinni um jólin en ég verð alltaf sorgmædd þegar ég heyri fréttir eins og þær sem bárust á aðfangadagsmorgun þar sem sagt var frá því að fjarlægja hefði þurft ölvaðan mann af heimili og að bruni hefði orðið í húsi í Eyjafjarðarsveit. Margir strengja áramótaheit við upphaf nýs árs en þar sem áramótaheit mín hafa ekki gengið upp undanfarin ár ákvað ég að sleppa öllu slíku í ár. Aftur á móti hef ég ákveðið að taka mér tak og huga að sóun á heimilinu. Ég veit að ég er ekki barnanna best í þeim efnum og birti því áhugaverða grein um hvernig hægt er að minnka sóun í þessu tölublaði Austurlands. Ég vona að þið lesendur góðir njótið nýja ársins og það verði ykkur gott og gæfuríkt. Halldóra Tómasdóttir Leiðari Gott ár í vændum Þrettándagleði Hattar Þann 6. janúar fór fram þrett-ándagleði Fljótsdalshéraðs og Hattar með hefðbundnu sniði. Kyndlaganga lagði af stað kl 17: 15 frá íþróttahúsinu og gengið var í Tjarnargarðinn þar sem brenna var tendruð. Davíð Þór Sigurðarson, formaður Hattar setti athöfnina með ræðu um starf Hattar 2014. Verðlaunaafhending íþróttamanna ársins var kynnt en það var Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljóts- dalshéraðs ásamt formanni Hattar, Davíð Þór Sigurðarsyni sem sáu um afhendinguna. Eftir afhendingu var síðan glæsileg flugeldasýning sem Björgunarsveitin á Héraði sá um. Starfsmerki Hattar voru veitt í þriðja sinn en þau hljóta einstak- lingar sem hafa unnið óeigingjarnt starf í þágu félagsins til lengri tíma. Hafsteinn Jónasson hlýtur starfs- merki Hattar fyrir vinnu sína í þágu félagsins en hann hefur starfað sem formaður aðalstjórnar, setið í stjórn körfuboltadeildar í rúmlega 10 ár og gegnt ýmsum öðrum trúnaðar- störfum. Hafsteinn hlaut starfsmerki UÍA 2012. Elín Sigríður Einarsdóttir hlýtur starfsmerki Hattar fyrir vinnu og stjórnarsetu en hún hefur meðal annars gegnt formannstöðu hjá fimleikadeild og skíðadeild. Einnig hefur hún setið í stjórn frjálsíþrótta- deildar og verið virkur þáttakenda í foreldrastarfi ýmissa deilda. Einnig hefur Elín verið skoðunarmaður reikninga fyrir stjórnir innan Hattar. Íþróttamaður Hattar árið 2014 var fótboltakonan, Heiðdís Sigurjónsdóttir. Heiðdís stóð sig vel í sumar með meistaraflokksliði Hattar og var fyr- irliði liðsins. Hún lék 5 leiki með U19 landsliði Íslands. Hún á fast sæti í landsliðinu sem tryggði sér þátttöku- rétt í milliriðli fyrir úrslitakeppni EM sem fram fer í Ísrael. Í öðrum greinum voru eftirtaldir einstakilngar fyrir valinu þetta árið. Blakmaður : Guðjón Hilmarsson Fimleikamaður: Kristinn Már Hjaltason Frjálsíþróttamaður : Atli Pálmar Snorrason Knattspyrnumaður : Heiðdís Sig- urjónsdóttir Körfuboltamaður : Hreinn Gunnar Birgisson Íþróttafélagið Höttur vill þakka eft- irtöldum styrktaraðilum fyrir stuðn- inginn vegna framkvæmdar þrett- ándagleði 2014, Brúnas – Innréttingar, Mannvit, Hitaveita Egilsstaða og Fella, Landsbankinn. austfirðingar ársins 2013 björguðu fjölskyldu út úr brennandi húsi í Berufirði Íþróttamaður Hattar árið 2014 er Heiðdís Sigurjónsdóttir.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.