Víkurfréttir - 30.10.2008, Blaðsíða 6
6 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 44. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
„Staða Sparisjóðsins hefur í
sjálfu sér ekkert breyst mikið
frá því sem komið hefur fram
í fjölmiðlum síðustu daga.
Fréttir um erfiðleika Spari-
sjóðabankans vegna veðkalls
Seðlabankans breyta engu
þar um.“ segir Geirmundur
Kristinsson, sparisjóðsstjóri.
Lausafjárstaða Sparisjóðsins
í Keflavík hefur farið batn-
andi og er hún nauðsynleg
forsenda þess að við getum
stutt viðskiptavini okkar
í þeim erf ið leik um sem
framundan eru.
„Síðustu daga og vikur höfum
við fundið fyrir miklum vel-
vilja samfélagsins í okkar garð
og ber að þakka það. Sveitafé-
lögin á Suðurnesjum hafa öll
ákveðið að ávaxta stóran hluta
af sparnaði sínum og lausafé
hjá okkur og undirstrikar það
meðal annars mikilvægi þess
að allir standi saman á þessum
erfiðu tímum. Eins hafa ein-
staklingar, fyrirtæki, lífeyris-
sjóðir og stofnanir lagt sitt af
mörkum,“ segir Geirmundur.
Í umróti síðustu vikna hafa
ýmsar sögur farið af stað um
Sparisjóðinn sem ekki eiga við
rök að styðjast. Vangaveltur
um það hvenær hann lokar eða
hvenær Fjármálaeftirlitið taka
yfir sjóðinn eru allar úr lausu
lofti gripnar. Eflaust má rekja
þessar sögusagnir til óttans og
óvissunnar sem verið hefur í
samfélaginu síðustu vikur.
„Staðreyndin er hinsvegar sú
að hvorki vandamál viðskipta-
bankanna eða mögulegt fall
Exista og Sparisjóðabankans
mun draga Spari sjóð inn í
Keflavík niður. Hlutafé þessara
fyrirtækja myndi tapast en það
myndi ekki hafa áhrif á lausa-
fjárstöðu sjóðsins né hafa veru-
leg áhrif á eiginfjárhlutafallið,“
segir Geirmundur í samtali við
Víkurfréttir og bætir við: „Nú
er tími samstöðu. Næstu mán-
uðir verða vissulega erfiðir
fyrir alla en nú er mikilvægt að
við styðjum hvert annað. Spari-
sjóðurinn í Keflavík er 101
árs nú í nóvember og hefur
því gengið í gegnum ýmis erf-
iðleikatímabil með viðskipta-
vinum sínum og samfélaginu
öllu. Við munum standa af
okkur þessa erfiðleika. Spari-
sjóðurinn er ekki að falla“.
Erfiðleikar Sparisjóðabank-
ans fella ekki Sparisjóðinn