Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.02.2008, Blaðsíða 31

Víkurfréttir - 21.02.2008, Blaðsíða 31
31ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR 1 Fulham-West Ham 2 X2 2 Liverpool-Middlesbro 1X 1 3 Portsmouth-Sunderland 1 1 4 Wigan-Derby 1X 1 5 Blackpool-Charlton 12 2 6 C.Palace-Wolves 1X2 12 7 Q.P.R.-Sheff. Utd. 2 1 8 Stoke-Ipswich 1 1 9 Colchester-Bristol C. 2 2 10 Coventry-Leicester 2 1X 11 Plymouth-Burnley 1 1X2 12 Scunthorpe-Southampton 2 X2 13 Sheff.Wed.-Cardiff 1X 2 Fyrirtækjaleikur barna- og unglingaráðs Keflavíkur SG Bílar Sjúkraþj. Suðurnesja Áfangar skelltu Bílahorninu hjá Sissa í síðustu viku með 11 rétta gegn 8 þegar fyrirtækjaleikur barna- og unglingaráðs Keflavíkur hóf göngu sína að nýju. Þórarinn Kristjánsson reyndist öflugur fyrir Áfanga en að þessu sinni eru það SG Bílar og Sjúkraþjálfun Suðurnesja sem mætast með tipphæfileikana að vopni. Allt er þegar þrennt er! - Grindavík leikur til bikarúrslita á sunnudag Það er ekki í boði að koma heim til Grindavíkur með fjórða bikarsilfrið segir Jovana Lilja Stefánsdóttir fyrirliði Grindavíkur sem á sunnudag mætir Íslands- og bikarmeist- urum Hauka í úrslitum Lýsing- arbikars kvenna í körfuknatt- leik. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni og hefst kl. 14:00. Leikurinn verður fjórði bikarúrslitaleikur kvennaliðs Grindavíkur sem ávallt hafa hafnað í 2. sæti. Á sunnudag leikur Jovana Lilja sinn þriðja bikarúrslitaleik á ferlinum og ætlar sér alls ekki að bæta við þriðja bikarsilfrinu í safnið. „Auðvitað er maður þreyttur á silfrinu í Höllinni, það er svekkj- andi. Nú er ekki í boði að tapa í annað sinn fyrir Haukum í bikarúrslitum, allt er þegar þrennt er,“ sagði Jovana hress í bragði en þetta verður þriðja tilraun Jovönu til þess að landa bikargulli. „Mér finnst við með meiri breidd en Haukar og við eigum að geta keyrt aðeins á þær en Haukar hafa stóra leikmenn sem minna er af hjá okkur. Það er því ákjósan- legt að hleypa hraðanum upp í leiknum, spila góða vörn og fá auðveldar körfur,“ sagði Jovana og viðurkenndi að síðustu miss- eri hefði bikarúrslitaleikurinn verði henni ofarlega í huga. „Maður hefur samt þurft að setja bikarleikinn aðeins á bið út af deildarleikjum en ég er búin að hugsa mikið um leikinn,“ sagði Jovana sem átti von á því að Grindvíkingar myndu gera eitthvað skemmtilegt saman til að efla andann í hópnum fyrir leik. „Við erum vanar að gera eitthvað saman fyrir svona leiki, fara að borða saman og peppa liðið aðeins upp. Sjálf reyni ég að vakna tímanlega á leikdegi en ekki of snemma. Ég hugsa ekki mikið um leikinn yfir dag- inn, hef ekki lagt það í vana minn því mér hefur fundist það truflandi. Ég tek mér nú samt smá tíma í að spá í þessu, allt er gott í hófi,“ sagði Jovana en hverju má búast við af Haukum á sunnudag? „Ég held að Haukar komi dýr- vitlausar í þennan leik, þetta er bikarúrslitaleikur og við búumst ekki við neinu öðru af þeim. Við vitum hvað við þurfum til að vinnan þennan leik, ef við gerum það sem Igor leggur fyrir okkur þá vinnum við þennan leik. Við erum sjálfum okkur verstar og bestar. Það er draumur hvers körfuboltamanns að leika til bikarúrslita í Höllinni og við förum ekki þangað til að koma heim til Grindavíkur með silfur fyrir okkur og alla sem koma að körfunni í Grindavík. Við munum gera okkar besta til að taka dolluna núna.“ Keflavíkurvöllur hlýtur nafn Sparisjóðsins Knattspyrnudeild Kefla-víkur skrifaði á dög- unum undir styrktarsamning við Sparisjóðinn í Keflavík en í honum felst m.a. að SpKef verður, eins og mörg síðustu ár, aðalstyrktaraðili deildar- innar og með jafnvel enn veg- legri hætti en síðustu ár. Á meðal þess sem um er getið í samningnum sem Rúnar Arn- arsson, fráfarandi formaður deildarinnar, og Geirmundur Kristinsson, Sparisjóðsstjóri, undirrituðu er að á samnings- tímanum mun Keflavíkurvöllur ganga undir nafninu Sparisjóðs- völlurinn í Keflavík. Mærðu þeir Rúnar og Geirmundur báðir samstarfið sem hefur að þeirra sögn verið afar ánægju- legt í gegnum árin og spáðu því að svo yrði um ókomna tíð. Það skal tekið fram að knatt- spyrnuvöllurinn í Sandgerði ber einnig nafn Sparisjóðsins. Samheldinn hópur! Víkurfréttir litu við á æfingu hjá Grindavíkurkonum sem ætla sér stóra hluti í Laugardalshöllinni á sunnudag.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.