Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.03.2008, Blaðsíða 38

Víkurfréttir - 13.03.2008, Blaðsíða 38
38 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR jbo@vf.is Íþróttapósturinn er Sláturhúsið verður Toyotahöllin Íþróttahúsið í Keflavík, sem oft hefur verið uppnefnt Sláturhúsið, hefur fengið nýtt nafn. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur samdi við Ævar Ingólfsson í Toyotasalnum í Reykjanesbæ um að nafnið verði héðan í frá Toyotahöllin í Keflavík. Samningurinn er til loka árs 2010 og felur í sér myndar- legan fjárstuðning Toyota í Reykjanesbæ, til deildarinnar sem Birgir Bragason, formaður körfuknattleiksdeildarinnar, segir skipta sköpum í rekstr- inum. DHL styrkir kvennalið Keflavíkur Gengið hefur verið frá styrktarsamning á milli DHL og meistaraflokks Kefla- víkurkvenna í knattspyrnu til næstu þriggja ára. DHL ger- ist þar með einn af aðalstyrkt- araðilum meistaraflokks kvenna og verður fyrirtækið með auglýsingu á keppnis- treyjum meistaraflokks bæði aðal- og varasetti þegar liðið hefur keppni í Landsbanka- deild kvenna í sumar. Atli Freyr Einarsson, sölu- og markaðsstjóri DHL, og Þórður Þorbjörnsson stjórnarmaður í meistaraflokksráði kvenna hjá Keflavík skrifuðu undir samn- inginn á dögunum. Miklar tilfinningar í einvíginu Úrslitakeppnin í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik hefst annað kvöld þegar KR tekur á móti Grindavík í fyrstu viður- eign liðanna í undanúrslitum. Leikurinn hefst kl. 19:15 í DHL-Höllinni í Vesturbænum en Keflavík og Haukar mætast í hinni undanúr- slitaviðureigninni. Fyrsti leikur Keflavíkur og Hauka fer fram í Toyotahöllinni í Keflavík á laugardag kl. 17:00 en þjálfari Keflavíkur- kvenna, Jón Halldór Eðvaldsson, segir einvígið vera tilfinningaþrungið. Jón var á mánudag útnefndur besti þjálfari deildarinnar fyrir um- ferðir 18-24 en það var í annað sinn í vetur sem hann var valinn besti þjálfari umferðanna þar sem hann varð einnig fyrir valinu í umferðum 1-9. Keflavík varð deildarmeistari á dögunum og þrátt fyrir að hvert áfallið á fætur öðru hafi dunið yfir Keflvíkinga í vetur hefur Jón haldið vel á spilunum með Keflavík og ætlar sér ekk- ert annað en Íslandsmeistaratitilinn. „Gengi okkar í lok deildarkeppninnar er klárlega gott veganesti inn í úrslitakeppnina og við höfum verið að spila vel upp á síðkastið og ég hef trú á því að það haldi áfram inn í úrslitakeppnina,“ sagði Jón sem hefur látið Keflavík pressa mikið í vetur og leika svæðisvörn. Hefur liðið úthald til að leika áfram af sama krafti út alla úrslitakeppn- ina? „Það er spurning hvort við þurfum ekki að gera einhverjar breytingar á vörninni okkar gegn Haukum þar sem við lendum gegn leikmanni eins og Victoriu Crawford sem er góður skot- maður. Við höfum úthald til að pressa allan völl og við höfum mikla breidd sem skiptir rosalega miklu máli og ef við þurfum að hlaupa einhverja leikina í 40 mínútur þá gerum við það. Liðið er í það góðu formi að ef við hlaupum heilar 40 mínútur þá förum við ekki í oddaleiki,“ sagði Jón Halldór sem í fyrra máti sætta sig við að láta ansi oft í minnipokann gegn Haukum. „Það eru miklar tilfinningar í þessu einvígi þar sem Haukar völtuðu yfir okkur í öllum keppnum í fyrra og ég sofna oft með þá staðreynd í hausnum. Ég ber samt virðingu fyrir Haukum og þegar maður ber virðingu fyrir andstæðingum sínum þá er hægt að spila mjög góðan körfubolta sem er einmitt það sem við ætlum okkur að gera. Við munum gera allt í okkar valdi til þess að hefna fyrir ófarirnar gegn Haukum í fyrra,“ sagði Jón en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í undan- úrslitum kemst áfram í úrslitin. Fjórir frá Suðurnesjum skipuðu svo úrvalsliðið í umferðum 18-24 í Iceland Express deild kvenna. Tiffany Roberson var valin besti leikmaðurinn og þá var Petrúnella Skúladóttir einnig í liðinu en báðar koma þær úr Grindavík. Jón Halldór var valinn besti þjálfarinn og bakvörðurinn Pálína Gunnlaugsdóttir var einnig í liðinu. Aðrir í lið- inu voru Hildur Sigurðardóttir, KR, og LaKiste Barkus, Hamri. Fjölmennt judomót Tæplega 100 judokrakkar tóku þátt í judomóti sem fram fór í Grindavík þann 1. mars síðastliðinn en judodeildir Grindavíkur, Reykja- víkur, ÍR og Akureyrar sendu kepp- endur í mótið sem heppnaðist með miklum myndarbrag. Grindvíkingar höfðu sigur á mótinu með sigra í sjö flokkum af níu. Eftirfar- andi judokrakkar frá Grindavík höfðu sigra í sínum flokkum: Smári Stefáns- son, Andri Hrafn Vilhelmsson, Sigur- jón Rúnarsson, Friðfinnur Sigurðsson, Guðjón Axel Guðjónsson, Heiðrún Pálsdóttir og Marcin Ostrowski en hann fékk einnig verðlaun fyrir bestu tæknina á mótinu. Tvenn silfurverðlaun hjá Keflavík Bikarmót í hópfimleikum fó r f r a m þ a n n 2 3 . febrúar síðastliðinn en mótið fór fram á Selfossi og átti Fimleikadeild Keflavíkur eitt lið á mótinu. Lið Keflavíkur vann til tvennra silfurverðlauna á mótinu. Í keppni á trampólíni og svo í dansi. Liðið fékk 7,75 í einkunn í dansi, 6,3 á dýnu og 6,85 á trampólíni. Liðið skipuðu 14 vaskar stelpur frá fimleikadeildinni en nánari fréttir af FK má finna inni á vefsíðu Keflavíkur. Það voru átök í Röstinni sem aldrei fyrr!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.