Víkurfréttir - 30.10.2008, Page 20
20 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 44. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Í for varn ar vik unni kynnti
Rannsókn og greining ehf. nið-
urstöður rann-
sóknar sinnar
u m h a g i o g
líðan nemenda
í 8., 9. og 10.
bekk í Reykja-
nesbæ 2008. Ég
vil byrja á að
hrósa ungling-
unum okkar með árangur sinn
þegar kemur að rannsóknarnið-
urstöðum um notkun tóbaks,
áfengis og annarra vímugjafa.
Neysla þessara vímugjafa hefur
á síðastliðnum 10 árum haldið
áfram að dragast saman hjá
unglingunum okkar og fleiri og
fleiri nemendur fara í gegnum
grunnskólann án þess að neyta
nokk urra vímu efna, hvort
heldur tóbaks, áfengis eða ann-
arra vímugjafa.
Það er mikill minnihluti nem-
enda sem prófar eða notar þessi
efni á grunnskólaaldri og með
sama áframhaldi verða krakkarnir
okkar búnir að gera grunnskólana
tóbaks-áfengis-og vímuefnalausa
áður en lagt um líður. Þannig eru
það um 80-90% nemenda í 8.,
9. og 10. bekk grunnskólanna í
Reykjanesbæ sem ekki neyta of-
angreindra efna á móti 10-20%
nemenda sem hafa fallið í freistni
á sínum mótunarárum og þurfa
aðstoð við að komast útúr þessu
fikti eða neyslu sem fyrst.
Foreldrar og forráðamenn barna
eru mikilvægasta forvörnin og
því mikilvægur stuðningur við
sín eigin börn og félaga þeirra.
Meðvitund og virkni foreldra um
þeirra hlutverk er alltaf að aukast
en miðað við rannsóknarniður-
stöður þurfum við foreldrar og
forráðamenn að gera enn betur.
Eftirlit og stuðning foreldra í
Reykjanesbæ við börnin sín þarf
að efla og þar er hvert og eitt
foreldri í lykilhlutverki. T.d. virð-
ist strákum almennt vera settar
minni reglur um hvað þeir megi
gera utan heimilis en stelpum og
betur er fylgst með félagsskap
stelpna en stráka. Verulega er
ábótavant að reglur um útivistar-
tíma barna séu virtar þó svo að
þær reglur séu settar til verndar
börnunum okkar og þar þurfa for-
eldrar og forráðamenn að taka sig
á. Þegar skoðað er hvar ungling-
arnir drekka þá er það algengast
að það sé heima hjá öðrum ung-
lingum þar sem þeir fá skjól fyrir
neyslu sína. Þessu þurfa foreldrar
og forráðamenn að breyta.
Framundan er Forvarnardagur-
inn, haldinn í þriðja sinn 6. nóv-
ember nk. að frumkvæði forseta
Íslands í samvinnu við fjölmarga
aðila og með sérstökum stuðn-
ingi Actavis. Tilgangurinn með
Forvarnardeginum er að fá fram
sjónarmið unglinganna sjálfra
og hlusta á skoðanir þeirra og
reynslu.
Unglingarnir hafa margar hug-
myndir og óskir þegar kemur
að því að verja meiri tíma með
fjölskyldum sínum. Þau leggja
áherslu á að samverustundir þurfi
ekki alltaf að vera skipulagðar
fyrirfram eða kosta mikið, aðal-
atriðið sé að vera meira saman.
Nefna unglingarnir atriði eins
og að borða saman, elda og baka
saman, fjölskyldan komi sér upp
sameiginlegu áhugamáli eða fjöl-
skyldumeðlimir taki meiri þátt í
áhugamálum hvers annars, tali
meira saman um lífið og tilver-
una, hreyfi sig sama og fleira í
þeim dúr. Með aukinni samveru
beri unglingurinn meiri virð-
ingu fyrir fjölskyldunni og kynn-
ist henni betur og þau kynni og
tengsl verða gagnkvæm og fjöl-
skyldan samheldnari, opnari og
auðveldar að finna fyrir stuðningi
og trausti. Að kynna sér svör ung-
linganna í þessum verkefnum er
eins og að lesa í reynslubrunn
afa og ömmu. Löngunin í gömlu
gildin eru enn til staðar. Löng-
unin í náin tengsl, væntumþykju,
traust, skilning, stuðning, nær-
veru og samveru.
Rannsóknir hafa einnig sýnt mik-
ilvægi sterkar tengsla milli ung-
linga og foreldra þeirra, tengsl
sem seint verða ofmetin. Niður-
stöður fjölmargra rannsókna sýna
fram á að;
• Samvistartími og samvera ung-
linga með foreldrum og fjölskyldu
hafa margvísleg jákvæð áhrif á líf
þeirra
• Eftirlit og stuðningur foreldra
við unglinga og samvera foreldra
með þeim dragi úr líkum á því
að unglingar eignist vini sem hafi
neikvæð áhrif á líf þeirra og séu
líklegri til að standast hópþrýst-
ing jafnaldra sinna
• Umhyggja og eftirlit foreldra
með unglingum tengist minni
líkum á vímuefnanotkun ung-
linga
• Jákvæð tengsl séu á milli stuðn-
ings og aðhalds foreldra og náms-
árangurs unglinga og betri líðan
í skóla
Og síðast en ekki síst hafa rann-
sóknir sýnt fram á að unglingar
sem eru í nánum tengslum við
foreldra sína séu ólíklegri en aðrir
unglingar til að eiga við margvís-
leg sálræn og félagsleg vandamál
að stríða.
Foreldrar og forráðamenn, tökum
höndum saman og stuðlum að
betri tengslum innan fjölskyld-
unnar og betri líðan allra þeirra
sem tilheyra fjölskyldu okkar,
vinum og vandamönnum. Við
viljum tilheyra, finna að við erum
hluti af heild, vera metin að verð-
leikum og vera elskuð. Þar sem
upplifanir virðast hafa bein áhrif á
alla okkar líðan þá virðist vera vit
í því að vera saman, tala saman,
hlusta á hvort annað og vera með-
vituð um það, að það er í lagi að
vera ósammála. Það er líka í lagi
að gera mistök svo framarlega
sem maður reyni strax að bæta
úr þeim, beri ábyrgð á hegðun
sinni og reyni að leiðrétta mis-
tökin. Við verðum að geta treyst
hvort öðru, geta gengið út frá
því að okkur gangi gott eitt til og
hugsum jákvætt um hvort annað.
Svik, vanvirðing, einmannaleiki,
höfnun og sektarkennd eru allt til-
finningar sem hafa neikvæð áhrif
á líðan okkar. Hvert og eitt okkar
þarf að axla sinn hluta af ábyrgð-
inni í samskiptum, hvort sem um
er að ræða samskipti við börn,
milli barna, við maka, vinnufé-
laga eða aðra.
Hera Ósk Einarsdóttir,
félagsráðgjafi
Verkefnastjóri hjá Reykjanesbæ.
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali -
Hafnargata 27 - 230 Keflavík - s: 421 1420 og 421 4288
- fax 421 5393 - Netfang: asberg@asberg.is
Heiðarendi 4, Keflavík
Mjög góð 104m2 nýleg íbúð á 1 hæð með
sérinngangi í átta íbúða húsi á góðum stað. Allar
innréttingar úr Hlyn, flísar og parket á gólfum.
Glæsileg eign. Laus strax.
kr. 22.800.000.-
Fífumói 1c, Njarðvík
Falleg 3 herb.íbúð á 3.hæð. Flísar og parket á
gólfum, hagstæð lán áhvílandi. Laus fljótlega.
13.200.000.-
Baugholt 19, Keflavík
Rúmgott og vel staðsett 138m2 einbýlishús með
46m2 bílskúr. Húsið er með 4 svefnherbergum.
Sólpallur vel afgirtur. Stutt í alla þjónustu skóla,
verzlun og íþróttamiðstöðvar. Laust til afhend-
ingar strax.
kr. 34.800.000.-
Blikatjörn 7, Njarðvík
Nýtt 200m2 einbýlishús með 4 svefnh. og bílskúr.
Húsið er fullfrágengið að utan klætt með
Síberíulerki, lóð er tyrft en perlumöl í innkeyrslu.
Allir innveggir, loft og útveggir klæddir með
gifsplötum. Öll tengigjöld eru greidd.
kr. 30.000.000.-
Hagir og líðan grunnskólanema í Reykjanesbæ
Við erum ekki þekkt fyrir að gef-
ast upp. Við höfum áður fengið
á okkur brotsjó, haldið lífi,
komið reyndari
og sterkari út úr
því.
Það eru aðeins
tvö ár síðan Varn-
arliðið hvarf af
landi brott og
stærsta höggið
fengum við hér
í Reykjanesbæ. Það herti okkur
í róðrinum eftir öruggum og vel-
launuðum störfum. Við sýndum
fram á að hér var besta aðstaða
til byggingar álvers. Við fengum
ekki alltaf góðar viðtökur stjórn-
málamanna í þeirri baráttu. En
við gáfumst ekki upp.
Barátta okkar hefur skilað því að
nú er verkið tilbúið einmitt þegar
næsta holskefla ríður yfir þyngri
og alvarlegri en sú fyrri. En við
erum undirbúin.
Framkvæmdir við álver í Helgu-
vík eru komnar af stað og staða
verkefnis þannig að þær geta
gefið 1500 manns vinnu nú strax
eftir áramót.
Framkvæmdir okkar við Helguvík-
urhöfn eru komnar á fullt skrið.
Höfnin verður tilbúin undir inn-
og útflutning vegna álvers þegar á
þarf að halda.
Í ljósi efnahagsástandsins höfum
við skoðað hvernig við getum
stuðlað að fleiri stöfum við bygg-
ingarverkefni í Helguvíkurhöfn.
M.a. höfum við ákveðið að í stað
þess að kaupa stálþil erlendis frá
skuli bryggjukantarnir steyptir.
Þetta þýðir mun meiri íslenska
framleiðslu og störf við fram-
kvæmdina, en í ljósi gengis gjald-
miðla getur þetta einnig verið hag-
stæðara fyrir okkur.
Norðurál hefur fullan hug á að
flýta fram kvæmd um eins og
kostur er. Þeir eru einnig tilbúnir
að láta þetta gerast í skynsam-
legum, samfelldum áföngum.
Þannig getur verið hér vinna
við uppbyggingu álversins sjálfs,
höfnina, línulagnir, virkjanir og
þjónustu vegna alls þessa næstu
5 árin fyrir um 1500 manns. Þessi
vinna getur nú hafist strax eftir
áramót.
Þá þurfa líka allir að leggjast á
árar. Reykjanesbær og Garður
hafa löngu lokið við samninga um
álverið og höfnina, virkjanir og
línulagnir í landi Reykjanesbæjar
og HS Orkuveita Reykjavíkur gert
samning um orkuöflun. Vogarnir
hafa klárað sitt. Nú vantar enn
að Hafnfirðingar klári samning
við Landsnet um línulagnir en
mér er tjáð að það sé að gerast. Þá
þurfa Grindvíkingar að ganga frá
samkomulagi við HS um virkjun
í þeirra skipulagslandi svo næg
orka fáist til næstu áfanga. Ríkis-
stjórnin er að ganga frá fjármögn-
unarsamningi og þarf að stuðla
að því að Landsvirkjun sé með í
orkuöflun til næstu áfanga álvers-
ins. Ekki er að sjá að það sé löng
biðröð eftir að fjárfesta á Íslandi.
Ef okkur tekst þetta á næstu
vikum, er víst að Norðurál ætlar
ekki að láta sitt eftir liggja, þrátt
fyrir erfitt efnahagsástand í heim-
inum. Þá fer þetta allt á fulla ferð
strax uppúr áramótum.
Gerum okkur samt grein fyrir að
ef áfram er hik á þeim sem eftir
er að semja við, er óljóst hvort
Norðurál treystir sér til að halda
áfram af fullum krafti. Ef tafir
verða á leyfum til að virkja, þá
tefjast næstu áfangar álvers og
vinna fellur niður, sem kallar á
endurskoðun Norðuráls gagnvart
allri framkvæmdinni.
Suðurnes eru eitt atvinnusvæði.
Ég treysti á að við forsvarsmenn
sveitarfélaganna á Suðurnesjum
sjáum öll til þess að engar tafir
verði héðan í frá af okkar hendi.
Þorsteinn Erlingsson,
skipstjóri, formaður Atvinnu- og
hafnaráðs Reykjanesbæjar.
Mikilvægt að allir klári nú sitt í álveri - þá skapast 1500 störf strax eftir áramót!