Víkurfréttir - 25.09.2008, Blaðsíða 2
2 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
25%
afsláttur
30%
afsláttur
41%
afsláttur
KJÚKLINGABRINGUR FERSKAR
1.595 kr/kg
Verð áður 2.704 kr/kg
BAYONNE SKINKA
139 kr/pk.
PARTÝ SKINKA SOÐIN
148 kr/pk.99 kr/pk.
DEL MONTE SAFI epla, appelsínu m/aldinkjöti og ananas 1l
199 kr/stk.
TILDA BASMATI 1kg
499 kr/pk.
PATAKS
TIKKA MASALA OG
KORMA SÓSA 540g
299 kr/stk.
BURTON TOFFYPOPS TWIN PACK BURTON VISCOUNT 7 stk
1.597 kr/kg
Verð áður 2.129 kr/kg
CARAMEL 4 í pakka
1.249 kr/kg
Verð áður 1.778 kr/kg
Betri helgartilboð
-örugglega ódýrt!
����������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������
Sveitarfélögin í Vogum, Garði
og Sandgerði bíða öll með til-
búna aðstöðu fyrir lögreglu.
Ekkert bólar hins vegar á mann-
skap til að manna stöðvarnar.
Um þar síðustu áramót þegar
dómsmálaráðherra kynnti ný-
skipan lögreglumála á Suður-
nesjum var talað um stóraukna
löggæslu á Suðurnesjum. Það
virðist ekki hafa gengið eftir.
Boðaðar voru áherslubreyt-
ingar við sameiningu lögreglu-
embætta við það tækifæri er
Björn Bjarnason, dómsmála-
ráðherra, staðfesti formlega
nýtt skipurit Lögreglustjórans
á Suðurnesjum. Þær voru
einkum fólgnar í auknum
sýnileika lögreglu, eflingu í
rannsóknum mála, auknum
málshraða og öflugu teymi lög-
reglumanna í fíkniefnamálum.
Við sama tækifæri var undir-
ritað samkomulag við sveit-
arfélögin á Suðurnesjum um
fjölgun varðstofa á svæðinu.
Það átti að hafa í för með sér
að varðstofur yrðu framvegis
starfræktar í Sandgerði, Vogum,
og Garði samhliða því að varð-
stofan í Grindavík yrði efld.
Í Vogum, Garði og Sandgerði
bíða sveitarfélögin með til-
búna aðstöðu, sem ekki hefur
enn verið nýtt. Í Vogum og
Garði átti forvarnarfulltrúi að
hafa ákveðna viðveru. Í Sand-
gerði er tilbúin varðstofa í
húsakynnum slökkviliðsins.
Ríkið stendur ekki
við samninga
„Það er því miður alltaf sama
sag an með það sem rík ið
á að gera. Til dæmis hefur
heilsugæslan hér verið lokuð
í margar vikur. Við erum að
berjast í því að fá einhverja
þjónustu í þeim málaflokki.
Við erum líka að berjast í því
að fá almennilega löggæslu.
Við erum einnig að berjast
í því að ríkið borgi það sem
það á að borga í málefnum
fatlaðra. Það er bara eins og
að tala við vegg,“ segir Ró-
bert Ragnarsson, bæjarstjóri í
Vogum í samtali við VF. Hann
segir allt bera að sama brunni
í málefnum Suðurnesja gagn-
vart ríkinu. Suðurnesin virð-
ast þar vera afgangsstærð og
benda megi á framlög til Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja
sem skýrt dæmi.
Á nýlegum fundi bæjarráðs
Grindavíkur er því harðlega
mótmælt að ekki hafi verið
staðið við samninga og fyrir-
heit um aukna löggæslu í bæj-
arfélaginu. Þar vísað í samning
sem gerður var árið 2000 milli
bæjaryfirvalda og sýslumanns.
Einnig er vísað til fyrirheita
sem gefin voru við nýskipan lög-
reglu um þar síðustu áramót.
Nýskipan lögreglumála á Suðurnesjum var kynnt í byrjun árs
2007. Dómsmálaráðherra kynnti aukna löggæslu á svæðinu og
undirritaðir voru samningar við sveitarfélögin þar að lútandi.
VF-mynd/elg
Sigmar Eðvarsson, fulltrúi
D-lista í bæjarráði Grinda-
víkurbæjar, er ómyrkur í
máli í bókun sem hann lagði
fram á síðasta fundi ráðsins
í umræðu um styrkveitingu
til kvennaknattspyrnunnar
í Grindavík. Sigmar segir
for mann bæj ar ráðs hafa
snuprað bæjarbúa með vill-
andi upplýsingum og vinnu-
brögðin varðandi styrkveit-
inguna séu gróft stjórnsýslu-
brot og með öllu ólíðandi.
Bæjaryf irvöld veittu fyr ir
nokkru fjárstyrk til meistara-
flokks GRV að upphæð einni
milljón króna vegna góðrar
frammistöðu á Íslandsmótinu.
Á bæjarstjórnarfundi þann 10.
september spurði fulltrúi D-
lista hvort vænta mætti að allir
meistaraflokkar yrðu styrktir
með sama hætti til að gæta
jafnræðis.
„Formaður bæjarráðs upplýsti
að ekki væri meiningin að
styrkja aðra meistaraflokka í
Grindavík því þetta væri ekki
styrkur, heldur vinnuframlag
útlendinga sem voru í liðinu
og einhver redding þeim til
handa.
Samkvæmt þessum upplýs-
ingum hefur formaður bæjar-
ráðs og bæjarstjóri snuprað
bæjarbúa og bæjarráð með
villandi upplýsingum bæði í
fjölmiðlum og bæjarráði.
Samkvæmt upplýsingum frá
fjármálastjóra bæjarins þá voru
ekki greiddir neinir skattar og
gjöld af upphæðinni heldur
var þetta fært sem styrkur.
Svona vinnubrögð eru með
öllu ólíð andi og eru gróft
stjórnsýslubrot,“ segir í bókun
Sigmars á bæjarráðsfundi í síð-
ustu viku.
Sigmar lagði í framhaldinu
fram til lögu þar sem „for-
maður bæjarráðs biðji bæjar-
ráð afsökunar á framferði sínu
og óski eftir því við fjármála-
stjóra að gjörningurinn verði
færður rétt til bókar svo kom-
Sakar fulltrúa meirihlutans
um gróft stjórnsýslubrot
ast megi hjá skattsvikum,“ eins
og segir orðrétt í tillögunni
sem var felld með atkvæðum
meirihlutans.
Fulltrúar meirihlutans vísa
fullyrðingum Sigmars til föð-
urhúsanna í bókun sem þeir
lögðu fram við sama tækifæri
en í henni segir:
„Bæjarráð samþykkti einróma
á fundi sínum að styrkja meist-
araflokk GRV, knattspyrnu-
deild kvenna um eina milljón.
Þetta er styrkur sem deildin
hefur sjálf eða stjórn hennar
með að gera hvernig er ráð-
stafað. Einhverjar ávirðingar
oddvita D-listans um að eitt-
hvað hafi ekki verið upp á borð-
inu vegna styrksins er vísað til
föðurhúsanna.
Spyrja má hvort um sé að ræða
karlrembuhátt fyrrverandi bæj-
arformanns og skoðanir hans að
konum sé ekki treystandi fyrir
fjármálum hafi áhrif á málefna-
stöðu hans gagnvart styrkveit-
ingu til meistaraflokks kvenna.“
✝
Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Bergþóra Þorbergsdóttir
Garðvangi, Garði
(áður Nónvörðu 11, Keflavík)
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 22. september s.l.
Útför hennar verður gerð frá Útskálakirkju laugardaginn
27. september kl. 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim,
sem vildu minnast hennar er bent á Félag aðstandenda
Alzheimersjúklinga á Suðurnesjum
(reikn. 1109-05-412298 kt. 580690-2389).
Guðmundur Jóelsson, Anna Margrét Gunnarsdóttir
Axel Jónsson, Þórunn Halldórsdóttir
Vignir Jónsson, Marteinn Tryggvason
Þorsteinn Jónsson, Katrín Hafsteinsdóttir
Íris Jónsdóttir, Gylfi Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn