Víkurfréttir - 13.03.2008, Qupperneq 30
30 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 11. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Gyða Arnmundsdóttir, sérkennslufulltrúi Reykjanesbæjar, og
Guðbjörg Ingimundardóttir, sérkennari Holtaskóla, héldu
fyrir skemmstu fyrsta námskeið fyrir sérkennara á Suður-
nesjum í notkun á greiningarforritinu.
LOGOS er forrit sem greinir dyslexíu og aðra lestrarörðugleika
og segir í tilkynningu frá aðstandendum námskeiðisins að um
sé að ræða byltingu í greiningum á lestrarerfiðleikum á Íslandi.
Forritið er þýtt úr norsku og er byggt á nýjustu rannsóknum Pró-
fessors Torleivs Høiens og samstarfsmanna hans. Það var staðlað
og staðfært á síðastliðnum tveimur árum af þeim stöllum ásamt
Guðlaugu Snorradóttur, sérkennara úr Kópavogi og Bjarnfríði
Jónsdóttur, sérkennslufulltrúa Grindavíkur, og nutu þær að-
stoðar frá sérkennurum víða um land.
Bjarnfríður og Guðlaug héldu annað námskeið í Kópavogi á
sama tíma og segja eftirspurnina mikla. „Prófið er nýlega komið
út og hefur því verið mjög vel tekið og margir skólar hafa þegar
fest kaup á því. Sérkennarar sýna því mikinn áhuga því auk þess
að vera hagnýtt greiningartæki þá fylgja því úrræði sem hægt er
að setja af stað strax þegar greiningu er lokið. Þá segja sérkenn-
arar að LOGOS sé frábært tæki til að meta árangur kennslu eftir
að þjálfunartímabili lýkur. Bið eftir greiningu mun því styttast
og niðurstöður liggja strax fyrir þegar greiningu er lokið. Próf-
inu fylgir einnig viðamikil handbók þar sem fjallað er um lestur
og lestrarörðugleika.“
Gyða og Guðbjörg stóðu fyrir námskeiði í Njarðvíkurskóla.
Kynntu forrit sem greinir
lestrarörðugleika
VF
/
ÞO
RG
IL
S
JÓ
N
SS
O
N
������������������������
������������������������������
������ ���������������������
����������������������
�����
Ekki er á borðinu að hefja orkuvinnslu á
vegum Suðurlinda ohf. en það hefur ekki
verið útilokað af sveitarfélögunum sem að
því standa.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar
sagði í Viðskiptablaðinu, að ekki væri ætlunin
með stofnun Suðurlinda ohf. að hefja orku-
vinnslu í nafni félagsins. „Um það hefur ekki
verið tekin nein ákvörðun enda ekki stofnað
til félagsins á þeim nótum,“ sagði Lúðvík. Að-
spurður sagðist Lúðvík ekki geta aftekið að fé-
lagið hafi eitthvað með nýtingu orkulinda að
gera í framtíðinni en um það hefði ekki verið
tekin nein ákvörðun á þessu stigi. Hann benti
á að þegar félagið hefði verið stofnað hefði
ekki verið búið að leggja fram orkulagafrum-
varp iðnaðarráðherra sem er nú til afgreiðslu
á Alþingi.
Suðurlindir:
Ekki á borðinu að hefja orkuvinnslu