Víkurfréttir - 13.03.2008, Blaðsíða 39
39ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
1 Arsenal-Middlesbro 1 1
2 Derby-Man.Utd. 2 2
3 Liverpool-Reading 1 1
4 Portsmouth-Aston Villa 1X 12
5 Sunderland-Chelsea 2 2
6 West Ham-Chelsea 12 12
7 Ipswich-Charlton 1 1
8 Watford-Stoke 1 1X
9 Bristol City-Plymouth 1 1
10 Coventry-Sheff.Wed. 1 1X
11 Fulham-Everton 12 2
12 Man.City-Tottenham 1X2 1X2
13 Wigan-Bolton 1X 1
Fyrirtækjaleikur
barna- og
unglingaráðs
Keflavíkur
Vöruhús FC Makarúha
Myllubakkaskóli og
SpKef áttust við í
fyrirtækjaleiknum
í síðustu viku þar
sem Myllubakkaskóli
hafði sigur úr býtum
með 7 réttum gegn
5 frá Sparisjóðnum.
Að þessu sinni eigast
við FC Makarúha
(innkaupadeild
Fríhafnar) og svo
Vöruhús Fríhafnar og
ljóst að hart verður barist
í þessum innanhússlag.
Jöfn á toppi keppninnar
eru Hitaveita Suðurnesja
og Hjalti Guðmundsson
ehf með 10 stig.
SPORTSPJALL
Guðmundur Steinarsson
Íþrótt:
Fótbolti
Félag:
Keflavík
Hjúskapar-
staða: Trú-
lofaður þangað til í maí, þá
verður gengið í það heilaga.
Hvenær hófst þú að stunda
þína íþrótt? Ég var á fjórða
aldursári.
Hver var fyrsti þjálfar-
inn þinn? Minnir að það
hafi verið Gunnar Jónsson
skólastjóri í Heiðarskóla, en
Gunnar Magnús Jónsson kom
líka snemma inn í þetta.
Hvað er framundan? Nú það
er páskafrí, svo æfingaferð til
Tyrklands. Gifting og svo frá-
bært sumar í boltanum.
Eftirminnilegasti áfanginn
á ferlinum? Bikarúrslit 2006.
Hvað er hægt að hugsa sér
betra en að vinna KR í úrslita-
leik í bikar og vera þess svo
heiðurs aðnjótandi að fá að
taka við bikarnum sem fyr-
irliði Keflavíkur. Svo er líka
eini A-landsliðsleikur minn
til þessa mjög eftirminnilegur,
en hann var gegn Brasilíu, á
þeirra heimavelli fyrir framan
tæplega 60 þúsund manns. Úr-
slitin eru aukaatriði.
Uppáhalds:
Leikari: Mads Michaelsen og
Simun Eiler Samuelsen.
B í ó m y n d : S h a w s h a n k
Redemption
Bók: Ég er hann DIEGO
Alþingismaður: Er hægt að
eiga sér uppáhalds í þessu?
Staður á Íslandi: KR- völlur-
inn.
Hvað vitum við ekki um þig?
Ég hef spilað 2 úrslitaleiki á
Íslandsmóti sem markmaður
og tapað þeim báðum, fengið
samanlagt 8 mörk á mig. Sem
sagt ekki góður á milli stang-
anna. Æfði reyndar mark í
handbolta, kannski ástæðan
fyrir því að Keflavík náði
aldrei langt þar.
Hvernig æfir þú til að ná
árangri? Vel og mikið. Fer
eftir þeim fyrirmælum sem
að þjálfarinn setur (eða oftast
allavega).
Hver eru nú þín helstu mark-
mið? Slá markametið hans
pabba og verða Íslandsmeist-
ari með Keflavík.
Skemmtileg saga af ferlinum:
Það var þegar að Kristján þjálf-
ari gifti sig hér um árið. Við
strákarnir í liðinu fengum þá
hugmynd frá einum góðum,
ja... eigum við ekki bara að
segja félaga um hvað væri
hægt að gefa þjálfaranum í
brúðkaupsgjöf. Niðurstaðan
var sú að það voru keyptir 2
hamstrar karl og kona. Svo
var keypt eitt stykki búr, með
húsi og öllu tilheyrandi. Þessu
var svo pakkað inn og farið
með þetta í brúðkaupið. Þar
var þessu komið fyrir ásamt
öðrum gjöfum. Þessi gjöf vakti
mikla hrifningu hjá börnum
þjálfarans, en ekki þeim
hjónum. Þetta var samt gjöf
sem að ávaxtaði sig fljótt og
mikið. Veit ekki hver staðan
er á hömstrunum núna, því
verður Kristján að svara.
Skilaboð til upprennandi
íþróttamanna: Það er að hafa
gaman af því sem verið er að
gera. Og það hefst ekki nema
með því að leggja mikið á sig,
þá nær maður árangri og þá
fyrst verður gaman.
Söguleg stund í Sandgerði
Andri Már Elvarsson varð í síðustu viku fyrsti hnefaleikamaðurinn á Íslandi til þess
að verða útnefndur Íþróttamaður bæjarfélags.
Andri var útnefndur Íþróttamaður Sandgerð-
isbæjar árið 2007 en hann er nemandi við 7.
bekk í Grunnskólanum í Sandgerði og einhver
efnilegasti hnefaleikamaður þjóðarinnar. Þá
varð Andri yngsti íþróttamaðurinn til þess að
hljóta nafnbótina Íþróttamaður ársins hjá Sand-
gerðisbæ.
Þeir Aron Reynisson frá Knattspyrnudeild Reynis
og Magnús Ríkharðsson frá Golfkúbbi Sand-
gerðis fengu einnig tilnefningar en Andri hreppti
hnossið og tók við verðlaununum í Vörðunni í
Sandgerði síðastliðinn föstudag. Þessi efnilegi
boxari háði 11 bardaga á síðasta ári og hafði sigur
í níu þeirra en allir bardagarnir voru gegn eldri,
stærri og þyngri hnefaleikaköppum. Andri æfir
hnefaleika með Hnefaleikafélagi Reykjaness og
segist ætla að standa sig vel í framhaldinu og
halda áfram að vinna bardaga. „Það er mikið um
púlæfingar í boxinu og við förum líka oft í hring-
inn,“ sagði Andri í samtali við Víkurfréttir en upp-
áhalds boxarinn hans er Marco Antonio Barreira.
Andri setur markið hátt og ætlar sér í framtíðinni
að komast á Ólympíuleikana.
Hnefaleikafrömuðurinn Guðjón Vilhelm hafði
þetta að segja um einn efnilegasta lærisvein sinn:
„Það er undir honum sjálfum komið hvað hann
vill gera því hann getur náð mjög langt ef hann
heldur rétt á spilunum. Andri hefur mikinn áhuga
á íþróttinni og er duglegur að æfa og hikar ekki
við að húðskamma eldri strákana þegar þeir
kvarta undan púlæfingum. Nú er Andri kominn
í góðar hendur hjá Daða Ástþórssyni sem þjálfar
keppnishópna hjá félaginu og framtíðin björt hjá
þessum strák,“ sagði Guðjón.
Á föstudag voru einnig tveir íþróttamenn sem
stunda íþróttir utan Sandgerðisbæjar heiðraðir
fyrir góðan árangur í íþróttum. Lilja Íris Gunn-
arsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur
með kvennaknattspyrnuliði Keflavíkur en þar er
hún fyrirliði og Sigríður Guðrún Jónsdóttir fékk
viðurkenningu fyrir pílukast. Sigríður Guðrún
er núverandi Íslandsmeistari í pílukasti og hefur
haldið titlinum síðustu þrjú ár og er langstiga-
hæsti kvenmaðurinn á stigalista landsins í pílu-
kasti.
Venju samkvæmt fer kjörið á Íþróttamanni Sand-
gerðisbæjar fram á fæðingardegi Þórðar Magnús-
sonar ár hvert en hann var einn af stofnendum
Reynis og markaði djúp spor í sögu félagsins.
Nemendur við Tónlistarskólann í Sandgerði léku
nokkur lög við hátíðina og að verðlaunaafhend-
ingu lokinni var gestum boðið til kaffisamsætis.
Andri er fyrsti hnefaleikamaður Íslands til
þess að vera valinn Íþróttamaður ársins í
sínu bæjarfélagi.