Selfoss - 12.02.2015, Blaðsíða 12

Selfoss - 12.02.2015, Blaðsíða 12
Skólastjóri Hvolsskóla Hvolsvelli Staða skólastjóra við Hvolsskóla á Hvolsvelli er laus til umsókn- ar. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem er tilbúinn til að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasam- félagsins í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið nær frá Eystri Rangá að Jökulsá á Sólheimasandi. Starfssvið • Ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi • Fagleg forysta á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi • Ábyrgð á samstarfi við heimili og samfélag Menntunar- og hæfniskröfur • Kennsluréttindi og kennslureynsla á grunnskólastigi • Reynsla af stjórnunar- og þróunarstörfum • Framhaldsmenntun á sviðið stjórnunar og reksturs æskileg • Forystuhæfni og færni í mannlegum samskiptum • Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum, er metnaðarfullur, skapandi og áhugasamur um nærsamfélagið. Æskilegt er að skólastjóri hafi búsetu í Rangárþingi eystra. Staðan er laus frá 1. ágúst nk. Launakjör eru samkvæmt kjara- samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 20. mars 2015 Hvolsskóli er á Hvolsvelli í Rangárþingi eystra. Í skólanum eru 240 nemendur á aldrinum 6 -16 ára í 12 umsjónarhópum. Við skólann starfa 29 kennarar og 24 aðrir starfsmenn en ekki eru allir í fullu starfi. Stjórnunarteymi Hvolsskóla er auk skólastjóra, tveir deildarstjórar og vinnur stjórnunarteymið mjög náið saman. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu skólans www.hvolsskoli.is. Hvolsskóli starfar í anda Uppeldis til ábyrgðar, er Grænfánaskóli og vinnur að því að verða ART skóli. Í skólanum er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám. Hvolsskóli er eini grunnskóli sveitar- félagsins og þess vegna kemur fjöldi nemenda í skólann með skólabifreiðum úr dreifbýlinu. Í skólanum er skólaskjól og einnig er lögð áhersla á að allir nemendur fái tekið þátt í íþrótta- og félagsstarfi sem boðið er uppá í lok hefðbundins skólastarfs. Umsóknum má skila á skrifstofu Rangárþings eystra, Hlíðarvegi 16, 860 Hvolsvöllur. Einnig má senda inn umsóknir rafrænt á netfangið isolfur@hvolsvollur.is. Fæst í öllum apótekum – Hagkaup – Fjarðarkaup – Heimkaup – Heilsuver – Heilsulausn.is 12. Febrúar 2015 Nú styttist í bolludag og sprengidag. Um næstu helgi og í byrjun næstu viku verður mikið borðað áður en langafasta hefst. Það er því ágætt að hafa einfaldan kjúklingapottrétt áður en lætin hefjast. Þetta er fínn réttur á föstudegi fyrir bolluhelgi. Þessi réttur er ættaður frá Suður Afríku. Þar nærist matarmenning frá mörgum stöðum úr austri og vestri. Þangað komu sæfarar sem sigldu suður með Afríku og báru með sér allskonar menningu og krydd. Á vef Wikipetíu http:// is.wikipedia.org/wiki/Su%C3%B- 0ur-Afr%C3%ADka segir þetta frá Suður Afríku: Suður-Afríka er land í suðurhluta Afríku og nær yfir suðurodda álf- unnar. Það á landamæri að Namibíu, Botsvana, Simbabve, Mósambík og Svasílandi. Lesótó er sjálfstætt ríki innan landamæra Suður-Afríku. Suður-Afríka er fjölþjóðlegt sam- félag þar sem íbúar tilheyra mörgum ólíkum þjóðarbrotum sem tala ólík tungumál. Í stjórnarskrá Suður-Afr- íku eru ellefu tungumál skilgreind sem opinber tungumál landsins. Tvö þessara tungumála eru af evrópsk- um uppruna: enska og afrikaans sem þróaðist út frá hollensku. Enska er almennt notuð á opinberum vett- vangi en hún er þó aðeins fjórða algengasta móðurmálið. Um 80% íbúa Suður-Afríku teljast til afrískra þjóðarbrota sem tala nokkur ólík bantúmál. Um 20% íbúa eiga evrópskan, asískan eða blandaðan uppruna. Öllum þjóðarbrotum og málahópum eru tryggð sæti á suðurafríska þinginu. Stjórn landsins var í höndum hvíts minnihluta til ársins 1994. Stjórnin rak aðskilnaðarstefnu frá 1948 þar sem fólk af ólíkum kynþáttum var aðskilið. Þeldökkir íbúar landsins misstu síðan borgararéttindi sín, og þar með kjörgengi og kosningarétt, árið 1970. Vegna aðskilnaðarstefn- unnar var landið beitt viðskipta- þvingunum. Fyrstu lýðræðislegar kosningar í Suður-Afríku voru 1994 þegar hinn 75 ára gamli Nelson Mandela var kosinn forseti. Þessi kjúklingaréttur er blanda af mörgu eins og títt er í Suður Afríku. 1 kjúklingur eða blandaðir bitar ( það má einnig nota lambakjöt) 2 gulir laukar 2 hvítlauksrif Olía til að steikja úr 6-8 meðalstórara kartöflur 1 dós tómatar Ca. 5 dl. vatn Ca. 1 tsk. salt Kryddið: 4-5 negulnaglar 1-2 kanelstengur 1-2 lárviðarlauf 1 msk. karrý 1 tsk. kardimommur 1 tsk. broddkúmen (cummin) Smá chilipipar Pipar úr kvörn Hitið olíuna í potti og látið laukinn og hvítlaukinn mýkjast í nokkrara mínútur, bætið síðan kryddinu við og látið það steikjast með í nokkrar mínútur – passið að hafa ekki of mikinn hita. Látið síðan kjúklingabitana steikjast í krydd- blöndunni í nokkrar mínútur. Hellið síðan tómötunum og vatninu saman við með salti. Látið sjóða við hægan hita í ca. 20 mínútur – bætið þá kar- töflunum við og sjóðið í 20 mínútur í viðbót eða þangað til kjúklingurinn og kartöflurnar eru soðin. Gott er að setja skeið af grískri jógúrt á diskinn. Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu. Kv, Kristjana 12 Að hætti hússins Kristjana Sigmundsdóttir kristjanasig@simnet.is KJÚKLINGAPOTTUR Kjör öryrkja eru „galin“! - Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks brátt í höfn(?) Örykjabandalag Íslands hefur verið virkt í þjóðfé-lagsumræðunni að undan- förnu. Meðal þess sem félagið hefur lagt áherslu á að bæta þurfi er: - 60% fjölskyldna með börn eiga erfitt með að ná endum saman á Íslandi. - Staða fatlaðra kvenna sem verða fyrir ofbeldi kallar á sérstakt átak. Þeim er ekki trúað. Sérstakar kröf- ur eru til framburðar þeirra, að tjáning þeirra sé öðruvísi en hún er. - Fötluð börn í skólunum njóta ekki jafnræðis á við ófötluð börn. Það er sérstakt að það skuli þurfa að bjóða upp á sérstök tómstunda- úrræði fyrir fötluð börn. - Fatlað fólk er fjölbreyttari hópur en hinna ófötluðu. Samt þarf sér- lausnir fyrir fatlað fólk! - Kjör aldraðra eru „galin.“ Og ekki síst: Skorað er á íslensk stjórnvöld að staðfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ísland skrifaði und- ir samninginn árið 2007 en hefur ásamt þremur öðrum Evrópuríkj- um ekki staðfest samninginn. Ellen Calmon, formaður ÖBÍ, segir að fyrrverandi ráðherra innanríkismála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hafi síðastliðið haust sagt að hún ætlaði að leggja fram frumvarp á vorþingi 2015 um lögfestingu samningsins. „Lögfesting felur í sér frekari rétt- arvernd einstaklinga en innleiðing getur falið í sér lögfestingu. Það að samningurinn hafi hvorki verið lög- festur né innleiddur þýðir að erfiðara verður fyrir fólk að sækja rétt sinn til dómstóla á grundvelli samningsins.“ Ellen segir innleiðingarferli, sem innanríkisráðuneytið hefur umsjón með, hafið. Nú vonist hún til að samningurinn verði lögfestur sem fyrst. Á vef ráðuneytis má þó lesa texta sem bendir til þess að eitt- hvað sé í endanlega innleiðingu: „Alþingi samþykkti hinn 11. júní 2012 samþykkti framkvæmdaá- ætlun um málefni fatlaðs fólks til ársins 2014. Á grundvelli hennar hefur innanríkisráðuneytið leitt vinnu samstarfsnefndar ráðuneyta við að undirbúa fullgildingu samn- ingsins. Ráðuneytin hafa farið yfir löggjöf hvert á sínu sviði og lagt til breytingar á lögum til samræmis við ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Á grundvelli þessarar vinnu liggur nú fyrir greining á efnisákvæðum samningsins og samanburður á þeim við núgildandi lög.“ ÞHH ellen Calmon, formaður Örykjabanda- lags Íslands, á blaðamannafundi í sl. viku. Mynd: ÞHH

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.