Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.09.2008, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 04.09.2008, Blaðsíða 8
8 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 36. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR ���������������������������� ����������������������������� ����������������������� ��������������������������������������� �������������������������������������� ����������������������� ������������������������ ���������������������������������������� �������������������������������������� ��������������������������������������� �������������������������������� ����������������������� ��������������������������������� ����� ������ ��������� ������ ������������������������������������������������ �������������������������������������������� KYNNINGAR HVATAGREIÐSLUR Kynningar fyrir foreldra 14 - 18 ára barna verða haldnar 9. og 23. september n.k. kl. 17:00 í Félagsheimili Keflavíkur, Hringbraut 108. Hvatagreiðslur eru árlegir styrkir til menningar-, íþrótta- og frístundastarf að upphæð kr. 7.000 fyrir íbúa í Reykjanesbæ á aldrinum 6 - 18 ára. Foreldrar geta nýtt greiðsluna þegar barnið er skráð í tómstundir og úthlutað svo styrknum á íbúavefnum mittreykjanes.is Hvatagreiðslur til ungmenna á aldrinum 14 - 18 ára eru skilyrtar því að for- eldrar þeirra sæki fræðslufund hjá Reykjanesbæ um það helsta sem hafa ber í huga við uppeldi ungmenna. Gylfi Jón Gylfason yfirsálfræðingur Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar fjallar um margvíslega áhættuhegðun sem fylgir þessum aldri. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12 Póstfang 230 Sími: 421 6700 Símbréf: 421 4667 Leikskólinn Vesturberg í Reykjanesbæ er nú kominn í nýtt og stærra húsnæði sem tekið var formlega í notkun fimmtudaginn 28. ágúst sl. Bygging leikskólans hófst í sept em ber árið 2007 og kemur hann í stað eldra íbúð- arhúsnæðis á tveimur hæðum sem breytt var í leikskóla árið 1997. Fasteign hf. byggði leik- skólann sem er fjögurra deilda og rúmar alls 94 börn. Við afhendinguna sungu nem- endur leikskólans fyrir boðs- gesti og afhentu þeir jafnframt verktakanum að gjöf verk sem unnið var úr afgöngum sem féllu til þegar framkvæmdir stóðu yfir. Svaraði verktakinn því til við það tækifæri að það skýrði óeðlilega rýrnun á efni sem hafi orðið á meðan á fram- kvæmdum stóð. Leikskólinn Vesturberg er op- inn og svæðaskiptur leikskóli þar sem áhersla er lögð á sjálfs- ákvörðunarrétt barnanna. Nýja Vesturberg hefur að geyma fjórar heimastofur og öll svæði í húsinu eru nefnd eftir örnefnum, svæðum eða húsum í Keflavíkurhverfi. Í samræmi við stækkunina hefur orðið helmings fjölgun barna sem og aukning starfs- manna. Nemendur leikskólans fara frjálst um húsið en kennarar eiga fasta viðveru á svæðunum viku í senn. Svæði leikskólans er skipt upp eftir námsþáttum úr Aðalnámskrá leikskóla og leggja kennarar áherslu á að vera til staðar fyrir nemendur sem hafa þó sjálfir frumkvæði að gjörðum sínum. Markmið svæðaskipulagsins er meðal annars að sjá til þess að hver nemandi njóti sín á eigin forsendum og að þeir fái næði og svigrúm í leik sínum. Að efla frumkvæði, sköpun- arþörf og ímyndunarafl nem- enda, auk þess að skapa svig- rúm til að nemendur geti ræktað vináttu við aðra nem- endur og kennara Vesturbergs. Nemendur eru hvattir til að vinna saman og til að auka einbeitingu þeirra er reynt að brjóta ekki upp leik þeirra og starf með skipulagi sem þau fá engu ráðið um. Leikskólinn er staðsteyptur og klæddur að utan með timbri að hluta og málaður að hluta. Lóð og leiksvæði eru 3350 m² auk umhverfis KK húss þar sem bílastæði eru samnýtt og umhverfið hefur verið fegrað. Aðalverktaki var Hjalti Guð- mundsson ehf., Verktaki lóðar var Nesprýði ehf., undirverk- taktar Hjalta Guðmundssonar ehf. voru: Vatnsafl, Raflagna- vinnustofa Sigurðar Ingvars- sonar ehf., Málningarþjónusta Magnúsar Daðasonar ehf. og Stjörnublikk ehf., Nesprýði ehf. Leikskólinn var hannaður af THG arkitektum í Reykja- nesbæ. Um aðra hönnun sáu Gunnar Ottósson, Tækniþjón- usta SÁ ehf., Rafmiðstöðin ehf. og Verkfræðistofa Suður- nesja. Leikskólinn Vestur- berg í nýtt húsnæði

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.