Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.09.2008, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 04.09.2008, Blaðsíða 6
6 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 36. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR Rafmúli ehf. auglýsir eftir rafvirkjum til starfa. Áhugasamir geta sett upplýsingar inn á netfangið bergsteinn@rafmuli.is eða haft samband við Bergstein í síma 897 8924. RAFVIRKJAR ÓSKAST Helstu niðurstöður fyr ir fyrstu sex mánuði ársins 2008 hjá Sparisjóðnum í Keflavík er tap eftir skatta sem nam 10,6 milljörðum. Neikvæð þróun á hlutabréfamarkaði hafði afgerandi áhrif á niður- stöðu tímabilsins. Hreinar vaxtatekjur námu 992 milljónum. Hreinar þjónustu- tekjur námu 244 milljónum. Hreinar rekstrartekjur voru neikvæðar um 9,95 milljarða. Helstu ástæður eru þróun hlutabréfamarkaða og varúð- arniðurfærsla eignasafns Spari- sjóðsins vegna óhagstæðra markaðsaðstæðna. Heildar- eignir Sparisjóðsins í Keflavík námu 90,5 milljörðum. Heildarútlán til viðskipta- vina Spari sjóðs ins námu 72 milljörðum í lok júní og hafa aukist um 9,6 milljarða frá áramótum, eða 15,46%. Innlán eru 62,34% af heildar- útlánum til viðskiptamanna. Innlán hafa aukist um 15,4% frá áramótum og voru 44,9 milljarðar í lok júní. Eigið fé Sparisjóðsins í Keflavík nam 12 milljörðum þann 30. júní 2008. Eiginfjárhlutfall (CAD) Spari sjóðs ins var 10,31% þann 30. júní 2008. Vaxta- munur tímabilsins var 2,15% í samanburði við 1,4% fyrir sama tímabil árið 2007 og 1,2% fyrir allt árið 2007. Sér- stök virðisrýrnun útlána nam 1.212 milljónum í samanburði við 157 milljónir á sama tíma- bili árið 2007. Um er að ræða varúðarframlag sem endur- speglar ekki endanleg útlána- töp, heldur er ætlað að mæta hugsanlegum útlánatöpum í framtíðinni. Nú er að ljúka fjármögnun íbúðabréfa Sparisjóðsins að verðmæti um 5 milljarða ISK í gegnum Íbúðalánasjóð. Endurskipu lagning starf- seminnar hefur m.a. leitt til fækkunar starfsmanna í Spari- sjóðnum um 11,2% frá ára- mótum eða um 17 stöðugildi. Svigrúm er til að lækka rekstr- arkostnað enn frekar og sífellt er leitað leiða til hagræðingar í rekstri. Á næstu mánuðum verður lögð áhersla á að styrkja grunn- rekstur sjóðsins enn frekar. „Samhliða grunnrekstri hefur Sparisjóðurinn í Keflavík á síðustu árum byggt afkomu sína að nokkru leyti á þróun fjármálamarkaða. Hefur það skipulag starfseminnar gefið vel af sér hingað til en undan- farna mánuði hafa hinsvegar óhagstæðar markaðsaðstæður komið verulega niður á af- komu okkar. Miklar lækkanir á mörkuðum, verðmætarýrnun og háir stýrivextir hafa skilað neikvæðri afkomu fyrstu 6 mánuðina. Þrátt fyrir þessi vonbrigði þá er grunnrekstur Sparisjóðsins í Keflavík hins vegar traustur og hafa hreinar vaxtatekjur aukist mikið milli ára. Vaxtamunur er nú um 2,15% og er afkoma grunn- rekstrar, samkvæmt starfsþátta- yfirliti, góð. Eiginfjárstaða Sparisjóðsins er einnig góð eins og eiginfjárhlutfall okkar (CAD hlutfall) ber með sér. Fjármögnun og lausafjárstaða Sparisjóðsins er í ágætu jafn- vægi í dag, sérstaklega eftir að fjármögnun íbúðalána okkar í gegnum Íbúðalánasjóð gengur í gegn“, segir Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri í tilkynningu og bætir við: „Í ljósi breyttra aðstæðna hefur verið farið í vinnu sem felur í sér endurskipulagningu starf- seminnar með það að mark- miði að styrkja grunnrekstur Sparisjóðsins enn frekar. Sam- setning eignasafns Sparisjóðs- ins verður einnig tekin til end- urskoðunar. Á síðustu misserum höfum við sameinast 3 öðrum spari- sjóðum og enn eru ónýtt ir ýmsir möguleikar til að ná fram þeirri hagræðingu sem í slíkum sameiningum eru fólgnir. Sparisjóðurinn stendur sterkur, þrátt fyrir það bakslag sem við finnum núna fyrir. Horfur út þetta ár eru betri og ef ytri aðstæður verða hagstæðar þá næst viðunandi rekstrarniður- staða á síðari helmingi ársins“. Tap Sparisjóðsins í Keflavík 10,6 milljarðar eftir skatta Smiður eða maður vanur verkstæðisvinnu óskast á trésmíðaverkstæði. Íslensku kunnátta skilyrði. Uppl. í síma 421 2200. ATVINNA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.