Víkurfréttir - 13.03.2008, Blaðsíða 38
38 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
jbo@vf.is Íþróttapósturinn er
Sláturhúsið verður Toyotahöllin
Íþróttahúsið í Keflavík, sem oft hefur verið uppnefnt
Sláturhúsið, hefur fengið nýtt
nafn. Körfuknattleiksdeild
Keflavíkur samdi við Ævar
Ingólfsson í Toyotasalnum í
Reykjanesbæ um að nafnið
verði héðan í frá Toyotahöllin
í Keflavík.
Samningurinn er til loka árs
2010 og felur í sér myndar-
legan fjárstuðning Toyota í
Reykjanesbæ, til deildarinnar
sem Birgir Bragason, formaður
körfuknattleiksdeildarinnar,
segir skipta sköpum í rekstr-
inum.
DHL styrkir kvennalið Keflavíkur
Gengið hefur verið frá styrktarsamning á milli
DHL og meistaraflokks Kefla-
víkurkvenna í knattspyrnu til
næstu þriggja ára. DHL ger-
ist þar með einn af aðalstyrkt-
araðilum meistaraflokks
kvenna og verður fyrirtækið
með auglýsingu á keppnis-
treyjum meistaraflokks bæði
aðal- og varasetti þegar liðið
hefur keppni í Landsbanka-
deild kvenna í sumar.
Atli Freyr Einarsson, sölu- og
markaðsstjóri DHL, og Þórður
Þorbjörnsson stjórnarmaður í
meistaraflokksráði kvenna hjá
Keflavík skrifuðu undir samn-
inginn á dögunum.
Miklar tilfinningar í einvíginu
Úrslitakeppnin í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik hefst annað kvöld
þegar KR tekur á móti Grindavík í fyrstu viður-
eign liðanna í undanúrslitum. Leikurinn hefst
kl. 19:15 í DHL-Höllinni í Vesturbænum en
Keflavík og Haukar mætast í hinni undanúr-
slitaviðureigninni. Fyrsti leikur Keflavíkur og
Hauka fer fram í Toyotahöllinni í Keflavík
á laugardag kl. 17:00 en þjálfari Keflavíkur-
kvenna, Jón Halldór Eðvaldsson, segir einvígið
vera tilfinningaþrungið. Jón var á mánudag
útnefndur besti þjálfari deildarinnar fyrir um-
ferðir 18-24 en það var í annað sinn í vetur sem
hann var valinn besti þjálfari umferðanna þar
sem hann varð einnig fyrir valinu í umferðum
1-9. Keflavík varð deildarmeistari á dögunum
og þrátt fyrir að hvert áfallið á fætur öðru hafi
dunið yfir Keflvíkinga í vetur hefur Jón haldið
vel á spilunum með Keflavík og ætlar sér ekk-
ert annað en Íslandsmeistaratitilinn.
„Gengi okkar í lok deildarkeppninnar er klárlega
gott veganesti inn í úrslitakeppnina og við höfum
verið að spila vel upp á síðkastið og ég hef trú á
því að það haldi áfram inn í úrslitakeppnina,“
sagði Jón sem hefur látið Keflavík pressa mikið í
vetur og leika svæðisvörn. Hefur liðið úthald til
að leika áfram af sama krafti út alla úrslitakeppn-
ina? „Það er spurning hvort við þurfum ekki að
gera einhverjar breytingar á vörninni okkar gegn
Haukum þar sem við lendum gegn leikmanni
eins og Victoriu Crawford sem er góður skot-
maður. Við höfum úthald til að pressa allan völl
og við höfum mikla breidd sem skiptir rosalega
miklu máli og ef við þurfum að hlaupa einhverja
leikina í 40 mínútur þá gerum við það. Liðið er
í það góðu formi að ef við hlaupum heilar 40
mínútur þá förum við ekki í oddaleiki,“ sagði Jón
Halldór sem í fyrra máti sætta sig við að láta ansi
oft í minnipokann gegn Haukum.
„Það eru miklar tilfinningar í þessu einvígi þar
sem Haukar völtuðu yfir okkur í öllum keppnum
í fyrra og ég sofna oft með þá staðreynd í
hausnum. Ég ber samt virðingu fyrir Haukum og
þegar maður ber virðingu fyrir andstæðingum
sínum þá er hægt að spila mjög góðan körfubolta
sem er einmitt það sem við ætlum okkur að gera.
Við munum gera allt í okkar valdi til þess að
hefna fyrir ófarirnar gegn Haukum í fyrra,“ sagði
Jón en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í undan-
úrslitum kemst áfram í úrslitin.
Fjórir frá Suðurnesjum skipuðu svo úrvalsliðið í
umferðum 18-24 í Iceland Express deild kvenna.
Tiffany Roberson var valin besti leikmaðurinn
og þá var Petrúnella Skúladóttir einnig í liðinu en
báðar koma þær úr Grindavík. Jón Halldór var
valinn besti þjálfarinn og bakvörðurinn Pálína
Gunnlaugsdóttir var einnig í liðinu. Aðrir í lið-
inu voru Hildur Sigurðardóttir, KR, og LaKiste
Barkus, Hamri.
Fjölmennt judomót
Tæplega 100 judokrakkar tóku þátt í judomóti sem fram fór í
Grindavík þann 1. mars síðastliðinn
en judodeildir Grindavíkur, Reykja-
víkur, ÍR og Akureyrar sendu kepp-
endur í mótið sem heppnaðist með
miklum myndarbrag.
Grindvíkingar höfðu sigur á mótinu
með sigra í sjö flokkum af níu. Eftirfar-
andi judokrakkar frá Grindavík höfðu
sigra í sínum flokkum: Smári Stefáns-
son, Andri Hrafn Vilhelmsson, Sigur-
jón Rúnarsson, Friðfinnur Sigurðsson,
Guðjón Axel Guðjónsson, Heiðrún
Pálsdóttir og Marcin Ostrowski en
hann fékk einnig verðlaun fyrir bestu
tæknina á mótinu.
Tvenn silfurverðlaun hjá Keflavík
Bikarmót í hópfimleikum fó r f r a m þ a n n 2 3 .
febrúar síðastliðinn en mótið
fór fram á Selfossi og átti
Fimleikadeild Keflavíkur eitt
lið á mótinu.
Lið Keflavíkur vann til tvennra
silfurverðlauna á mótinu.
Í keppni á trampólíni og
svo í dansi. Liðið fékk 7,75 í
einkunn í dansi, 6,3 á dýnu
og 6,85 á trampólíni. Liðið
skipuðu 14 vaskar stelpur frá
fimleikadeildinni en nánari
fréttir af FK má finna inni á
vefsíðu Keflavíkur.
Það voru átök í
Röstinni sem aldrei
fyrr!