Reykjanes - 05.02.2015, Page 4

Reykjanes - 05.02.2015, Page 4
4 5. Febrúar 2015 Framkvæmdir sveitarfélaganna Reykjanes kannaði hvaða framkvæmdir eru áætlaðar hjá sveitarfélögunum á næstunni. Afgangur 2017 Á íbúafundi bæjarstjóra Reykjanes- bæjar var upplýst að halli á rekstri bæjarsjóðs 2014 væri áætlaður 864 milljónir. Margt benti þó til að út- koman yrði aðeins skárri. Í ár er gert ráð fyrir að rekstrartap verði 514 milljónir, en að hagnaður verði af rekstri árið 2017. Rúmur einn milljarður Fjármagnsgjöld Reykjanesbæjar í ár nema kr. 1.046.920 Skulda 7 milljarða Reykjaneshöfn skuldar rúma 7 millj- arða Ekki reiknað Fram kom á íbúafundi bæjar- stjóra Reykjanesbæjar að öllum sviðsstjórum bæjarins hefði verið sagt upp. Skipulagsbreytingar eru framundan. Bæjarstjóri sagði að ekki lægi fyrir útreikningur á því hvað sparaðist við þessar aðgerðir. 1200 milljónir í húsaleigu Upplýst var á íbúafundi hjá Reykjanesbæ að sveitarfélagið þarf að greiða 1200 milljónir króna í húsaleigu í ár. Skulda stopp Bæjarstjóri Reykjanesbæjar sagði á íbúafundi að staðan væri þannig: „Við getum ekki bætt við skuldum.“ Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Garði: 370 milljóna fram- kvæmdir án lántöku Í fjárhagsáætlun Garðs er ekki gert ráð fyrir tilgreindum fram- kvæmdum/fjárfestingum á árinu 2015. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar kom fram að bæjarstjórn mun þegar líður á árið taka frekari ákvarðanir um þetta eftir því hvernig fjárhags- árinu vindur fram. Þess má geta að nú er að ljúka framkvæmdum við viðbyggingu Íþróttamiðstöðvar. Hluti af kostnaði vegna þeirrar framkvæmdar teygir sig inn í árið 2015. Áætlaður kostn- aður við það verkefni var hátt í 170 milljónir króna, en uppgjör fram- kvæmda hefur ekki farið fram þannig að endan- leg fjárhæði liggur ekki fyrir. Sveitarfélagið hefur undanfarin 2 ár (2013-2014) staðið í miklum fjárfestingum og framkvæmdum. Alls er þar um að ræða fjárhæð yfir 370 milljónir króna og er að fullu fjármagnað með eigin fé sveitarfélagsins og án lántöku. Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavík: Framkvæmdir fyrir 1,4 milljarða 2015-2018 Alls eru áætlaðar framkvæmdir fyrir um 1,4 milljarðar kr. árin 2015- 2018 Árið 2015 eru áætlaðar fjárfestingar fyrir um 400 milljónir króna, • Stærsta fjárfestingin er að klára lokaframkvæmdir og lóð við íþrótta- miðstöð. Aðrar stórar fjárfestingar eru • Aðstaða fyrir bardagaíþróttir í íþrótta- miðstöð • Breyting á bæjarskrifstofum • Gatnagerð og stígar, gatnalýsing • Frágangur gangstétta í Hópshverfi Árin 2016-2018 eru eftirfarandi fjár- festingar helstar: • Íbúðir fyrir eldri borgara við Víðihlíð 2016. • 4 íbúðir í viðbyggingu • Aðstaða við Hópið 2017. • Inngangur í Hópið, salerni og söluturn • Nýtt íþróttahús 2018 • Gatnagerð og stígar • Göngustígur um Bótina og út á golf- völl 2018 • Viðhald og endurnýjun á Miðgarði í Grindavíkurhöfn • Háð fjármögnun ríkisins Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Voga: Mest í endurnýjun gatna Í Vogum eru áætlaðar fjárfestingar á árinu 2015 samtals 40 m. kr. Stærsti hluti fjárins fer í endurnýjun gatna, einnig var keyptur þjónustubíll nú í upphafi árs. Þá er fjármunum ráð- stafað í samningsbundin verkefni, t.d. stækkun kirkjugarðs og styrks vegna uppbyggingu áhaldahúss Golfklúbbs Vatnsleysustrandar. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar: Fjárfestingar fyrir 200 milljónir Á borgarafundi í síðustu viku kom fram hjá bæjarstóra að fjár- festingar eru áætlaðar 200 milljónir í ár. Má þar t.d. nefna lausar kennslu- stofur fyrir 80 milljónir, göngustíga fyrir 20 milljónir og ófyrirséð er upp á 36 milljónir. Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri Sandgerði: Fráveitu- framkvæmdir stálþil og opin svæði Helstu framkvæmdir hjá Sand-gerðisbæ á árinu 2015 eru frá- veituframkvæmdir við Sjávarbraut, framkvæmdir við stálþil í höfninni og framkvæmdir við stíga og opin svæði. Fækka og einfalda segir meirihlutinn. Æðibunugangur og fljótfærni segja Sjálfstæðismenn Meirihluti bæjarstjórnar hefur í bæjarráði lagt fram tillögu um að fækka og einfalda skipan verkefna fagsviða og móta stig af stigi enn öflugra embættismanna- kerfi til að koma stefnumörkun kjör- inna fulltrúa í Reykjanesbæ til fram- kvæmdar. Reykjanes birtir hér brot af því sem fram kemur og viðbrögð Sjálf- stæðisflokksins. Nánar er hægt að lesa um málið í fundargerð Bæjarráðs Reykjanesbæjar frá 22. janúar s.l. Nýtt stjórnskipurit Reykjanesbæjar Lagt er til að bæjarráð Reykjanesbæjar samþykki að starfsemi Reykjanesbæjar skiptist í þrjú fagsvið og tvö stoðsvið. Fagsviðin nefnist: fræðslusvið, vel- ferðarsvið og umhverfissvið. Stoðsviðin nefnist stjórnsýslusvið og fjármálasvið. Lagt er til að komið verði á laggirnar stjórnsýslusviði hjá Reykjanesbæ sem hafi forystu um þróun vinnubragða, Lagt er til að til að á stjórnsýslusviði verði til nýtt starf menningarfulltrúa sem sinni þróun og útfærslu á menn- ingarstarfsemi á vegum Reykjanes- bæjar Lagt er til að komið verði á laggirnar sérstæðu fjármálasviði sem annast fjár- reiður, áætlanagerð Lagt er til að íþrótta- og tómstunda- svið verði lagt niður sem sérstakt svið Lagt er til að á fræðslusviði verði til nýtt starf íþrótta- og tómstundafulltrúa á fræðslusviði Sjálfstæðismenn telja sjálfsagt að endurskoða stjórnskipulag bæjarins til að gera það sem markvissast. Oftast gildir þó sú regla í litlu samfélagi að „veldur hver á heldur“. Þannig er það sjaldnast skipulagið sjálft sem ákvarðar hvort vel er unnið, heldur þeir sem halda um stjórnvölinn og starfsfólkið sjálft. Æðubunugangur og fljótfærni eru aldrei vænleg til árangurs þegar slíkar breytingar eru fyrirhugaðar. Enn eitt dæmið um mistök, fljótfærni og klaufaskap meirihlutans þegar kemur að starfsmannamálum sveitarfélagsins. Launamunur, hvort sem stjórnendur verða skráðir sviðsstjórar eða deildar- stjórar, mun verða hverfandi þegar upp er staðið. Verðmæta- sköpun að hefjast Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi voru með fyrirlestur á Skattadegi Deloitte. Þar var m.a. komið inná: Forskot og framúrskarandi að- stæður • Alþjóðaflugvöllur og stórskipahöfn í Helguvík • Upphaf verslunar á Íslandi, sjávar- útvegur hefur verið stundaður hér frá aldaöðli • Tæknivæddasta varmaorkuver á Íslandi • Sívaxandi ferðamannaiðnaður • Gagnaver komin til að vera, fer fjölgandi • Sprota og nýsköpunarfyrirtækjum fjölgar mikið • Höldum þessu forskoti • Keilir, miðstöð fræða og vísinda Ásbrú • Codlandið í Grindavík • Stolt Seafarm á Reykjanesi • Þörungarækt á Ásbrú • Íslandshús Ásbrú • Heilsuhótel Íslands Ásbrú • Keflanding.com Ásbrú samvinna • GeoSilica Ásbrú • Samstarf sveitarfélagana um Geo- -Park • Geothermal Research Park - auð- lindagarðurinn • Gagnaversuppbygging Ásbrú og Fitjum

x

Reykjanes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.