Víkurfréttir - 06.11.2008, Qupperneq 1
SIMPLY CLEVER
4.9
L/100 KM
45. tölublað • 29. árgangur • Fimmtudagurinn 6. nóvember 2008
Víkurfréttir ehf.
Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbæ
Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17
Auglýsingadeild 421 0001
Fréttadeild 421 0002
Aðrar deildir 421 0000
SÍMINN ER 421 0000
GRÓFIN 14B - 230 REYKJANESBÆR
SÍMI: 421 4566 - tv @ i4tec.com
Siglingatæki í báta ásamt
allskonar rafmagnslausnum.
Rafmagnsviðgerðir á bílum,
Græjuísetningar,
ljósabúnaður á bíla,
o.fl. tengt bílum.
Loftnetsuppsetningar og
viðgerðir á loftnetskerfum.
kreppufrÉttir
meÐ kvÖldmatn
um
- sjá viðtöl við unglin
ga í miðopnu
Lumar þú á góðri hugmynd sem mætti framkvæma
í kreppunni eða ábendingu um jákvæða frétt?
Sendu okkur línu á vf@vf.is og við skoðum málið.
Fjármögnun framkvæmda við álver Norðuráls
í Helguvík gengur vel en samkvæmt heimildum
Víkurfrétta hafa eigendur þess verið í sambandi
við bankastofnanir í útlöndum og fengið góð
viðbrögð.
Stjórnvöldum voru nýlega kynntar nýjar
áætlanir varðandi byggingu álversins. Í stað
þess að byggja 150 þús. tonna áfanga í upphafi
með stækkunarmöguleikum í 250 þús. er stefnt
að fjórum 90 þús. tonna áföngum. Því verði
ársframleiðslan 360 þús. tonn þegar byggingu
verður lokið. Þessi breyting mun hafa betri áhrif á
samfélagið. Vinnan verði jafnari næstu fimm árin.
Sem stendur er rólegt yfir framkvæmdum í
Helguvík og beðið eftir niðurstöðu úr fjármögnun
sem eins og fyrr segir lítur vel út. Því eru menn
bjartsýnir á að þetta gríðarlega mikilvæga verkefni
fari í fullan gang á næstu vikum og mánuðum og
tryggi atvinnu fyrir mikinn fjölda fólks.
Bjartsýni varðandi Helguvík
Góðar hugmyndir...
Kjarngóður morgunverður í Akurskóla
Nemendur elstu bekkja Akurskóla í Reykjanesbæ eru mættir í skólann vel fyrir klukkan átta á morgnana til þess að fá
sér kjarngóðan morgunverð áður en skólastarfið hefst. Það eru kennarar sem leggja til vinnuna en Skólamatur.is leggur
til hráefnið, hafragraut, ávexti, brauð og álegg. Verkefnið er tilraun sem gefst vel og er almenn ánægja hjá nemendum
að borða saman morgunverð fyrir átök dagsins. Það er nefnilega mjög algengt að eldri nemendur gæti ekki að því að
borða vel áður en farið er í skólann. Saddir nemendur eiga auðveldara með að takast á við verkefni dagsins.
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson