Selfoss - 12.02.2015, Síða 2

Selfoss - 12.02.2015, Síða 2
2 12. Febrúar 2015 Það ríkir ekki lognmolla í þjóðfélaginu. Umræðan fer stundum fyrir ofan garð og neðan. Sumt fellur í grýttan jarðveg. Annað flyst inn í þögnina af því að það má ekki færast inn á svið almennings. Frænd- hygli og flokksræði. Stjórnsýslan ræður oft illa við að höndla mál. Einfara ráðherrar og embættismenn fara sínu fram. Dæmin eru hér og nú og má víða finna fyrir þeim. Eitt dæmalaust mál er t.d. aðför stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna að eftirkomendum ábyrgðarmanna að námslánum. Svo vildi til að fyrrum forsætisráðherra (sem látinn er) er í aðalhlutverkinu sem ábyrgðarmaður skuldara. Þetta er nýjasta dæmið og rataði inn í fjöl- miðla. Í stað þess að opna á umræðuna sendir framkvæmdastjóri sjóðsins nokkur skeyti sem útskýrðu á engan hátt hvers vegna farið var í málið á umræddan hátt. Annað dæmi er ofarlega á baugi. Nefnilega aflátskrónur á leið til Íslands úr skattaskjólum. Meira en 4 þúsund erindi sem kosta 150 millj. króna að koma í hús. Og þar á ofan veit enginn hversu margir hafa komist úr skjóli áður en til þessarar nauðungar er gripið eins og nú mun standa til. Þeir sem ekki hafa komið peningum sínum í annað skjól skulu nú fá sakaruppgjöf hlýði þeir og komi heim með þá. Fjármálaráðherra skammaði skattrannsóknarstjóra og sakaði hana um seinagang. Hún gat ekki annað en þagað þunnu hljóði. Hennar bíður væntanlega útganga úr sínu embætti eftir þessa aðför ráðherra að embættinu. Samráðstækni ráðherrans brást. Eitt dæmið enn um bágborna stjórnsýslu. Fleiri eru dæmin frá liðnum árum. Stjórnarskrármálið er slíkt eintak. Þrátt fyrir að þjóðin hefði með skýrum hætti sagt frá og málið virtist á leið í höfn tókst stjórnkerfinu að koma í veg fyrir eðlilegan gang málsins. Mannfæð og of mikil nálægð koma í veg fyrir að mál þróist á lýðræðislegan hátt. Vonandi sjáum við þó til lands. Miklar sviptingar eru meðal almennings. Ungt fólk tekur ekki þátt í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu. Vinnubrögðin geðjast þeim ekki. Það eru tákn um breytta tíma. Sjái „kerfið“ ekki að aðstæður kalla á breytt vinnubrögð mun tíminn leiða annað í ljós. Hann vinnur með þeim sem nú eru að alast upp við allt aðra heimsýn. Heimurinn er orðinn eitt í þeirra huga. Ísland er ekki endilega „óskalandið“ í hugum þeirra sem höndla daginn og framtíðina með opnari huga en fyrri kynslóðir. Þorlákur Helgi Helgason Annað flyst inn í þögnina LEIÐARI ÞAÐ VAR OG... Stærðir 38-52 Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 Vertu einstök – eins og þú ert stærðir 38-52 my style Kíktu við í netverslun tiskuhus.is Svona geta frásagnir af íþrótt verið lýsandi: „Og sjá: alla boltana hans Nökkva sem hvað eftir annað féllu til jarðar og gufuðu upp eins og regndropar sem vökva jörðina og uppskera að lokum þessa einstöku tilfinningu þegar marglit fræin hafna í körfunni á síðustu stundu eða dragast með hægð yfir marklínuna og frjógva þennan garð með gleðitárum : - )“ Skáldlegra verður það ekki. (Höfundur: Jón Özur Snorrason á Fésbókinni) Löggjafarnir tali sitt móðurmál hreint og óblandað Úr Mýrdalnum 4. marz 1898: „Þingtíðindin eru talsvert lesin hjer en ill þykja þau viðfangs, einkum skjalaparturinn, og svo eru sumir að segja, að óþarfloga mikið sje af útlendum orðum í ræðum þing- manna, en það kemur af því að hjer kunna menn fátt í útlendum málum og vilja þessvegna heldur að löggjafarnir tali sitt móðurmál hreint og óblandað — og satt að segja held jeg að það færi öllu betur eða — ætti öllu betur við.“ (Ísland, 2.árgangur,12. tbl.) Sveitaþyngsli lítil Mýrdalurinn er að margra dómi með betri sveitum sunnan lands og framfarir eru hjer talsverðar, bæði í jarðabótum og húsabyggingum og má sem dæmi nefna, að heyhlöður eru því nær á hverjum bæ og víða fyrir allan heyskap. Híbýli manna eru og i góðu lagi, velmegun fremur góð og sveitaþyngsli lítil. (Ísland, 2.árgangur,12. tbl.) Á fund systur sinnar Íslensk stúlka kom í gær frá Kaup- mannahöfn, Sigríður Andrjesdóttir að nafni og náskyld Mr. Kn frá Geitareyjum. Hún fór 7. p.m. frá Höfn og ætlar hið fyrsta vestur til Calcary á fund systur sinnar sem þar er. (Heimskringla 26.8. 1891) Náttúran laus við hagfræðilega íhlutun Þeim fjölgar í samfélaginu sem full- yrða að kominn sé tími til að hefja náttúru landins til skýjanna. Hún geti talað sínu máli án þess að lúta stöðugt einhverjum samanburði við hagfræðilegar „staðreyndir.“ Í þess- um hópi er Andri Snær rithöfundur, en hann var í viðtali sl. sunnudags- morgun í Ríkisútvarpinu. „Vandamál og erfiðleikar gerð að áskorunum til sigra” „Við erum mjög stolt af þessum árangri okkar ekki síst eftir að hafa lent í helmings samdrætti eftir efnahagsmistökin 2002-2008, ” segir Bergsteinn Einarsson fram- kvæmdastjóri Set á Selfossi. „Það eru fimmtíu ár síðan atvinnu- rekstur fjölskyldunnar hófst í bíl- skúrnum að Engjavegi 24. Vinnan í Set og stjórnun fyrirtækisins er allt í senn menntun mín, áhugamál og afkoma og ég nýt þess að takast á við krefjandi verkefni með okk- ar góða fólki. Fyrirtækið breyttist töluvert eftir að við fórum að vinna undir hugmyndafræði gæðastjórn- unar fyrir aldarfjórðungi en þar eru vandamál og erfiðleikar gerð að áskorunum til sigra, og neikvæðni skoruð á hólm. Við Örn bróðir minn höfum leitt félagið um árabil og undanfarinn áratug hefur okkur tekist að mynda einstaklega sterk- an og góðan kjarna millistjórnenda og lykilstarfsfólks sem náð hefur miklum árangri með okkur. Um- fram allt er þetta mjög gaman og þess vegna er svona viðurkenning ánægjuleg fyrir mig persónulega, starfsfólk okkar og fjölskylduna. ” Þetta eru“framúrskarandi” fyrirtæki á Selfossi: Set, Foss- vélar, Jötunn vélar, Guðmund- ur Tyrfingsson, Stóra-Ármót, Auðhumla„Fossvélar, JÁVERK ogTRS. Orðsporið í Ölfus Orðsporið í ár er veitt sveitarfélögum sem þótt hafa skarað fram úr við að hækka menntunarstig leikskóla og/eða fjölga leikskólakennurum í sínum leikskóla eða leikskólum. Sveitarfélögin Ölfus og Kópavogs- bær fengu afhentar viðurkenningar af þessu tilefni í dag við hátíðlega athöfn í Björnslundi í leikskólanum Rauðhól í Norðlingaholti. Síðast- liðin þrjú ár hefur viðurkenningin Orðsporið verið veitt á Degi leik- skólans og það var 6. febrúar sl. Innkaupastjóri hvers heimilis stýri samsetn­ ingu heimilis­ sorps! Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt að ganga til samstarfs við kvenfélögin þrjú í Flóahreppi um gerð margnota innkaupapoka, einn fyrir hvert heimili í sveitarfélaginu. „Innkaupapokinn verði hvatning til íbúa til þess að minnka plastpoka- notkun og táknrænt verkefni sem minni á það hvernig innkaupastjóri hvers heimilis fyrir sig getur stýrt samsetningu heimilissorpsins með vali á neysluvörum í umhvefisvæn- um umbúðum.“ Vöktu verðskuldaða athygli Þeir léku í bleiku og uppáklæddir í sömu litum gustaði af þeim. Guðjónsmótið í knattspyrnu fór vel fram í liðinni viku. Framkoma er ekki síst virði en það er líka gaman sé að leika með félögunum. Mynd: Sævar Þór Gíslason (af Fésbók) bergsteinn einarsson.

x

Selfoss

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.