Víkurfréttir - 15.05.2008, Síða 9
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 15. MAÍ 2008 9STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
SJÁVARÚTVEGSFRÆÐI
V I Ð S K I P T A - O G R A U N V Í S I N D A D E I L D
Kynntu þér nám í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri á www.haskolanam.is
Þá er sjávarútvegsfræði eitthvað fyrir þig. Í náminu er fjallað um allt ferlið frá vöktun á
umhverfi auðlindarinnar, þ.e. hafinu þar til að afurðin er komin á disk neytenda á
innlendum eða alþjóðlegum mörkuðum. Sjávarútvegur er því mjög fjölbreyttur og
alþjóðlegur.
Nám í sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri er þverfaglegt og sérstakt í
íslenskri námsflóru. Þess er krafist að nemendur kunni skil á grunnhugtökum á sviði
raunvísinda og viðskipta sem og þáttum sem snerta sjávarútveginn beint.
VILT ÞÚ LÆRA UM MIKILVÆGUSTU AUÐLIND ÍSLENDINGA?
Móttaka umsókna er hafin - umsóknarfrestur er til 5. júní 2008
Opnunarhátíð verður á Fitjum alla helgina þegar
fyrir tækin sem þar eru fagna formlega opnun
verslunarmiðstöðvarinnar á Fitjum. Níu verslanir og
þjónustufyrirtæki hafa hreiðrað um sig í verslunar-
miðstöðinni á Fitjum. Það eru Bónus, Hagkaup Sérvara,
BT, Subway, Fiskisaga, Gallerý Kjöt, Bakaríið Kornið,
Húsasmiðjan og Blómaval.
Í Víkurfréttum í dag er átta síðna blaðauki með auglýs-
ingum frá fyrirtækjunum á Fitjum þar sem þau auglýsa
tilboð og afslætti sem verða í boði um helgina. Þá
ætlar Gallerý Kjöt að grilla fyrir gesti og gangandi á
laugardaginn. Meðfylgjandi mynd tók Þorgils Jónsson yfir
nýju verslunarmiðstöðina nú í vikunni.
Opnunarhátíð
Á FITJUM
www.vf. is