Víkurfréttir - 27.11.2008, Síða 1
SIMPLY CLEVER
4.9
L/100 KM
48. tölublað • 29. árgangur • Fimmtudagurinn 27. nóvember 2008
Víkurfréttir ehf.
Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbæ
Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17
Auglýsingadeild 421 0001
Fréttadeild 421 0002
Aðrar deildir 421 0000
GRÓFIN 14B - 230 REYKJANESBÆR
SÍMI: 421 4566 - tv @ i4tec.com
Víkurfréttamynd: Ellert Grétarsson
„Ég er þeirrar
skoðunar að
þessi sjálftaka,
að halda að
það megi
leysa úr ágreiningsmálum
með ofbeldi, sé eins og
krabbamein í íslensku
þjóðfélagi. Við sjáum þess
merki víða. Ég sé ekki
betur en að nú verði fólk
að taka höndum saman
og vinna þannig úr því
og stimplum það inn að
ofbeldi er ekki ásættanleg
lausn í ágreiningsmálum,
sama hvort það er á milli
barna, unglinga eða full-
orðinna,“ segir Gylfi Jón
Gylfson, sálfræðingur og
deildarstjóri sérfræði-
þjónustu hjá Reykjanesbæ,
þegar VF ræddi við hann
vegna líkamsárásarinnar
í Njarðvík í síðustu viku.
Árásin vakti mikinn óhug
almennings ekki síst vegna
ungs aldurs þeirra er hlut
áttu að máli auk þess
hve fólskuleg hún var.
„Hvaðan þetta er komið
inn í íslenskt samfélag
er ekki gott að segja. En
þetta er þekkt fyrirbæri
í menningarkimum, t.d.
meðal glæpagengja í út-
löndum og svo framvegis.
Kannski er einhvers konar
eftirherma af því í gangi,“
segir Gylfi ennfremur.
Eins og krabba-
mein í íslensku
þjóðfélagi
- sjá nánar í blaðinu í dag!
Umhverfisráðherra segir að fara verði fram nýtt
umhverfismat ef stækka eigi álverið í Helguvík.
Norðurál hefur óskað eftir því að fá að stækka
álverið í Helguvík úr 250 þúsund tonnum í 360
þúsund tonn. Miðað er við að álverið verið
byggt upp í fjórum 90 þúsund tonna áföngum.
Fyrsti áfanginn gangsettur árið 2011 og sá
síðasti 2014. Forstjóri Norðuráls fundaði með
ráðherra í gær vegna málsins.
Í dag eru um 1000
manns skráðir
atvinnulausir á
Suðurnesjum.
Atvinnulausum
hefur fjölgað um 150 á
hálfum mánuði og um 450
frá síðustu mánaðamótum.
Tala atvinnulausra fór í 1001
í gærmorgun. Karlar eru í
meirihluta atvinnulausra
á Suðurnesjum.
1000 án atvinnu Nýtt umhverfismat þarf fyrir
stærra álver í Helguvík
Met þátt taka á jólaskreyt inga kvöldi
Met þát ttaka var í byrj un vik unn ar á jóla skreyt inga kvöldi Blóma vals á Fitj um. Hátt í 150 manns,
nær ein göngu kon ur, voru mætt ar til að kynn ast því nýjasta og flottasta í jóla skreyt ing um
und ir leið sögn skreyt inga meist ar ans Ómars Ell erts son ar og starfs fólks Blóma vals.
Til stemmn ings auka var svo við stödd um boð ið upp á kakó og pip ar kök ur.
Fleiri ljós mynd ir frá kvöld inu má sjá í ljós mynda safni vf.is.
Aðventublað
Víkurfrétta
kemur út í næstu viku,
fimmtudaginn 4. des. Í
blaðinu verður fjölbreytt efni
tengt undirbúningi jólanna,
Jólalukkan verður kynnt til
leiks og verslanir auglýsa
jólavöruna. Þeir sem vilja
auglýsa í aðventublaðinu hafi
samband við auglýsingadeild
VF í síma 421 0001.
Barnahátíð
í Reykjanesbæ á laugardaginn