Víkurfréttir - 06.11.2008, Síða 8
8 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 45. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
CAFÉ IÐNO
HÓTEL KEFLAVÍK
ÞAR SEM BRAGÐIÐ SKIPTIR MÁLI!
OPNUNAR VEISLA!
BREYTTUR OG BETRI STAÐUR!
KOMIÐ OG BRAGÐIÐ OKKAR LJÚFFENGU
ÞUNNBOTNA IÐNO PIZZUR!
Pöntunarsími 420 7011
Þökk sé frábærar móttökur R
eyknesinga heldur veislan áfra
m!
ALLAR PIZZUR
AF MATSEÐLI Á
1500 KR. Í SAL OG SÓTT
1800 KR. Í HEIMSENDINGU Lyfja flytur á morgun apótek
sitt í Reykjanesbæ af Hring-
brautinni í nýtt húsnæði við
Krossmóa 4, betur þekkt sem
Samkaupshúsið.
Fjöldamörg tilboð og vöru-
kynningar verða í boði í tilefni
af opnun nýrrar Lyfju en vöru-
úrval verslunarinnar hefur
verið aukið töluvert. Um opn-
unarhelgina, dagana 7. og 8.
nóvember, verða sérfræðingar
frá Heilsu á staðnum sem
munu gefa leiðbeiningar um
notkun bætiefna, vítamína
og f leiri heilsu vara. Auk
þess verða snyrtifræðingar á
vegum L'Oreal í versluninni
til að leiðbeina um notkun á
snyrtivörum og á háralitum.
Versl un in mun alla jafna
bjóða breitt úrval af gjafavöru
og almennri snyrtivöru sem
margar henta vel til jólagjafa.
Nýja verslun Lyfju er nokkuð
rúmbetri en sú gamla með
tilheyrandi bættri þjónustu,
meðal annars hefur biðað-
staða verið bætt. Lyfja býður
eldri borgara sérstaklega vel-
komna í nýju búðina og mun
bjóða heilsu farsmæl ingar
(blóðþrýstings-, blóðsykurs-
og beinþéttnimælingar) fríar
til allra viðskiptavina 65 ára
og eldri í tilefni af opnuninni.
Þetta tilboð gildir að morgni
mánudags 10. og þriðjudags
11. nóvember frá 9-12.
Á opnunardaginn, 7. nóvem-
ber verður viðskiptavinum
boðið upp á léttar veitingar í
nýja apótekinu við Krossmóa,
segir í tilkynningu frá Lyfju.
Lyfja flytur í
Samkaupshúsið
Búast má við hörku keppni
þegar Einar Bárðarson, um-
boðsmaður Íslands og Kefl-
víkingurinn og tónlistarmað-
urinn Magnús Kjartansson
verða aðal númerin á herra-
kvöldi Golfklúbbs Suðurnesja
föstudagskvöldið 14. nóv.
nk. Að sögn forsvarsmanna
GS er útlit fyrir mjög góða
aðsókn en fjöldi manna
BÚIST VIÐ MIKLU FJÖRI ÞEGAR
MAGNÚS OG EINAR MÆTA Í LEIRUNA
hefur haft samband og segjast
ekki ætla að missa af þessari
uppákomu. Það sé nú ekki oft
sem Maggi Kjartans fái alvöru
samkeppni á svona kvöldi.
Umboðsmaður Íslands veit
að hann þarf að sýna allar
sínar bestu hliðar til að eiga
eitthvað við Magnúsi sem eins
og flestir vita er með munninn
fyrir neðan nefið!
Að vanda verða sjávarréttir
bornir fram og munu þeir
félagar, Einar og Magnús sjá
um að skemmta gestum með
gleði sinni og fjöri.
Gylfi Kristinsson, fráfarandi
framkvæmdastjóri GS (s. 898-
1009) og Sigurður Garðarsson
(s. 892-1771) og skrifstofa Vík-
urfrétta (s. 421-0000) taka við
skráningu og selja miða.
Grindavíska atvinnuleik-
hús ið, GRAL, und ir býr
þessa dagana frumsýningu á
leikverkinu 21 manns saknað
laugardaginn 15. nóvember.
Nokkur eftirvænting er fyrir
þessu fyrsta verkefni GRAL
því uppselt er á frumsýning-
una.
Verkið er einleikur byggður á
ævi séra Odds V. Gíslasonar og
fer Víðir Guðmundsson með
hlutverkið. Víðir segir verkið
eitt það mest krefjandi sem
hann hafi tekið sér fyrir hendur.
„Það er mikið spurt hvenær
sýningar hefjast þannig að mér
sýnist fólk vera spennt fyrir
þessu án þess að við séum byrj-
aðir að auglýsa sýningarnar
sérstaklega en það stendur til
á næstunni. Við eru því von-
góðir um góðar undirtektir,“
segir Víðir. Búið er að raða
niður sýningum fram að ára-
mótum og ef undirtektir verða
góðar er ráðgert að hafa fleiri
eftir áramót. Einnig hefur
náðst samstarfssamningur við
Grindavíkurbæ um að fara
með sýningar inn í grunnskól-
ana, að sögn Víðis.
Aðspurður segir Víðir verkið
mjög krefjandi enda um ein-
leik að ræða. Víðir þarf því að
bregða sér í ýmis hlutverk og
bera uppi sýninguna allan tím-
ann. „Mér er óhætt að segja
að þetta sé með mest krefjandi
verkefnum sem ég hef tekið
mér fyrir hendur,“ segir Víðir.
Leikverkið 21 manns saknað
er um þjóðsagnakennda ævi
séra Odds V. Gíslasonar og
þeim framúrstefnulegu verk-
efn um sem hann tók sér
fyrir hendur. Má þar nefna
lýs is bræðslu í Höfn um,
brennisteinsnámuvinnslu í
Krýsuvík, kolanámuvinnu við
Hreðavatn, baráttunni við fá-
tæktina og Bakkus, segir í sýn-
ingarskrá. Oddur var einnig
kunnur af því að hafa lagt
grunninn að slysavörnum á
Íslandi.
Eins og áður segir er frum-
sýning þann 15. nóvember en
nánari upplýsingar um sýning-
arnar, sem fram fara í listasal
Saltfisksetursins, má sjá á vef
Grindavíkurbæjar og á http://
gral.blog.is
Grindvíska atvinnuleikhúsið, GRAL:
Frumsýning 15. nóvember
Viðskiptalífið á Suðurnesjum: